Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013 Manchester United hefur oftast orðið enskurbikarmeistari, ellefu sinnum, síðast 2004.Það er langur þurrkur á mælikvarða Sir Alex Fergusons. Ekkert félag hefur heldur leikið oftar til úrslita um bikarinn, í átján skipti. Arsenal kemur næst með tíu sigra, Tottenham Hotspur átta og Liverpool, Chelsea og Aston Villa hafa sjö sinnum orðið bikarmeistarar í Englandi. Tölfræði Tottenham er merkilegust, félagið hefur aðeins einu sinni lotið í gras í úrslitaleik, gegn Cov- entry City 1987. Everton hefur oftast allra hirt silfr- ið, átta sinnum. Þeir karmellingar hafa hins vegar aðeins fimm sinnum unnið bikarinn. Kallast það ekki neikvæður höfuðstóll? Fyrst var leikið um bikarinn veturinn 1871-72 og fór lið Wanderers þá með sigur af hólmi. Raunar gerðu þeir flandrarar það ekki endasleppt, unnu fimm af fyrstu sjö mótunum. Af öðrum bikarmeist- urum í árdaga má nefna Oxford University, Royal Engineers, Old Etonians, Old Carthusians og Clap- ham Rovers. Leikið var til úrslita hér og þar fyrstu árin en frá árinu 1923 hefur úrslitaleikurinn farið fram á þjóð- arleikvanginum, Wembley. Raunar þurfti að leika á Þúsaldarvellinum í Cardiff frá 2001 til 2006 meðan nýr þjóðarleikvangur var reistur í Lundúnum. Það virtist eiga best við Arsenal sem vann bikarinn í þrí- gang á því tímabili. Hefur ekki séð hann síðan. Ashley Cole sigursælastur Bikarkóngar síðustu ára eru Chelsea sem unnið hafa fjögur af síðustu sex mótum og eru ríkjandi meistarar. Fílabeinsstrendingurinn Didier Drogba vann það einstaka afrek að skora í öllum þessum úr- slitaleikjum. Lengi vel var úrslitaleikurinn endurtekinn lyki honum með jafntefli og síðast þurfti að grípa til þess úrræðis 1993, þegar Arsenal lagði Sheffield Wednesday í end- urteknum leik. Nú efna menn reglum samkvæmt til vítaspyrnukeppni til að skilja sauðina frá höfrunum og hafa úr- slit í tvígang ráðist með þeim hætti, 2005 þegar Arsenal vann Manchester United og 2006 þegar Liverpool hafði bet- ur gegn West Ham United. Sigursælasti leikmaðurinn í sögu bikarsins er enski landsliðsbakvörðurinn Ashley Cole. Hann hefur unnið mótið sjö sinnum á ellefu árum, þrisvar með Arsenal og fjórum sinnum með Chelsea. Peter Schmeichel og Sir Alex Ferguson kampakátir með bikarinn eftir sigur á Newcastle United vorið 1999. Manchester United vann þrennuna góðu það ár. Reuters DJÖFLAR OG DROGBA MANCHESTER UNITED HEFUR OFTAST ORÐIÐ BIKARMEISTARI, 11 SINNUM, EN CHELSEA RÁÐIÐ LÖGUM OG LOFUM Í KEPPNINNI SÍÐUSTU ÁRIN. Bikarmeistarar gegnum tíðina Margir eru á því að þokki elstaknattspyrnumóts í heimi, bikar-keppni enska knattspyrnu- sambandsins, ellegar FA-bikarsins, hafi föln- að á umliðnum árum. Sú var tíðin að öll lið vildu vinna bikarinn og eflaust á það enn við, áherslur hafa á hinn bóginn breyst. Fyrir hnignun þessa virðulega móts hafa menn einkum tilgreint þrjár ástæður. Í fyrsta lagi Meistaradeild Evrópu, hún sogar til