Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 40
RUSSELL BRAND
Þessi hæfileikaríki grín-
isti sannar að það þarf
ekki endilega að klæð-
ast vel sniðnum jakka-
fötum til að vera
flottur. Hann
er rokkaður í
fatavali og
það fer
honum
vel.
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013
S
amkeppnin milli stjarnanna um sviðs-
ljósið er mikil og þá hjálpar til að
hafa góða tilfinningu fyrir tísku, nú
eða góðan stílista, þó tískuslysin veki
líka jafnan athygli. Þessar fimm konur hér
til hliðar sköruðu fram úr í fatavali í heimi
fræga fólksins á síðasta ári.
Gwyneth Paltrow hefur lengi verið á list-
um sem þessum en gulltryggði sér sess á
listanum á liðnu ári fyrir sérstaklega glæsi-
legan fatnað á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Þessar konur eiga það allar sameiginlegt að
vera mikið í sviðsljósinu og sýna stíl sinn við
ótal tækifæri.
Af öðrum sem tókst vel upp á árinu má
nefna bresku fyrirsætuna Cöru Delevingne,
söngkonuna Azealiu Banks, leikkonuna
Emmu Stone, Victoria’s Secret-engilinn Mi-
röndu Kerr og hina bresku Alexu Chung.
BEST KLÆDDU KONURNAR 2012
KRISTEN STEWART
Leikkonan var mikið í sviðsljós-
inu á árinu bæði fyrir kvikmynda-
leik og einkalífið. Hún er óút-
reiknanleg í fatavali en hefur
ávallt kynþokkann að vopni.
Þessi gegnsæi kjóll vakti mikla at-
hygli en hann er hönnun Zuhair
Murad. Eins og sést tekur hún
sig jafn vel út í buxum og kjól.
AFP
AFP
GWYNETH PALTROW
Tískufræðingar eru sammála um
að Gwyneth Paltrow sé einhver
best klædda kona ársins. Þessi
hvíti kjóll með síðu slánni, sem
er hönnun Tom Ford, og hún
klæddist á Óskarsverðlauna-
hátíðinni er eftirminnilegasti kjóll
ársins og einhver flottasti klæðn-
aður sem stjarna hefur klæðst á
rauða dreglinum síðustu ár.
Stællegustu
stjörnurnar
ÞESSAR FIMM KONUR SKIPA SÉR Á
MEÐAL BEST KLÆDDU KVENNA ÁRS-
INS 2012 Í HEIMI FRÆGA FÓLKSINS.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Föt og fylgihlutir
L
íf karlmannsins á rauða dreglinum er
nokkuð auðveldara en kvennanna,
valkostirnir eru færri en þó þarf að
svara nokkrum spurningum. Slaufa
eða bindi? Litríkt eða hefðbundið? Ein-
hneppt eða tvíhneppt?
Þessum fjórum mönnum sem hér eru
tilteknir tekst oftar en ekki vel upp í fata-
vali, jafnvel þótt jakkafötin séu skilin eftir
heima eins og í tilfelli Russells Brands.
Aðrir vel klæddir menn eru til dæmis leik-
ararnir Tom Hardy og Jimmy Fallon, tölvusnill-
ingurinn Sean Parker og leikstjórinn Christ-
opher Nolan.
IDRIS ELBA
Luther-leikarinn hefur meðfæddan glæsi-
leika og fer honum vel að ganga rauða
dregilinn, eins og hér á heimsfrumsýningu
Les Miserables í London í desember.
BEST KLÆDDU KARLARNIR 2012
Flottir
fýrar
ROBERT
PATTINSON
Hann tekur sig
vel út með Krist-
en Stewart upp á
arminn og saman
eru þau eitthvert
best klædda par
ársins 2012. Hér
er hann í smar-
agðsgrænum
Gucci-
jakkafötum.