Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Side 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Side 37
NÁÐU TÖKUM Á VERKEFNALISTANUM Það er til mikill fjöldi af forritum til að halda utan um verkefnalista fyrir snjallsíma. Aðalatriðið er að velja eitt og halda sig við það. Any.do er mjög einfalt og þægilegt forrit sem má samstilla á milli síma og tölvu. Notendaviðmótið er þægilegt og hægt er að flokka verkefni, deila þeim og skipta niður í hluta. Önnur sambærileg forrit sem hægt er að mæla með eru Workflowy, Remember the Milk, Wunderlist og Astrid. Samhliða því sem teknir eru upp verkefnalistar er hægt að nota tækifærið og prófa sig áfram með tímastjórn- unarforrit líkt og þau sem byggjast á Pomodoro-tækninni, en talsvert úrval er af þeim í flesta snjallsíma. 6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Ubuntu er sú útgáfa af opna stýrikerfinu Linux sem hef- ur náð hvað mestri almennri útbreiðslu. Fyrirtækið Ca- nonical, sem sérhæfir sig í Ubuntu lausnum hefur nú til- kynnt að það sé á lokastigum þess að þróa útgáfu af Ubuntu fyrir snjallsíma. Ubuntu mun reyna að skapa sér sérstöðu með því að staðsetja sig mitt á milli hins harðlæsta iOS stýrikerfis Apple og hins galopna stýrikerfis Android (sem byggist líka á Linux grunni). Ubuntu mun notast við sömu rekla og Android kerfið, sem þýðir að tæknilega ætti að vera hægt að keyra Ubuntu á öllum Android-símum. Erfitt að þróa forrit fyrir Android Eitt af vandamálum Android hefur verið að sökum þess hve opið kerfið er, þá geta framleiðendur vélbúnaðar (síma og spjaldtölva) breytt því og aðlagað eftir eigin höfði, sem gerir framleiðendum forrita erfitt fyrir, því það þarf að þróa forritið fyrir ólíkar útgáfur stýrikerf- isins. Canonical hyggst setja ramma um Ubuntu sem mun ekki gera framleiðendum kleift að breyta kerfinu. Þetta mun gera framleiðslu forrita fyrir Ubuntu talsvert einfaldari en fyrir Android. Þá mun Ubuntu ekki notast við Java lausnir, heldur verður notast við forritun fyrir kerfið og HTML5, sem ætti að gera stýrikerfið léttara og viðbragðsfljótara en Android Það verður forvitnilegt að sjá hvort Ubuntu nær að skapa sér sérstöðu á markaðnum, en iOS kerfið frá Apple og Android frá Google hafa borið höfuð og herðar yfir aðra framleiðendur stýrikerfa. Microsoft ver um þessar mundir miklu fé í að reyna að ná fótfestu á markaðnum fyrir Windows snjall- símastýrikerfi án teljandi árangurs enn sem komið er, og RIM er um það bil að fara að bjóða upp á 10. kynslóð af Blackberry stýrikerfinu sem þeir vonast til að blási lífi í kulnandi glæður áhuga Blackberry-notenda. sveinnbirkir@gmail.com LINUX FÆRIR SIG YFIR Í SNJALLSÍMA Ubuntu stýrikerfi fyrir farsíma væntanlegt Android og iOS stýrikerfin hafa fram að þessu átt snjall- símamarkaðinn, en það gæti breyst með Ubuntu-kerfinu. Morgunblaðið/Kristinn HÆTTU AÐ REYKJA Áramótin eru frábær tími til að hætta að reykja. Mörg smáforrit eru fáanleg sem hjálpa til við það göfuga markmið. Quit It er þægilegt forrit sem fylgist með því hve langur tími er liðinn frá því að þú hætt- ir, hve margar sígarettur þú hefur sleppt að reykja á þeim tíma, og hve mikinn pening þú hefur sparað á því. Það sýnir þér einnig á myndrænan hátt hvaða ávinning það hefur haft fyrir heilsuna, svo sem hve mikið hefur dregið úr líkum á reykingatengdum sjúkdóm- um. LÆRÐU NÝJA HLUTI Snapguide er lítið forrit sem hjálpar notendum að útbúa eða nálg- ast einfaldar leiðbeiningar um hvernig á að leysa verkefni, hvort sem það er að baka köku eða skipta um kerti í bílnum. Notendur geta bæði útbúið og deilt leiðbeiningum um hluti sem þeir eru vel að sér um, eða nálgast leiðbeiningar um þá hluti sem þeir vilja læra. Þetta er tilvalið fyrir fólk sem vill taka áskorun á nýju ári og læra nýja hluti. Ef þú hefur áhuga á annars konar andlegri áskorun má mæla með að skoða forritið Khan Academy, sem hjálpar þér við að læra ýmiss konar raunvísindi. LEGGÐU AF Vissulega getur það verið bæði erfitt og leiðinlegt að halda í við sig í mat eftir desem- berveislurnar, en með Dietbet er hægt að breyta því í leik. Líkt og Gympact, þá býður Dietbet þér beinan fjárhagslegan ávinning af því að ná markmiðum þínum. Dietbet býður þér að keppa við aðra notendur forritsins. Þú ákveður hvað þú vilt leggja mikið undir. Ef annar eða aðrir notendur er tilbúnir að keppa við þig um þá upphæð, þá hafið þið 28 daga til að minnka líkamsþyngd um 4%. Ef það tekst vinnurðu peningana, ef ekki þá taparðu. Forritið býður þér upp á að deila myndum af árangrinum, matnum eða úr ræktinni, ásamt því að fá stuðning frá vinum. Lose it er annað app sem er hægt að nota til að skrá og greina inntöku á hitaeiningum, setja sér markmið, gera áætlanir. tengjast samfélagi fólks með svipuð markmið og ræða vandamál og sigra. Opnunartímar: Smáralind Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21 | Laugardaga 11 - 18 Sunnudaga 13 - 18 | Sími 512 1330 WalkOnWater 30% afsláttur MiniCooper 50% afsláttur iLuv 25% afsláttur iHealth 20% afsláttur B&W - heyrnartól 20-30% afsláttur Dæmi um vörur á útsölu. B ir t m e ð fy ri rv a ra u m p re n tv ill u r o g ve rð b re yt in g a r. T ilb o ð g ild a á m e ð a n b ir g ð ir e n d a st . GENEVA 20% afsláttur 15-50% -fjarstýrður BYRJAÐU AÐ HLAUPA Margir ætla sér að byrja að hlaupa á nýju ári, enda er það holl og skemmtileg hreyfing sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Runkeeper er eitt vinsælasta símaforritið á markaðnum fyrir hlaupa- fólk, jafnt byrjendur sem lengra komna. Forritið tekur saman æfingar, mælir vegalengdir, hraða, árangur og hlaupaleiðir og er með innbyggðum æfingaáætlunum sem hjálpa þér af stað og koma þér í form. Það er auð- velt að setja sér markmið og fylgja þeim eftir með aðstoð forritsins, það er hægt að láta það minna sig á að halda áætlun og auðvelt að tengjast öðrum notendum og vinum sem fylgjast með árangrinum með þér og styðja við bakið á þér. Forritið er fáanlegt í bæði iPhone og Android. Sambærileg forrit sem hægt er að mæla með eru Endomondo og Nike+.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.