Morgunblaðið - 02.02.2013, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2013
Ástandið á Landspítalanum þykir nú
viðráðanlegt. Viðbragðsstjórn spít-
alans ákvað á fundi sínum í gær að
aflétta óvissustigi. Flensan er nú í
hámarki samkvæmt upplýsingum
frá sóttvarnalækni.
Minni aðsókn hefur verið að spít-
alanum undanfarna daga en vant er.
Fleiri rúm eru opin og víða hefur
mönnun verið aukin. Áfram er þó
mikið að gera og voru 28 sjúklingar í
einangrun í gær. Enn er mælst til
þess að aðstandendur takmarki
heimsóknir á spítalann á meðan
flensan er í hámarki.
„Enginn fundur er boðaður í við-
bragðsstjórn en hún verður kölluð
saman ef ástæða þykir til.
Viðbragðsstjórn þakkar öllu
starfsfólki Landspítala fyrir sitt
framlag sem hefur gert það mögu-
legt að halda starfseminni gangandi
við þessar erfiðu aðstæður,“ segir í
tilkynningu frá viðbragðsstjórn.
Landspítali
hefur aflétt
óvissustigi
28 sjúklingar voru
í einangrun í gær
Landspítali Flensan er nú í hámarki
Hæstiréttur hefur mildað refsingu
karlmanns sem sakfelldur var fyrir
þrjár líkamsárásir á fyrrverandi eig-
inkonu sína. Sjö ára sonur þeirra var
viðstaddur tvær árásanna. Mað-
urinn var dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi. Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði áður dæmt manninn í sex mán-
aða fangelsi, en bundið þrjá mánuði
skilorði. Ástæða þess að dómurinn
er mildaður er sú, að Hæstiréttur
taldi eina árásina ekki stórfellda þar
sem vafi var um hvort konan hefði
rifbeinsbrotnað eða marist. Sökum
þess var um að ræða þrjár minni-
háttar líkamsárásir en ekki tvær
minniháttar og eina stórfellda.
Við ákvörðun refsingar leit rétt-
urinn til þess að brotin beindust
gegn fyrrverandi eiginkonu og að
þau voru framin í viðurvist ungs
barns þeirra.
Refsidómur
mildaður
Kjólar í úrvali
50-60% afsláttur
Vertu vinur okkar á facebook
Engjateigur 5•
Sími 581 2141•
www.hjahrafnhildi.is•
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
St. 36-52
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Nýtt nýtt
Kakíjakkar frá 2-BIZ
Verðhrun á útsölu
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið kl. 10-16
Eddufelli 2, sími 557 1730
Lokað
www.rita.is
Litir: Bleikt, grænt. Str. S-XXL
Útsalan á fullu
Allt að 70% afsláttur
Mörkinni 6 - sími 588 5518
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-16
www.topphusid.is
NÆG BÍLASTÆÐI
TOPPV
ÖRUR -
TOPPÞJ
ÓNUST
A
Evonia stuðlar að auknum hárvexti
með því að færa hárrótunum styrk
til vaxtar. Evonia er þrungið
bætiefnum sem næra hárið og
gera það gróskumeira.
Evonia
www.birkiaska.is
NÝJAR SENDINGAR FRÁ
GERRY WEBER OG TAIFUN
skoðaðu laxdal.is/montevideo og berlin
ÚTSÖLUVÖRUR Á 50-60% AFSLÆTTI
VERTU
VINUR Á
FACEBOOK
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Reykjavík
Hótel Natura (Loftleiðir),
þriðjudaginn 5. febrúar kl. 20:00.
Akureyri
Golfskálinn Jaðri,
föstudaginn 8. febrúar kl. 20:00.
Opnir fundir
með úti-
vistarfólki
Samtök útivistarfélaga, SAMÚT, efna til
opinna funda með útivistarfólki til að ræða
mál sem efst eru á baugi þessa stundina,
m.a. frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga
sem nú liggur fyrir Alþingi.
Á fundunum munu fulltrúar stjórnmála-
flokkanna m.a. svara þessum spurningum:
» Er það stefna flokksins að náttúruverndar-
lögin verði samþykkt án þess að tekið hafi
verið tillit til athugsemda frá útivistar-
félögum?
» Er það stefna flokksins að tryggja rétt alls
almennings til að ferðast um þjóðgarða og
þjóðlendur óháð ferðamáta?
» Er það stefna flokksins að samþykkja
lokað einkaðgengi að náttúruperlum eða
þjóðlendum?
Umræður og spurningar úr sal.
Allir velkomnir!Samtök útivistarfélaga - SAMÚT
mbl.is
alltaf - allstaðar
Jónas Hvannberg
bæklunarskurðlæknir
lést fimmtudaginn 31.
janúar sl. á líkn-
ardeild Landspítalans
í Kópavogi, 35 ára að
aldri.
Jónas fæddist í
Reykjavík 5. janúar
1978. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
árið 1998, kandídats-
prófi í læknisfræði frá
Háskóla Íslands árið
2006 og sérfræðinámi í bækl-
unarskurðlækningum árið 2012.
Hann stundaði doktorsnám við
Háskólann í Gautaborg frá árinu
2011.
Jónas starfaði
lengst af á Landspít-
alanum, en einnig á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri. Auk
þess sem hann starf-
aði víðs vegar um
landið sem afleys-
ingalæknir. Haustið
2009 hélt Jónas til
Gautaborgar í Sví-
þjóð og starfaði á
Sahlgrenska sjúkra-
húsinu þar til hann
lést.
Eiginkona Jónasar er Annika
Wiel Hvannberg. Foreldrar Jón-
asar eru Þorbjörg Guðmunds-
dóttir og Jónas Hvannberg. Bróð-
ir hans er Bjarki Hvannberg.
Andlát
Jónas Hvannberg
bæklunarskurðlæknir
mbl.is