Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 51
Munir á sýningunni Silfur Íslands sem opnuð verður í dag.
Þjóðminjasafnið telst stofnað 24. febrúar 1863. Þann dag færði JónÁrnason stiftsbókavörður stiftsyfirvöldum bréf frá Helga Sigurðs-syni á Jörfa í Kolbeinsstaðahreppi þar sem hann býðst til að gefa Ís-
landi 15 gripi með þeirri ósk „að þeir verði fyrsti vísir til safns íslenskra
fornmenja“. Íslenskir gripir höfðu fram að þessu einkum verið varðveittir í
dönskum söfnum. Þórður Jónasson stiftamtmaður og Helgi Thordersen
biskup þágu gjöfina skriflega samdægurs. Þeir fólu Jóni Árnasyni umsjón
safnsins en hálfu ári seinna fékk hann að ráða Sigurð Guðmundsson mál-
ara sem annan umsjónarmann, en Sigurður hafði fyrstur sett fram hug-
mynd um stofnun safns af þessum toga.
Safnið var oftast nefnt Forngripasafnið fram til 1911 að það hlaut lög-
formlega það nafn sem enn gildir. Það var fyrstu áratugina til húsa á ýms-
um háaloftum, Dómkirkju, Tukthúsi, Alþingishúsi og Landsbanka uns það
fékk inni í risi Landsbókasafns við Hverfisgötu (nú Þjóðmenningarhúsi)
1908 og var þar fulla fjóra áratugi. Við stofnun lýðveldis 1944 ákvað Al-
þingi að reisa safninu eigið hús og var flutt í það um 1950.
Ráðist í miklar endurbætur
Á eftir þeim Jóni Árnasyni og Sigurði Guðmundssyni voru forstöðumenn
safnsins þeir Sigurður Vigfússon gullsmiður, Pálmi Pálsson mennta-
skólakennari og Jón Jakobsson bókavörður. Árið 1907 voru fyrst sett lög
um verndun fornminja og hömlur við að þær væru fluttar úr landi. Um leið
var Matthías Þórðarson skipaður þjóðminjavörður og gegndi því starfi í
fjóra áratugi. Árið 1947 tók Kristján Eldjárn við embætti þjóðminjavarðar
og gegndi því uns hann var kjörinn forseti Íslands árið 1968. Eftirmaður
hans var Þór Magnússon sem gegndi starfinu í 32 ár að undanskildum
tveimur árum þegar Guðmundur Magnússon sagnfræðingur gegndi starf-
inu. Árið 2000 tók Margrét Hallgrímsdóttir við embætti þjóðminjavarðar.
Árið 1998 var ráðist í gagngera viðgerð og breytingar á safnhúsinu við
Suðurgötu. Allir gripir voru fluttir í vandaðar geymslur, en starfsfólk fékk
aðstöðu á tveimur stöðum í Kópavogi og Garðabæ. Á meðan framkvæmdir
við safnhúsið stóðu yfir var öll önnur starfsemi Þjóðminjasafnsins í fullum
gangi og átti safnið hlut að ýmsum sérsýningum hérlendis sem erlendis.
Eftir viðamiklar endurbætur og endurskoðun á öllu innra starfi safnsins
var opnað nýuppgert Þjóðminjasafn með nýjum grunnsýningum og sérsýn-
ingum á ný hinn 1. september 2004 og árið 2006 var Setberg við hlið Safn-
hússins tekið í notkun fyrir starfsemi safnsins og heimilda- og bókasafn
sem er aðgengilegt fyrir nemendur almenning. Starfsemi safnsins hefur
blómstrað frá þeim tíma með afar fjölbreyttu starfi og hlotið ýmsar við-
urkenningar.
Fimmtán gripir
urðu fyrsti vísir
24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
hundruð þúsund gesta. Þar af er liðlega
helmingurinn útlendingar.
„Við finnum að það er alltaf meira og
meira líf á Þjóðminjasafninu. Hér nýtur fólk
þess að vera til. Þetta er að verða eins og á
söfnum erlendis, það er fjölskyldustemning,
líf og fjör. Við fáum til dæmis stöðugt meira
af ungu fjölskyldufólki sem er mjög ánægju-
leg þróun. Þá eru nemar, þar á meðal list-
og hönnunarnemar ákaflega duglegir að
sækja safnið heim og sækja sér innblástur.
