Morgunblaðið - 02.02.2013, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2013
ÚR BÆJARLÍFINU
Björn Björnsson
Sauðárkrókur
Sá ótíðarkafli sem dunið hefur á
landsmönnum undanfarna daga
sneiddi að mestu hjá Skagafirði, og
hefur veðurfar það sem af er ári verið
þokkalega gott. Enda er nú dag tekið
að lengja og ekki sortnaði yfir með
góðri niðurstöðu ICESAVE-málsins.
Hér hefur nú hver viðmælandi ná-
kvæmlega sömu skoðun og forsætis-
ráðherra, sem í hjarta sínu vissi allan
tímann að óbilgjarnar kröfur væru
lögleysa og sigur mundi vinnast,
enda öll lög með Íslendingum.
Eftir að Alexandersflugvöllur
hefur staðið ónotaður um margra
mánaða skeið, hófst aftur áætl-
unarflug til Sauðárkróks nú í vikunni,
Skagfirðingum til mikillar ánægju,
og þó að fyrsta ferðin hafi ekki geng-
ið alveg samkvæmt áætlun hugga
menn sig við að fall er fararheill.
Þó margt sé á uppleið er þó
ýmislegt sem er til lítillar ánægju, og
þannig upplýsti sveitarstjóri Ásta
Pálmadóttir, að kostnaður við snjó-
mokstur á liðnu ári hefði verið nánast
þrefaldur miðað við undanfarin ár, og
það sem af væri vetri væri kostn-
aðurinn kominn í um tuttugu millj-
ónir.
Skagfirðingar eru ekki hressir í
andanum þessa dagana vegna þess
hve fjölmörg störf eru að hverfa úr
héraði og nægir þar að nefna að Rík-
harður Másson sýslumaður hefur nú
vegna aldurs látið af störfum, en
embættinu a.m.k. næsta ár þjónað af
sýslumanninum á Blönduósi. Þá hef-
ur umdæmisstjóri Vegagerðarinnar
verið fluttur til Akureyrar.
Tugir starfa við Heilsustofn-
unina, Fjölbrautaskólann, Háskólann
á Hólum, svo einhverjar stofnanir
séu nefndar, hafa tapast og eins og
víðar á landinu gerist um þessar
mundir, hafa ungir Skagfirðingar ver-
ið að fæðast í bílsætum hingað og
þangað um héraðið, þegar ófært hefur
verið til Akureyrar, en fyrir er lagt að
flytja allar fæðandi konur þangað.
Sveitarstjóri nefnir að „sunn-
anþjónustan“ færist sífellt í vöxt og
nefnir sem dæmi að ekki megi heil-
brigðisfulltrúi sveitarfélagsins lengur
taka sýni t.d. vegna urðunar sorps,
heldur verði að koma til sérstakur
fulltrúi að sunnan, en síðan berist
reikningur upp á einhver hundruð
þúsunda, enda sæki miðstýring og
stofnanavald Reykjavíkursvæðisins
sífellt í sig veðrið.
Ný viðbygging við Árskóla er í
fullum gangi, og var nýlega samþykkt
í sveitarstjórn að ganga til samninga
við Kaupfélag Skagfirðinga um sex
hundruð milljón króna lán til fram-
kvæmdanna. Lánið ber enga vexti en
fylgir byggingavísitölu þar til ári eftir
að framkvæmdum lýkur, en þá verður
greiddur helmingur þess, en 300 millj-
ónir lánaðar áfram á sömu kjörum til
fimm ára.
Á hafnarsvæðinu er einnig mik-
ið um að vera, unnið er að gerð nýrrar
smábátahafnar, sem tekin verður í
notkun 15. júní næstkomandi. Tilboð í
flotbryggjurnar verða opnuð í næstu
viku. Þá er Ísfell hf. að reisa glæsi-
legt netaverkstæði á hafnarsvæðinu
og sagði Rúnar Kristjánsson neta-
gerðarmeistari að um ámóta bylt-
ingu yrði að ræða við flutning í nýja
húsið og þegar flutt var úr torfbæ í
raflýst og upphitað nútímahúsnæði.
Nýja verkstæðið er um 600 m² og
með öllu sem til þarf vegna starfs
sem þar á að fara fram. Rúnar áætl-
aði kostnað við bygginguna um 100
milljónir og er afhending hússins
áætluð 22. mars nk.
Farskólinn, miðstöð símenntunar
á Norðurlandi vestra, fagnar 20 ára
afmæli á þessu ári og sendir af því til-
efni m.a. glæsilegan kynningarbækl-
ing um skólann og það námsframboð
sem þar er. Er nánast með ólíkindum
hversu fjölbreytt og yfirgripsmikið
starf fer fram í þessari stofnun, sem
sannanlega hefur fest sig sessi og
sannað ágæti sitt.
