Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 48
Viðtal 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013 heldur alls ekki verið neitt leyndarmál og teikning Charlie Thorson af þeim Kristínu hafi til að mynda alla tíð hangið uppi á vegg á heimili fjölskyldunnar. Teikningin sýnir Charlie, í gervi prins, biðja prinsessunnar Kristínar! „Pabbi hafði mjög gaman af þess- ari sögu,“ segir hún. „Þessi mynd er það dýrmætasta sem við systkinin eigum. Við höldum að Charlie hafi teiknað myndina þegar hann reyndi að fá mömmu til að snúast hugur.“ Gaman er að geta þess að ein dætra Kristínar Sölvadóttur náði að ræða við Stephen Thorson, son Charlie og konu af pólskum ættum, og sagðist hann mun vel eftir því að faðir hans talaði um að fyrir- myndin að Mjallhvíti væri íslensk og héti Kristín! Það fór því aldrei á milli mála. Kristín var fjögur ár í Vesturheimi. Fór utan 18 ára, fyrst og fremst til að læra ensku og bjó í Winnipeg hjá frænku sinni, Jónínu Oddleifsdóttur, en einnig í Árborg. Eftir að hún kom aftur heim til Íslands kynntist Kristín eiginmanni sínum, Garðari Þórhallssyni bankamanni. Þau giftust 1937 og eignuðust fimm börn K ristín Sölvadóttir, sem fæddist á Siglufirði árið 1912, var fyrir- myndin að einni þekktustu teiknimyndapersónu sögunnar, sjálfri Mjallhvíti. Teiknarinn sem skapaði persónuna fyrir Walt Disney var einnig Íslendingur, Karl Stefánsson – sem tekið hafði upp nafnið Charles Thorson – fæddur í Winnipeg, en foreldrar hans voru báðir úr Biskupstungum. Anna Sigríður Garðarsdóttir, ein dætra Kristínar, hefur lengi safnað ýmsu sem teng- ist Mjallhvíti, ekki síst gömlum munum. „Ég stefni að því að setja upp lítið safn, það væri til dæmis gaman að bjóða skólakrökkum að koma og skoða. Ég er líka byrjuð að safna öllu sem ég finn um Charlie Thorson.“ Skemmtileg teikning „Ég átti svolítið erfitt með að trúa þessu í fyrstu, en systur mínar trúðu því einhverra hluta vegna miklu betur!“ segir Anna Sigríð- ur um „tengsl“ móður hennar og stúlkunnar sem allir þekktu. Hún segir móður sína ekki hafa talað mik- ið um þetta eða gortað af því, en það hafi Sagan skemmtilega af Kristínu er rifjuð upp í nýjasta hefti Fréttabréfs Siglfirðinga- félagsins. Jónas Ragnarsson segir þar að þau Kristín og Charles Thorson hafi hist í Árborg, þar sem hann hélt námskeið í teikn- ingu. „Síðar fór Charles að venja komur sínar á Wevel Café í Winnipeg, þar sem Kristín var afgreiðslustúlka, fékk sér þar kaffisopa og teiknaði myndir. Þau virðast hafa orðið mjög nánir vinir. Hann var rúmlega fertugur, hún tvítug. Það kom ekki í veg fyrir það að hann bað hennar og gaf henni teikningu af þeim saman þar sem hann var prinsinn en hún prinsessan. Þetta mun hafa verið sumarið 1934.“ Anna Sigríður segir að skv. gögnum úr fórum móður hennar hafi Kristín játast Charlie og allt verið klappað og klárt fyrir giftingu þegar henni snerist hugur. Anna segir að búið hafi verið að ákveða svaramenn, en þegar til kom hafi Kristínu líklega þótti aldursmunurinn heldur mikill auk þess sem Charlie hafi verið nokkuð drykkfelldur. Hann var um fertugt þegar þetta var en Kristín tvítug. Hún hélt heim á leið á nýjan leik nokkrum misserum síðar. Þrjú ár liðu þar til teiknimyndin um Mjall- hvíti var frumsýnd ytra. Jónas Ragnarsson segir í fréttabréfinu frá Charles Thorson: „Hann var Vestur- Íslendingur, fæddur 29. ágúst 1890 í Winni- peg í Manitoba, sonur Stefáns Þórðarsonar og Sigríðar Þórarinsdóttur sem voru ættuð úr Biskupstungum. Þau fluttu vestur um haf árið 1887. Stefán var meðal annars bæjar- stjóri í Gimli í Manitoba.“ Jónas segir enn- fremur: „Charles var þekktur teiknari í Ís- lendingabyggðum í Kanada, teiknaði í blaðið Heimskringlu og myndskreytti vörulista stórverslunarinnar Eaton í tvo áratugi.“ Þetta er dóttir Mjallhvítar! Anna Sigrríður segir að Charlie hafi feng- ið vinnu hjá Disney í Hollywood á meðan móðir hennar var enn ytra, sennilega um svipað leyti og hann bað hennar. Seinna vann hann hjá kvikmyndaverinu Warner Bros og gekk jafnan undir nafninu Cartoon Charlie; teiknimynda-Charlie og er höfundur fjölda þekktra teiknimyndapersóna. Að sögn Önnu Sigríðar hefur sagan af Anna Sigríður Garðarsdóttir í Mjallhvítarherberginu á heimili sínu: Ég átti svolítið erfitt með að trúa þessu í fyrstu, en systur mínar trúðu því einhverra hluta vegna miklu betur! Morgunblaðið/Árni Sæberg Anna Sigríður, dóttir Kristínar Sölvadóttur, á alls kyns Mjallhvítar-muni í fórum sínum. Mjallhvít var frá Siglufirði ANNA SIGRÍÐUR GARÐARSDÓTTIR Í REYKJAVÍK Á MIKIÐ SAFN ALLS KYNS MUNA UM TEIKNIMYNDAPERSÓNUNA MJALLHVÍTI. ENDA VAR MÓÐIR HENNAR FYRIRMYNDIN! Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.