Eins handverksfólk. Við náum þegar til mik-
ils og breiðs fjölda en viljum samt gera
ennþá betur og vil ég nota þetta tækifæri til
að hvetja alla, ekki síst þá sem eru mikið að
flýta sér í borginni, til að gefa sér tíma til að
líta við hjá okkur,“ segir þjóðminjavörður.
Víðsýni Vigdísar
Svo ná megi til sem flestra í tilefni af afmæl-
inu var riti, Þjóðminjasafnið 150 ára, dreift
inn á öll heimili í landinu á dögunum. Þar
eru fjölbreyttar sýningar kynntar og fjallað
vítt og breitt um starfsemi safnsins.
Margrét er hæstánægð með starf afmæl-
isnefndar sem hún fékk til liðs við safnið til
að skipuleggja hátíðahöldin og horfa til
framtíðar. „Afmælisnefndin hefur unnið að
áhugaverðum áherslum á afmælisárinu sem
tileinkað er æskunni og samvinnu almennt.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for-
seti Íslands, er formaður nefndarinnar og
hefur verið okkur mikil hvatning. Við höfum
notið góðs af víðsýni frú Vigdísar og menn-
ingarlegri hugsun. Einnig hefur Sverrir
Kristinsson, formaður vinafélags safnsins,
Minja og sögu, unnið náið með nefndinni og
deilt með henni áhugaverðri sýn. Í þessu
sambandi skipta nýju safnalögin líka miklu
máli en fyrir vikið komum við út sem sterk-
ari stofnun fyrir samfélagið. Það skiptir höf-
uðmáli – söfn eru ekki til fyrir sig sjálf,
heldur þjóðina.“
Margrét segir starfsmenn safnsins heldur
ekki liggja á sínu liði. „Starfsmenn hafa allir
sem einn lagst á árarnar á þessu merkisári
og unnið ósérhlífið starf með fagmennskuna
að leiðarljósi. Fagmennska er auðvitað ekk-
ert annað en vandvirkni og af henni á starfs-
fólk safnsins nóg. Það er engin tilviljun að
Þjóðminjasafnið hefur hlotið ýmsar við-
urkenningar á síðustu árum, fyrir endurbæt-
urnar á safninu, aðgengismál og vinnuvernd.
Af þeim árangri erum við stolt. Safn er
aldrei sterkara en veikasti hlekkurinn.“
Starfsmenn Þjóðminjasafnsins eru í óða-önn að setja upp sjálfa afmælissýn-inguna í Bogasalnum þegar sendinefnd
frá Morgunblaðinu ber að garði. Silfur Ís-
lands kallast hún og verður opnuð í dag,
sunnudag, kl. 15. Svo sokkið er fólk niður að
það lítur varla upp úr verkefnum sínum. Inni
í glerrými í salnum baðar sjálfur hönnuður
sýningarinnar, Steinunn Sigurðardóttir, út
öllum öngum. „Mikið tekur þú þig vel út í
þessu búri,“ segir Ragnar Axelsson ljósmynd-
ari laufléttur á brún. „Nú er bara að fylla það
af vatni.“ Þau skellihlæja.
Á sýningunni eru sýndir silfurgripir af
ýmsu tagi, skart, kirkjuáhöld og borðbún-
aður. Allt gripir smíðaðir af íslenskum silfur-
og gullsmiðum allt frá miðöldum og fram á
nítjándu öld. Lögð er áhersla á handverkið,
kunnáttuna, dýrmæti efnisins og hinar mis-
munandi aðferðir svo sem víravirki, loftverk,
drifsmíð og steypu. Silfur hefur tengst safn-
inu frá upphafi og hér gefst kostur á að skoða
silfursjóð þess auk gripa sem fengnir hafa
verið að láni frá kirkjum á landsbyggðinni.
Sýndir verða hátt í tvö þúsund gripir sem
er svipaður fjöldi og á grunnsýningu safns-
ins. „Þetta eru mjög fögur listaverk sem ættu
að veita mörgum innblástur,“ segir Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður en síðar á
árinu kemur út bók eftir Þór Magnússon,
fyrrverandi þjóðminjavörð, um silfur Íslands
en hann hefur einmitt varið stórum hluta af
sinni starfsævi í rannsóknir á því sviði.