Skagfirðingar blóta þorrann
sem ákaflegast með þjóðlegum
heimafengnum mat og kannski
drykk líka og skemmtiatriðum, þar
sem tíminn frá síðasta þorrablóti er
tekinn saman í revíuform og stund-
um víst farið á ystu nöf, en vonandi
komast allir ósárir og í góðu skapi frá
þeim leik.
Mannlífið býsna gott í
Skagafirði þrátt fyrir allt
Ný starfsstöð Ísfell hf. er að reisa glæsilegt netaverkstæði á hafnarsvæð-
inu. Hér má sjá Rúnar Kristjánsson netagerðameistara að störfum.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á
síðustu dögum handtekið sjö öku-
menn sem óku undir áhrifum fíkni-
efna. Um var að ræða sex karlmenn
og eina konu.
„Kannabislyktin af einum þeirra
var beinlínis yfirþyrmandi þegar
hann var færður inn í lögreglu-
bifreið,“ segir í frétt frá lögregl-
unni.
Við húsleit á heimili annars öku-
manns fundu lögreglumenn kanna-
bisefni í skúffu, poka með hvítu efni
í ísskáp, stera og steratöflur. Þriðji
ökumaðurinn, af þessum sjö, var
með kannabis á sér þegar hann var
handtekinn. Í fjórðu bifreiðinni,
sem stöðvuð var vegna fíkniefna-
aksturs ökumanns, reyndist annar
tveggja farþega vera með kannabis
í fórum sínum. Ökumennirnir sjö
sem handteknir voru eru á aldr-
inum frá sautján ára til tæplega þrí-
tugs.
Þá voru fjórir ökumenn teknir
grunaðir um akstur undir áhrifum
fíkniefna í Reykjavík í fyrrinótt.
Morgunblaðið/Júlíus
Margir teknir fyrir
fíkniefnaakstur
Þriðjudaginn 5. febrúar klukkan
12:00 mun Heimssýn standa fyrir
opnum fundi um framtíð aðild-
arumsóknar Íslands að ESB í Nor-
ræna húsinu.
Ásmundur Einar Daðason, for-
maður Heimssýnar, setur fundinn,
en fundarstjóri verður Páll Magn-
ússon útvarpsstjóri.
Talsmenn stjórnmálaflokkanna
munu flytja framsöguræður en þeir
eru:
Árni Þór Sigurðsson – þing-
flokksformaður Vinstri hreyfing-
arinnar - græns framboðs, Bjarni
Benediktsson – formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Guðmundur Stein-
grímsson – formaður Bjartrar
framtíðar, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson – formaður Framsókn-
arflokksins og nýkjörinn formaður
Samfylkingarinnar, en kjöri hans
verður lýst í dag.
Rætt um framtíð
aðildarumsóknar
Raddir fólksins boða til útifundar
um stjórnarskrármálið á Aust-
urvelli laugardaginn 2. febrúar,
kl.15:00.
Ræðumenn verða Katrín Fjeld-
sted læknir og Þorvaldur Gylfason,
prófessor. Fundarstjóri er Sigríður
Ólafsdóttir, lífefnafræðingur
Í lok fundar mun Hróshópurinn
veita grasrótarhreyfingum og sjálf-
boðaliðum sem hafa unnið gegn
Icevave-málinu viðurkenningu.
Fundur á Austurvelli
STUTT
Góð hóteltilboð eru í boði,
t.d. 7 nætur á 5 stjörnu hóteli
frá ca. 196 evrum með
morgunmat og kvöldverði
(Tveir í tvöföldu herbergi).
KEF - AYT AYT - KEF ISK
14.02.2013 21.02.2013 ISK 58‘000*
21.02.2013 28.02.2013 ISK 62‘000*
28.02.2013 07.03.2013 ISK 68‘000*
07.03.2013 14.03.2013 ISK 58‘000*
14.03.2013 21.03.2013 ISK 58‘000*
21.03.2013 28.03.2013 ISK 62‘000*
28.03.2013 04.04.2013 ISK 62‘000*
Þjónustudeild: 5 711 888
www.oska-travel.is
ÓTRÚLEGT TILBOÐ - FLUG KEFLAVÍK - ANTALYA
TYRKLAND
58.000KR
FRÁ
AFSLÁTTARKÓÐI: INF132MB
* Fæst ekki endurgreitt / fæst ekki skipt - Verð fyrir einn fram og til baka. Bókunar-og fluggjöld innifalin,
að undanskildum eldsneytis- og alþjóðagjöldum. Aðrar flugsamsetningar ekki mögulegar.
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CCFlax
Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum
aldri og einkennum breytingaskeiðs
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið
lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg
minni fitumassa en þær konur sem skortir
eða hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Víði.
www.celsus.is
Mulin hörfræ – Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
Slegið í gegn í vinsældum,
frábær árangur!
Stuðlar að hormónajafnvægi og vellíðan.
Talið gott við bjúg og vökvasöfnun, styrkir
þvagfærakerfið. Fjölbreyttar trefjar, hreinsa
og tryggja góða starfsemi ristilsins.
Lækkar kólestrólfitu, ríkt af Omega-3