Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.2. 2013
Í viðtali í Sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins í dag greinir Bryndís
Ásmundsdóttir frá því þegar hún
var flutt af kvennadeild Landspít-
ala - háskólasjúkrahúss yfir á geð-
deild eftir að hafa orðið fyrir miklu
áfalli þegar hún greindist með blóð-
tappa seint á meðgöngu. Áfallið
sem hún varð fyrir þegar hún gerði
sér grein fyrir bágum aðbúnaði
geðdeildarinnar og hrörlegu um-
hverfinu þar var ekki síðra. Engum
dylst að geðdeild Landspítalans er
fjársvelt líkt og margar aðrar
deildir spítalans. Á það hefur
margoft verið bent, og ástæða til að
benda á enn á ný hér á þessum
vettvangi, að ein af ástæðunum fyr-
ir því hversu illa geðdeildin er búin
er sú að geðdeildir eiga jafnan fáa
vini. Þeir sem fá aðhlynningu á
geðdeild eru ólíklegri til að gerast
baráttumenn fyrir bættum aðbún-
aði sjúklinga en þeir sem fengið
hafa aðhlynningu á deildum þar
sem tekist er á við annars konar
sjúkdóma. Skömmin er sorglegur
fylgifiskur geðsjúkdóma enn í dag.
Auðvitað ætti það ekki að þurfa að
vera þannig, en líklega taka allar
breytingar tíma, líka breytingar í
átt til þess að þeir sem hafa þurft
að leggjast inn á geðdeild geti bor-
ið höfuðið hátt.
Sagan sem Bryndís Ásmunds-
dóttir og Fjölnir Þorgeirsson rekja
í viðtali í blaðinu er líka umhugs-
unarverð sökum þess sem fram
kemur um að blóðtappinn sem hún
þjáðist af var ranggreindur. Hefði
hún haldið á heiðina með sýklalyf í
poka eins og henni var uppálagt
þarf vart að spyrja að leikslokum.
Sögur eins og þessi minna okkur
á að heilsan er það dýrmætasta
sem við eigum. Heilsu má ei glata,
minnir meistari Egner á í Dýr-
unum í Hálsaskógi, og það eru orð
að sönnu. Og ekki viljum við að nið-
urskurður, skömm og fjárskortur
verði til þess að heilsa – og manns-
líf – glatist. Það er mikið í húfi.
RABBIÐ
Heilsu má ei glata
Eyrún Magnúsdóttir
Alþingi er með allra líflegustu vinnustöðum í þessu landi, þar sem vont getur verið að leita skjóls fyrir vökulu auga fjölmiðlanna. Margvísleg mál brenna á
þingmönnum og stundum getur verið gott að stinga saman nefjum í einrúmi líkt og Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, og fyrrverandi vopnabróðir
hans, Þráinn Bertelsson, sem nú bindur trúss sitt við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, gerðu fyrir helgi. Ekki er gott að segja hvort vantrauststillaga
Þórs á ríkisstjórnina hafi verið til umræðu á þessum fundi en í ljósi atburða vikunnar er það ekki ósennilegt. Hann dró tillöguna síðar til baka en íhugar
að leggja hana aftur fram við annað tækifæri. Gjörningur þessi mæltist misjafnlega fyrir, eins og gengur, meðal annars þótti Jóhönnu Sigurðardóttur for-
sætisráðherra hann ekki gáfulegur. Já, að treysta eða ekki treysta – þar er efinn. orri@mbl.is
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
OF EÐA VAN TRAUST
MIKIÐ MÆDDI Á ÞÓR SAARI, ÞINGMANNI HREYFINGARINNAR, Í VIKUNNI EN HANN LAGÐI FRAM VANTRAUSTS-
TILLÖGU Á RÍKISSTJÓRNINA EN DRÓ HANA SÍÐAN TIL BAKA. HANN ÍHUGAR AÐ LEGGJA FRAM NÝJA TILLÖGU.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Tónleikar.
Hvar? Salurinn í Kópavogi.
Hvenær? Sunnudag kl. 17.
Nánar? Rósalind Gísladóttir messó-
sópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir
píanóleikari. Ljóð og lög úr söngleikjum.
Söngur Rósalindar
Hvað? Tónleikar.
Hvar? Bíóhöllin
Akranesi.
Hvenær? Laug-
ardagskvöld kl. 21.
Nánar Hlaðinn ís-
lenskum tónlistarverðlaunum frá því í
vikunni. Sérstakur gestur Pétur Ben.
Ásgeir Trausti
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Leikrit. Frumsýning.
Hvar? Stóra svið Þjóðleikhússins.
Hvenær? Laugardagskvöld kl. 20.
Nánar Kraftmikið nýtt, breskt verð-
launaverk um átök siðmenningarinnar
og hins frumstæða nú á okkar dögum.
Fyrirheitna landið
Hvað? Leikrit.
Hvar? Borgarleikhús.
Hvenær? Laugardag
og sunnudag kl. 20.
Nánar Gunnlaugs
saga er ein af þekkt-
ustu Íslendingasög-
unum. Benedikt Erlingsson og Halldóra
Geirharðsdóttir fara á kostum.
Ormstunga
Hvað? Tónleikar Ljótu hálfvitanna.
Hvar? Græni hatturinn, Akureyri.
Hvenær? Laugardag kl. 22.
Hálfvitar kveðja þorrann
Hvað? Norðurlandamót 15-23 ára.
Hvar? Ármannsheimilið.
Hvenær? Laugardag kl. 10.00-15.30.
Nánar Meðal keppenda er Júlían Jó-
hann Karl Jóhannsson, heimsmeistari
unglinga í réttstöðulyftu í fyrra.
Kraftlyftingar
* Forsíðumyndina tók Árni Sæberg