Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 50
Viðtal
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013
Strákarnir
okkar stjórna
afslættinum!
Taktu þátt í HM-leik ÓB
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
38
41
S
íðustu dagar hafa verið annasamir
hjá Sigþóri Guðbrandssyni,
starfsmanni Rarik í Ólafsvík, en
hann er ábyrgur fyrir því að dís-
ilrafstöðvar fyrirtækisins fram-
leiði rafmagn.
Allt rafmagn í Ólafsvík, Hellissandi og
Rifi hefur verið framleitt með varaafli í
heila viku. Sigþór var á vakt fyrstu tvo sól-
arhringana, en þegar ljóst varð að langan
tíma tæki að gera við Ólafsvíkurlínu var
maður fenginn frá Hornafirði til að leysa
Sigþór af.
„Það er búinn að vera langur vinnudagur
hjá flestum starfsmönnum Rarik síðustu
daga, ekki síst hjá okkur sem sjáum um dís-
ilvélarnar,“ segir Sigþór.
Venjulega eru tveir menn í Ólafsvík til
taks ef þörf er á að nýta dísilrafstöðvarnar.
Annar þeirra hafði skroppið í frí til Noregs
þegar óveðrið skall á 28. desember og því
var Sigþór einn á vakt.
Rekstur á dísilrafstöðvum er sérhæfð
vinna sem krefst þekkingar sem aðeins fáir
starfsmenn Rarik búa yfir. Í Ólafsvík eru
keyrðar átta dísilrafstöðvar og ein vatnsvél.
Sigþór segir að þessar vélar þurfi að vinna
saman til að engir hnökrar séu á orkudreif-
ingu. Þess vegna þarf að vakta vélarnar all-
an sólarhringinn meðan þær eru í notkun.
„Við þurftum að fá mann frá Hornafirði
því einn maður getur ekki vakað í sjö sól-
arhringa,“ sagði Sigþór. „Þegar kom í ljós
að þetta yrði meira en þriggja sólarhringa
törn varð að fá mann á móti mér. Hann
var bara til á Hornafirði. Pétur Unn-
steinsson brást vel við og yfirgaf sína fjöl-
skyldu fyrir áramót til að vinna í Ólafsvík.
Hann kom strax keyrandi og var kominn á
miðnætti aðfaranótt sunnudags, en þá var
Var tvo
sólarhringa
á vakt
SIGÞÓR GUÐBRANDSSON HEFUR STAÐIÐ VAKTINA
SÍÐUSTU DAGA HJÁ RARIK Í ÓLAFSVÍK. EFTIR TVEGGJA
SÓLARHRINGA VAKT KOM LOKS AFLEYSINGARMAÐUR
FRÁ HÖFN Í HORNAFIRÐI, ENDA FÁIR Á LANDINU SEM HAFA
ÞEKKINGU Á AÐ KEYRA DÍSILRAFSTÖÐVARNAR.
Egill Ólafsson egol@mbl.is
Sigþór ásamt konu sinni Sigurbjörgu Kristjánsdóttur.
Sigþór mundar mælana við dísilrafstöðvarnar í Ólafsvík. Vélarnar þarf að vakta allan sólarhringinn.
Þröstur/Skessuhorn