Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Qupperneq 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Qupperneq 59
6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 1. Víð á víða teppi. (10) 4. Það sem gleymist í Galtaskarði? (5) 7. Sönn nái einhvern veginn svíðingnum. (7) 8. Koll helgi í virki. (9) 10. Jú með kviður um tré. (9) 12. Ískur mikils drykkjumanns yfir lútkenndum. (10) 13. Litarefni fyrir tölu er svikið. (6) 14. Styrking útlendings. (5) 15. Blómi úr íþróttafélagi. (5) 16. Er erlent þing með ýfingu? (6) 20. Finnum graf með einni ör og merkjunum. (11) 23. Lita lás í lista lögreglu. (8) 25. Ekkert spænskt fer í laugar á útborgunarborgardögum. (10) 28. Holur fyrir sjófugl eru flottar í byggingum. (9) 29. Vinna iðnaðarmanna á krá einkennist af ofbeldi. (8) 30. Byggðu svæði og iðnaðarhéruð. (8) 32. Kliður nöðru sem hringar sig öðruvísi byggir á skipan. (10) 33. Taugaáfallið sem við fáum á endanum út af efninu. (5) 34. Ljúf við krot með hálfgerð kýli undir bólstri. (12) LÓÐRÉTT 1. Minningar sem geta ruglast. (9) 2. Baks við kró með kexi. (6) 3. Fullfyllið klæðið (5) 4. Far ört með flóknum göldrum. (6) 5. Askur með ís lendir hjá útlenskum. (7) 6. Hæ, með loforð við menntaskóla liggur vegur heim. (8) 8. Hálferlent helstirni fyrir brýnastar. (7) 9. Er ríki að finna hjá þessum lögreglumanni? (8) 11. Vætan frá vargi er sögð valda ósamkomulaginu. (7) 13. Björgum snoturlegum úr loftbelgsförunum út af gabbi. (5) 14. Tegund guðs birtist með því að framkvæma stærð- fræðiaðgerð. (5) 17. Tamína fær búr undir hljóðfæri sitt. (9) 18. Skildingur fyrir röklegar frásagnir sem reynast ekki sannar. (10) 19. Tungumálagagnsemin reynist vera stærðin á raforkuviki. (9) 20. Kunna að meta egg og verðmæti. (8) 21. Ræsir labbandi hrotur. (9) 22. Þær sem eiga marga fugla eru frjóar (8) 24. Einatt með fiskum. (6) 26. Samkynhneigðir elduðu að eigin sögn þegar ólmuðust. (8) 27. Talandi með fram öfugri barsnúru. (8) 31. Yfirgrip taumtaksins. (5) Það hefur verið gaman að fylgjast með Guðmundi Kjartanssyni á hinu fornfræga skákmóti í Hast- ings sem lýkur nú um helgina. Hvílíkur baráttukraftur! Eftir fimm umferðir af tíu var hann kominn með 4 vinninga af fimm og árangur uppá 2728 elo-stig og hafði unnið tvo stórmeistara frá Úkraínu. Hann átti einnig góða sigurmöguleika í skákum sínum í þriðju og fjórðu umferð en mara- þonviðureigninni við Englending- inn Jonathan Hawkins lauk eftir 108 leiki og meira en 8 klst. bar- áttu. Vissulega kom babb í bátinn í sjöttu umferð þegar hann tapaði fyrir Litháanum Sarunas Sulskis en í byrjun þeirra skákar „henti“ Guðmundur þrem peðum í and- stæðing sinn en sveigði svo biskup sinn í vitlausa átt í krítískri stöðu og tapaði. Hann er jafn Hjörvari Steini Grétarssyni, í 9. – 22. sæti af 92 keppendum en Hjörvar hefur ekki verið að fást við jafn öfluga andstæðinga auk þess sem herjað hefur á hann magapest sem varð til þess að hann fékk „½ vinnings- yfirsetu“ á gamlársdag. Margt