Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 39
24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Tískuvikurnar úti í heimi eru ífullum gangi og fylgjastSmartlöndur með þeim af miklum ákafa – drekka bókstaflega í sig helstu strauma og stefnur næsta hausts. Það er vel hægt að lyfta glös- um yfir komandi litapallettu. Þegar Tom Ford og félagar ákveða að það sé málið að vera í bleiku frá toppi til táar þá hlýtur eitthvað gott að vera að ger- ast í heiminum. Er þetta svona sem kvenorkan vinn- ur? Nei, bara pæling … Lögmál hins sykurhúðaða tískuheims slá þó ekki í takt við lífsklukku daglaunafólksins, sem trúir því að líf þess verði betra ef það lif- ir í núinu. Tískuheimurinn hunsar þetta því þar er bara pælt í því hvað verður málið eftir hálft ár eða ár. Þetta getur skapað kaot- ískt andlegt ástand hjá venju- legum húsmæðrum í 108 og ef- laust víða. Hvernig er hægt að fóta sig í þessari glansveröld án þess að missa kúlið? Hvað má hvenær og hvernig? Ætti ég að draga fram bleiku fermingardragtina fyrst bleikt er komið í tísku? Eða er mér óhætt að vera áfram í þröngu gallabuxunum þótt all- ar buxur á tískupöllunum séu víðar? Getur verið að víðu bux- urnar hafi í raun átt að vera þröngar en rýrt vaxtarlag fyr- irsætnanna hafi sýnt þær í röngu ljósi? Eftir að hafa flutt lögheimili mitt inn í myndabanka AFP og fengið tískumyndirnar beint í æð af pöllunum komst ég að því að ég gæti í raun ekki dregið andann nema eignast blátt pils. Ég sá fyrir mér hversu daufir og líflausir dagarnir yrðu ef ég þyrfti að druslast um í sömu gömlu lörfunum í rigningu og roki. Líf mitt yrði án efa mun innihaldsríkara ef ég hnyti um himinblátt pils í anda Díönu prinsessu og vinkvenna hennar þarna á árunum þegar hún var ennþá skotin í Kalla Bretaprins. Pilsið yrði að ná upp í mitti þannig að ég gæti haft mjótt belti við. Eins ólíklega og það kann að hljóma þá fannst pilsið og síðan hefur það verið notað grimmt við ýmis tækifæri. Mér finnst samt pínulítið eins og ég þurfi að klippa mig stutt og lita hárið ljóst, svona svo pilsið njóti sín til fulls en … Á dögunum mætti ég í pilsinu í vinn- una og þar sem ég er að reyna að vera í „svörtufatabindindi“ (sem gengur reyndar fáránlega illa) fór ég í gula skyrtu við. Einhver spurði mig hvort ég væri að halda upp á þjóðhátíðardag Sví- þjóðar og annar grínari spurði hvort dress- ið væri sponsað af IKEA. Það versnaði í því þeg- ar ég hitti hina dásamlegu Siggu Heimis iðnhönn- uð og hún horfði á mig og spurði hvort ég væri í búningi … Þú veist öskudagurinn og svona … Hausttískan 2013 er víðari en við eigum að venj- ast og það mun taka okkur tíma að finna rétta takt- inn. Sérstaklega þær sem eru búnar að láta græða á sig glansandi leggings-buxur og vítt að ofan. Þegar þú ferð næst í búð skaltu máta vel og vandlega og ekki kaupa neitt nema þú sért handviss um að flíkin muni bæta líf þitt. Það sem skiptir öllu máli í þessu völund- arhúsi er að fylgja hjartanu. Hjartað tifar og færist til og ef fylgjum því þá stöðnum við ekki. martamaria@mbl.is Paul Smith haust 2013. Ertu í öskudags- búningi? Prada haust 2013. Verð kr. 7.950 Verð kr. 12.000 Verð kr. 10.500 Verð kr. 6.600 Verð kr. 4.900 Verð kr. 5.300 Verð kr. 6.400 LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 - SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660 Gjafir sem gleðja DKNY lína Donnu Karan haust 2013.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.