Sjálf er Margrét að leggja lokahönd á bók
um sögu, starfsemi og áherslur Þjóðminja-
safnsins en hún byggist að hluta á pistlum
sem Margrét skrifaði fyrir Sunnudagsmogg-
ann. Bókin mun koma út á safnadaginn í júlí.
Í Horninu verður einnig opnuð í dag sýn-
ingin Silfursmiður í hjáverkum, þar sem að-
stæðum silfursmiðanna er lýst og sjónum
beint að verkstæði Kristófers Péturssonar á
Kúludalsá, sem var mikilvirkur silfursmiður
á sinni tíð. Kristófer átti aðeins fjögurra mán-
aða nám í greininni að baki, enda var hann
fyrst og fremst bóndi, sem stundaði silf-
ursmíði í hjáverkum. En sköpunarþörfin var
rík. Verkstæði Kristófers er varðveitt í Þjóð-
minjsafninu með öllum þeim áhöldum sem
þurfti til smíðanna.
Ljósmyndir frá 1970-90
Í Myndasalnum er nú sýnt yfirlit af ljós-
myndum fjórtán íslenskra ljósmyndara frá á
árunum 1970-90. Sýningunni lýkur 26. maí og
8. júní tekur við sýning á verkum Sigfúsar
Eymundssonar sem var frumkvöðull í ljós-
myndun á Íslandi. Á Veggnum stendur nú yf-
ir sýning á ljósmyndum Harðar Geirssonar.
Á Torginu verða fjölbreyttar sýningar á af-
mælisárinu en þær standa að jafnaði í styttri
tíma. Má þar nefna sýningu um Minjar og
sögu vinafélag safnsins. Þá er í forsal á þriðju
hæð í gangi sýning sem nemendur í safn-
afræði við Háskóla Íslands hafa unnið í sam-
starfi við starfsmenn safnsins. Nefnist hún
Bak við tjöldin og fjallar um tilurð og eðli
safna og þann leyndarhjúp sem er yfir safn-
gripum og fortíðinni.
Loks er ónefnd grunnsýning Þjóðminja-
safnsins, Þjóð verður til, en hún er hugsuð
sem ferðalag í gegnum tímann sem hefst í
knerri landnámsmanns sem sigldi yfir opið
haf til nýrra heima og lýkur í flughöfn nú-
tímans, hliði Íslendinga að umheiminum.
Við þetta má bæta að í kvöld, sunnudags-
kvöld, kl. 21:10 verður sýnd heimildarmynd
um Þjóðminjasafnið, Lífið í safninu, á RÚV.
Þá efna Danir til málþings ytra um starf-
semi Þjóðminjasafnsins dagana 1. til 3. mars,
Hátt í tvö þúsund silfurgripir á afmælissýningu
Hér getur að líta muni sem verða á sýningunni Silfur Íslands.
11-12.30 Barnaleiðsögn með börn-
um í þjóðbúningum. Tíu börn segja
gestum frá uppáhaldsgripnum sínum.
12-12.30 Ungir ballettdansarar
skemmta.
12.30-14 Listasmiðja, börn teikna
uppáhaldsgripinn sinn.
13-13.30 Sigurvegarar „Dans, dans,
dans“ dansa sigurdansinn sinn.
13.30-14 Þrjátíu ungir fiðluleikarar
spila og syngja afmælissönginn með
gestum.
15 Formleg opnun sýningarinnar Silf-
ur Íslands í Bogasal. Kvennakór Há-
skóla Íslands syngur ásamt táknmáls-
túlki.
18.30-19 Óvænt atriði með Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð.
19-20.30 Ungir tónlistarmenn spila
víðsvegar um safnið. Kammerhópar
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og
söngtríóið Mr. Norrington skemmta
gestum og skapa stemningu í kringum
safngripi.
20.30-21 Ylja skemmtir í Myndasal.
21-21.30 Hjaltalín spilar í Myndasal.
DAGSKRÁIN
24. FEBRÚAR