get- ur þó gerst á lokasprettinum. Samantekt á skak.is sem birt var um áramótin leiddi í ljós að Guðmundur hækkaði meira í stig- um á síðasta ári en flestir íslenskir skákmenn. Það þarf ekki að koma á óvart því hann var iðinn við kol- ann; eftir að hafa teflt á Indlandi í ársbyrjun tók við Reykjavík- urskákmótið, Íslandsmót og þar á eftir átta mánaða dvöl í ýmsum löndum Suður-Ameríku þar sem hann tefldi á fjölmörgum mótum. Á síðasta mótinu sem fram fór í Kosta Ríka varð hann að hætta eftir sjö umferðir til þess að kom- ast heim til Íslands fyrir jólin en hafði þá hlotið 6 ½ vinning. Ekki var jólafríið langt, þann 27. desem- ber hófst Hastings-mótið. Það er ekki víst að stigaháir andstæðingar Guðmundar hafi vit- að að þeir voru að mæta skák- manni í góðri æfingu: Hastings; 5. umferð: Guðmundur Kjartansson – And- reij Vovk ( Úkraínu ) Kóngsindversk vörn 1.d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Rf3 O-O 6. Be2 e5 7. O-O Rc6 8. d5 Re7 9. Re1 Rd7 10. Be3 f5 11. f3 f4 12. Bf2 g5 Fræg lína úr „60 minnisverðum skákum“, að þetta afbrigði leiði óverjandi mátsókn yfir hvítan, er ekki sönn! En þessu trúðu menn samt lengi eða þar til Viktor Kortsnoj tók afbrigðið upp og vann nokkrar frægar skákir árið 1987. 13. Hc1 Kortsnoj lék ýmist 13. b4, 13. Rb5 eða 13. a4. Þessi eðlilegi leik- ur kom þó síðar við sögu hjá hon- um 13. … Rg6 14. Rb5 b6 Kortsnoj sýndi fram á að ef svartur leikur 14. .. a6 kemur 15. Ra7 ásamt –b4 og – c5. 15. b4 a6 16. Rc3 Hf7 17. Rd3 Bf8 18. c5 Hg7 19. cxd6 Bxd6 20. Rb2 Rf6 21. Rc4 Bxb4 22. d6! Bxc3 23. dxc7! Bráðsnjall millileikur sem Guð- mundur hafði tekið með í reikning- inn þegar hann lék 22. d6. 23. … Dxd1 24. Hfxd1 Hxc7 Eftir 24. … Ba5 kemur 25. Hd8+ og 26. d6 og vinnur. 25. Bxb6 Hc6 26. Hxc3 Be6 27. Hdc1 Hb8 28. Ba5 Bd7 29. a3 Kg7 30. Bb4 g4 31. Rd6 Hxc3 32. Bxc3 h5 33. Rf5 Kh7 34. Bb4! Það er erfitt að finna varnir fyr- ir svartan eftir þennan leik. Peð- sóknin á kóngsvæng skilar engu og hrókurinn er á leið inn eftir c- línunni. 34. … Bb5 35. Bxb5 Hxb5 36. Hc7+ Kh8 37. Hc6! Vinnur mann. 37. … a5 38. Be1 Hb1 39. Kf1 Rd7 40. Hxg6 Rc5 41. Hd6 Hb3 42. Bf2 Rd3 43. Bh4 Hxa3 44. Hd7 Kg8 45. Rh6 Kf8 46. Bf6 Ha1 47. Ke2 gxf3 48. gxf3 He1 49. Kd2 – og Vovk gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Guðmundur í banastuði í Hastings Verðlaun eru veitt fyrir krossgátu vikunnar. Senda skal þátttökuseðilinn í um- slagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegis- móum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 6. janúar rennur út á hádegi 11. janúar. Nafn vinningshafa er birt í Sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins 13. janúar. Vinningshafar krossgát- unnar 30. desember eru Kristín Hannesdóttir og Sigrún Helgadóttir, Sólheimum 42, Reykjavík. Þær hljóta í verðlaun bókina Vígroða eftir Vilborgu Dav- íðsdóttur. Forlagið gefur bókina út. KROSSGÁTUVERÐLAUN Nafn Heimilisfang Póstfang
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.