Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 38
Sigga Lund elskar liti
en segist þó eiga allt
of mikið af svörtum fötum
í fataskápnum.
Marilyn
Monroe á
hápunkti
ferils síns,
árið 1953.
AP
SIGGA LUND KAUPIR SJALDAN FÖT
Langar í
flottan pels
SIGGA LUND VAKTI ATHYGLI Á DÖGUNUM FYRIR
NÁMSKEIÐ UM SJÁLFSTRAUST ÓHÁÐ LÍKAMSÞYNGD.
HÚN SEGIST OFT HAFA KEYPT SÉR OF LÍTIL FÖT
Í GEGNUM TÍÐINA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Jennifer Lopez
er þekkt fyrir
flottan stíl og
fagrar línur.
AFP
Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns?
Náttfötin mín … ég elska að vera í náttbuxum og ég er fljót að skella
mér í þær um leið og ég kem heim úr vinnunni. Gæti verið í þeim alltaf.
En þau verstu?
Öll fötin sem ég keypti of lítil á mig á gegnum tíðina, því ég var viss um
að ég yrði svo flott í þeim þegar ég væri búin að grennast. Svo grenntist ég
aldrei nógu mikið svo þau voru aldrei notuð. Ég veit betur í dag og kaupi
ekki föt sem eru of lítil á mig lengur.
Hvar kaupir þú helst föt?
Bara hér og þar. Ég reyndar kaupi mér föt allt of sjaldan. En þegar ég
fer í verslunarleiðangur byrja ég alltaf í Only og Vila, bara af gömlum vana.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í?
Mér finnst fötin í River Island æðisleg. Hef bara komið í þessa í London
og ég hefði getað keypt mér allt. Ég fylgist líka aðeins með þeim á netinu.
Love it, love it, love it.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í?
Já auðvitað, hef örugglega tekið þátt í þeim flestum. Man sérstaklega eft-
ir því þegar ég var unglingur þegar ég klæddist grænum buxum og peysu
með hlébarðamunstri og var með aflitað hár og hanakamb. Ekki falleg
minning.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt?
Töff er eiginlega það sem ég leita eftir og það sem er þægilegt. Ég er
miklu meira svona rock chick en fancy lady.
Litadýrð eða svart/hvítt?
Ég elska liti og laðast alveg að þeim þegar ég fer í búðir, en eins og týp-
ískar íslenskar konur á ég of margar svartar flíkur. En ég er óhrædd í dag
að klæðast litum
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl?
Jennifer Lopez og Jennifer Aniston. Mér finnst þær báðar alltaf svo
smart. Væri alveg til í að fá stílistann þeirra til að taka aðeins til í
mínum fataskáp og gefa mér góð ráð.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Nei … ég veit varla hvað þeir heita. Spái lítið í það.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða
fylgihlut myndirðu kaupa?
Ég myndi fyrst og fremst kaupa flottan pels, langar rosalega í
svoleiðis. Svo helling af skóm og töskum – hef ekki getað leyft
mér þann munað í svolítinn tíma.
Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til
árs að eigin vali og þú
fengir dag til að versla,
hvaða ár myndirðu velja?
Ég myndi fara til sjötta
eða sjöunda áratugarins
(ekki viss hvor það var)
þegar Marilyn Monroe
var og hét. Það er
svo margt sem
heillar mig við
þetta tímabil.
Tískan var kvenleg og
töff og þá var líka málið að vera
með smálínur eins og Marilyn.
Ljósmynd/Aðalsteinn Sigurðarson
Pels er
ofarlega á
óskalist-
anum.
Jennifer
Aniston þykir
sjaldan stíga
feilspor í
klæðaburði.
REUTERS
*Föt og fylgihlutir Óskarsverðlaunin eru framundan en hátíðin er ekki síður uppskeruhátíð tísku en kvikmynda »40