sín mun meiri athygli en Evr- ópukeppni meistaraliða sáluga gerði og skyggir um leið á enska bikarinn. Í öðru lagi einokun fjögurra stærstu félag- anna í Englandi undanfarinn aldarfjórðung. Af síðustu 24 mótum hafa Manchester Unit- ed, Liverpool, Arsenal og Chelsea unnið 20. Aðeins Tottenham Hotspur, 1991, Everton 1995, Portsmouth, 2008, og Manchester City, 2011, hafa komist upp á milli. Tottenham er raunar enginn smáklúbbur, heldur ekki Everton og Manchester City hefur á allra síðustu árum orðið ríkara en önnur félög. Með sanngirni má því segja að einu óvæntu tíðindin í enska bikarnum í aldarfjórðung séu sigur Hermanns Hreiðarssonar og félaga í Portsmouth fyrir bráðum fimm árum. And- stæðingurinn það vorið stakk líka í stúf, Car- diff City úr næstefstu deild. Lykilmenn hvíldir Þriðja ástæðan fyrir hnignun keppninnar er sú að undanfarin ár hafa mörg félög, ekki bara þau sterkustu, hvílt sína helstu menn í bikarleikjum. Þróun sem vont virðist vera að vinda ofan af og engum manni hefði hug- kvæmst fyrir tíu til fimmtán árum. Einkum á þetta við um lið sem heyja harða fallbar- áttu enda fjárhagslegur ávinningur af því að hanga í úrvalsdeildinni mjög mikill. En stóru félögin hafa ekki alltaf ráðið lögum og lofum í enska bikarnum. Á árunum 1970 til 1980 gerðist það til dæmis í þrígang að lið úr næstefstu deild (sem þá hét önnur deild eins og allar slíkar deildir ættu að heita) fóru með sigur af hólmi; Sunderland 1973, South- ampton 1976 og West Ham United 1980. Það hefur ekki gerst síðan. Öll unnu þessi lið 1:0-sigra og það voru engir au- kvisar sem gerðu sigurmörkin: Ian Porterfield, Bobby Stokes og Trevor Brooking. Á níunda áratugnum gerðust ævintýrin einnig. Sigur Everton 1984 var upptakturinn að frekari sigrum, tveimur Englandsmeist- aratitlum og sigri í Evrópukepnni bikarhafa. Blessuð sé minning henn- ar! Þá höfðu minni spámenn, Cov- entry City og Wimbledon, hendur á bik- arnum 1987 og 1988 eftir fræga úrslitaleiki gegn Tottenham Hotspur og Liverpool. Líkurnar á því að félag af þeirri stærðar- gráðu hampi bikarnum í vor eru hverfandi. Reuters Fer Aftur-bikarinn STÓRU LIÐIN HEFJA LEIK Í ENSKU BIKARKEPPNINNI Í KNATTSPYRNU UM HELGINA. Í SÖGULEGU SAMHENGI ER ÞAÐ EIN STÆRSTA HELGI VETRARINS. ÞAÐ Á VARLA VIÐ LENGUR. Arsenal lyftir bikarnum árið 2005. Fyrsta liðið til að vinna eftir vítaspyrnukeppni. Ashley Cole, sigursælasti leikmaðurinn í sögu keppninnar, er þriðji frá vinstri. Reuters Michael Owen fagnar sigurmarki sínu í fræknum sigri Liverpool á Arsenal árið 2001. AP Didier Drogba, sem skorað hefur í fjórum úrslitaleikjum með Chelsea, fagnar sigri á Manchester United árið 2007 ásamt Frank Lampard, Claude Makélélé og John Terry. *Úrslitaleikurinn um enska bikarinn er stærsti knattspyrnu-leikur í heimi á eftir úrslitaleik HM - og við eigum hann.Sir Bobby Robson, knattspyrnustjóri bikarmeistara Ipswich Town 1978.BoltinnORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.