Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.2. 2013 Bryndís „Hvernig hittumst við? Þetta var svolítið sérstakt. Ég átti líkamsræktarkort í World Class en hafði ekki komið þangað lengi. Þennan dag, mér til undrunar, var ég skyndilega búin að setja dótið ofan í tösku og komin á bílastæðið í Laugum en allajafna æfi ég í stöðinni á Seltjarnarnesi. Eftir æf- ingu breytti ég svo enn frekar út af van- anum og ákvað að fara í sundlaugina. Þar í pottinum var fyrir Fjölnir, með syni sínum, Ólíver, og föður.“ Fjölnir „Þarna höfðum við ekki hist í líklega um tíu ár, en við vorum vel málkunnug á ár- um áður og alltaf hlýr kunningsskapur okkar á milli. Þegar hér var komið sögu vildi Ólíver ólmur fá mig með í rennibrautina og úr varð að ég skildi hana eftir með pabba. Ég held að hann hafi tæklað þetta mál fyrir mig því þegar ég kem til baka eru þau sposk á svip- inn og pabbi fer upp úr með Ólíver. Við Bryndís fórum í gufuna og höldum áfram að spjalla. Nei, nei, ég lofa, það gerðist ekkert í gufunni og í raun var ekkert annað í loftinu en gott vinaspjall eftir að hafa ekki orðið á vegi hvort annars í allan þennan tíma.“ Höfðuð þið fylgst með lífi hvort annars þennan tíma sem þið höfðuð ekki hist? Bryndís „Ég var nú ekki mikið inni í því hvað hafði verið í gangi hjá Fjölni. Ég vissi í raun ekkert. Nema jú, að þú varst í hest- unum. En lítið meira. Svo komst ég að raun um að það er ótrúlegt hvað þessi maður hef- ur afkastað miklu. Hvað ertu ekki búinn að gera Fjölnir?“ Fjölnir „Bryndís vissi alveg hvað ég var bú- inn að vera að gera. Hún vill bara ekki segja það.“ Bryndís „Nei, ha? Eins og hvað?“ Fjölnir „Ja, bara eins og hverjar kærust- urnar mínar höfðu verið.“ (Innskot blaðamanns: Hver vissi það ekki Fjölnir?) Bryndís „Já, nákvæmlega, það vissu allir. Jújú, auðvitað var maður með puttann á púlsinum með það.“ Fjölnir „Ég veit ekki hvort því er trúað en ég reyndi samt gjarnan að láta lítið fyrir mér fara og hvað varðar Séð og heyrt átti ég gott samstarf við þá, þannig að ég fékk að vera í friði gegn því að koma í viðtal á ákveðnum tímapunkti. Upphaflega flyt ég hins vegar í sveitina til að fá frið. Þá var ég búinn að fá nóg af smjatti og veseni. Þetta er of lítið land til að vera mikið í blöðunum. En ég var alltaf í sveit sem barn, á Núpi í Fljótshlíð, öll sumur og fór þangað um helg- ar. Ég er sveitastrákur sem vildi verða bóndi og árið 2001 lét ég þann draum rætast, flutti í Landeyjar og hellti mér alfarið út í hesta- mennskuna. Ég var þar í fimm ár. Vitaskuld hafði ég fylgst út undan mér með Bryndísi. Ég vissi að hún var að leika, sá hana í sjón- varpinu og til dæmis að hún var flutt norður í land til að leika þar. Auðvitað væri gaman ef við Bryndís ættum lengri sögu saman. Að við hefðum byrjað saman fyrir 17 árum. Þá ættum við heldur ekki börn út um allar triss- ur en það er bara þannig með hana Bryndísi að hún er með alveg skelfilegan smekk á karlmönnum og endar því núna með mig – mann á gamalsaldri.“ Og hvað segir þú Bryndís um smekk Fjölnis á kvenfólki? Hrífst hann bara af söngkonum eða hvað? Fjölnir „Ég ætla að fá að grípa inn í þessa spurningu og taka fram að Bryndís er eina söngkonan sem ég hef verið með. Hinar kunnu ekkert að syngja.“ Missti áhugann á Bryndísi Aftur að tilhugalífinu. Hestamaðurinn Fjölnir þarf fljótlega eftir sundlaugaferðina að skreppa utan til að kenna reiðmennsku. Ein- hverra hluta vegna þvælist geisladiskur í hans hendur sem inniheldur lög úr Söngva- keppni sjónvarps það árið og hann hleður lögunum inn á símann sinn. Hann festist í að spila sama lagið aftur og aftur í ferðinni og áttar sig ekki á að það er lagið sem Bryndís söng í keppninni; Segðu mér. Undarlegar til- viljanir hafa mótað tilveru þeirra saman, ým- iss konar hugboð, sem víst er að björguðu lífi Bryndísar en þau segjast samt ekki hafa gleymt því að taka sig ekki alvarlega. Bæta við að þau hafi verið hlæjandi frá því að þau hittust fyrst. Geti ekki hætt. Bryndís „Það er svo margt skemmtilegt sem var hluti af okkar tilhugalífi. Ég var eins og unglingsstelpa og fékk í magann.“ Fjölnir „Enda hafði ég tekið hana á löpp þegar hún var kannski 19 ára. Þá bauð ég henni upp á drykk og hún drakk hann og sagði svo bara „bæ, bæ“ og fór. Hún reynd- ar kveikti sér líka í sígarettu og þá datt Tuttugu ára gömul ástarsaga FJÖLNIR ÞORGEIRSSON OG BRYNDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR HAFA VERIÐ SAMAN Í EITT OG HÁLFT ÁR. Á ÞEIM TÍMA HAFA ÞAU EIGNAST DRENG, GENGIÐ Í GEGNUM ALVARLEG VEIKINDI BRYNDÍSAR SEM FÉKK BLÓÐTAPPA Í LUNGU Á MEÐGÖNGU. ÞÁ HAFA ÞAU FLÚIÐ AF GEÐDEILD. Texti: Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is „Frá því að við hittumst fyrst sem unglingar var alltaf ákaflega hlýtt á milli okkar. Og við getum rifjað upp ýmis atvik og ég man hvað mér hlýnaði alltaf allri að innan þegar ég rakst á hann en Fjölnir var bara auðvitað alltaf á föstu,“ segir Bryndís Ásmundsdóttir um öll þau ár sem þau Fjölnir voru laumuskotin hvort í öðru. „Bryndís vissi greinilega ekki að þetta var gagnkvæmt,“ segir Fjölnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.