Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 6
HEIMURINN KÍNA PEKING Kínverska varnarmála- ráðuneytið hafnaði skýrslu þar sem það var sagt viðriðið aukningu í árásum tölvuþrjóta á bandarísk fyrirtæki. Í skýrslunni, sem bandarískt netöryggisfyrirtæki, Mandiant, gaf út, er komist að þeirri niðurstöðu að hópur tölvusérfræðinga, sem tengjast kínverska hernum, sé sennilega einn af „afkastamestu tölvunjósnahópum“ heims. Kínverska varnarmálaráðu- neytið sagði að engar „tæknilegar sannanir“ væru í skýrslunni. SUÐUR-AFRÍKA PRETORÍA Fatlaði spretthlauparinn Oscar Pistorius var á föstudag látinn laus gegn tryggingu en hann er sakaður um að hafa myrt unnustu sína, Reevu Steenkamp. Pistorius neitar sök, kveðst hafa skotið Steenkamp á baðherberginu heima hjá sér vegna þess að hann hafi haldið að hún væri innbrotsþjófur. Málið tók óvænta stefnu þegar í ljós koma að lögreglumaðurinn, sem stjórnaði rannsókninni, sætir sjálfur rannsókn vegna morðtilraunar. Hann hefur verið settur af. EKVADOR QUITO Rafael Correa náði auð- veldlega endurkjöri í forsetakosningun- um í Ekvador. Hann fékk 57% atkvæða og vinstri flokkur hans fékk einnig afgerandi meirihluta á þjóðþinginu. Correa er fyrsti forsetinn sem sigrar tvívegis í forsetakosn- ingum án þess að halda þurfi aðra umferð til þess að skera úr um sigurvegara. BÚLGARÍA SOFIA Boyko Borisov, forsætisráðherra Búlgaríu, tilkynnti afsögn stjórnar sinnar eftir að mörg þúsund manns mótmæltu háu rafmagnsverði og aðhaldsaðgerðum á götum úti. Borisov hafði áður lagt til lækkun verðs á rafmagni og rekið fjármála- ráðherra sinn, en það dugði ekki til að slá á aðgerðirnar. Hamid Karzai, forseti Afgan- istans, hefur veitt sérstöku friðarráði umboð til að semja um frið fyrir stjórnina. Ráðið hefur sett fram vegvísi að friði 2015. Inntak hans er óljóst, en kunnugir segja slá- andi hvað mikið sé gefið eftir þar gagnvart talibönum og Pakistönum. Þar kveði á um að talibanar verði stjórnmála- flokkur og fái stöður í lögreglu, sveit- arstjórnum og ráðu- neyti. Þjóðarbrot, sem liðu hvað mest undir stjórn talibana, óttast afturhvarf til ástandsins fyrir inn- rás Bandaríkja- manna og banda- manna þeirra. Hættu í vinnunni,“ sagðikarlmannsrödd í símann.„Annars mun hún kosta þig lífið.“ Tarik Ayub er túlkur fyrir þýska herinn í Afganistan. Hann hafði fengið svona símtöl áð- ur, en samt var honum brugðið þegar síminn hringdi kvöld eitt í rafmagnsleysi í janúar. „Hættu að hóta mér,“ svaraði Ayub. „Ef þú ert maður er kominn tími til að þú sýnir þig.“ Maðurinn í símanum hló: „Þú hefur ekki hugmynd um hvað við erum voldugir.“ Síðan lagði hann á. Ef við kæmumst í burtu Ayub lýsti reynslu sinni fyrir þýska vikuritinu Die Zeit. Eftir símtalið spurði sextán ára dóttir hans, sem hafði vaknað við hring- inguna, hvað væri á seyði. Hann sagði að vinur sinn hefði verið að stríða sér. Síðan hefði hann farið inn í eldhús og fengið sér tvo eða þrjá snafsa og hugsað með sér: „Ef við kæmumst bara héðan í burtu.“ Í vikunni voru í árlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna birtar tölur um fallna í Afganistan. Þar kom fram að í fyrra hefði í fyrsta skipti í sex ár dregið úr fjölda óbreyttra borgara, sem voru felldir í landinu. Þessi tíðindi voru fyrst og fremst rakin til þess að dregið hef- ur úr átökum, afganskar hersveitir séu að taka við af sveitum Atlants- hafsbandalagsins og þær séu ekki jafnþungvopnaðar auk þess sem vestræni heraflinn hafi lagt áherslu á að hlífa óbreyttum borgurum. Samkvæmt skýrslu SÞ féllu 2.754 óbreyttir borgarar í fyrra, en 3.021 árið 2012. Frá því að stofn- unin hóf að taka saman tölur um fall óbreyttra borgara 2007 hafa tæplega 15 þúsund fallið og segir það sína sögu um daglegt líf í landinu. Þótt tölfræði Sameinuðu þjóð- anna bendi til átaka í rénun er ein tala sláandi. Árásum á opinbera starfsmenn fjölgaði um 700% árið 2012 frá árinu á undan. Jan Kubis, sérlegur eriendreki SÞ í Afganist- an, sagði að mannfallið í átökunum væri óviðunandi og benti sérstak- lega á að sprengjur, sem upp- reisnarmenn kæmu fyrir í vegköntum, felldu flesta almenna borgara. „Sjálfs- morðsárásir eru sér- staklega óhugnanlegar, þar á meðal að nota heilaþvegin börn til að myrða óbreytta borgara, sem einnig er skýrt brot á venjum íslams,“ sagði hann. Kub- is sagði að aukningin í árásum á fólk, sem talið væri hliðhollt stjórn- inni, væri „enn eitt alvarlegt brot á alþjóðlegum lögum um mannrétt- indi“. Um þessar mundir eru um hundrað þúsund hermenn á vegum Bandaríkjanna og annarra aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins í Afganistan. Á næsta ári eiga þeir að hverfa á braut og framhaldið er í uppnámi. Vonlitlar friðarumleitanir Engar friðarumleitanir áttu sér stað seinni hluta liðins árs. Bar- dagar geisuðu í Afganistan og í Bandaríkjunum stóð yfir kosninga- barátta. Nú er hins vegar hafin viðleitni til þess að hefja viðræður milli afganskra stjórnvalda og upp- reisnarliðs talibana. Snemma í febrúar hittust David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, Hamid Karzai, forseti Afganistans, og Asif Ali Zardari, forseti Pakistans, í Checkers, sveitabýli þess fyrst- nefnda, og ræddu nauðsyn þess að setja friðarviðræður í forgang. Þessar þreifingar virðast hins vegar lítinn árangur hafa borið. The New York Times birti frétta- skýringu þar sem sagði að samtöl við á þriðja tug embættismanna bæru því vitni að litlar líkur væru á að það tækist einu sinni að fá stjórnvöld og talibana til að setjast niður til að ræða málin áður en þorri bandaríska herliðsins hverfur á braut á næsta ári. Þá gjalda hasarar og tadjíkar varhug við að friðmælast við talib- ana, sem eru pastúnar að upplagi líkt og Karzai. Þessar horfur eru ekki til þess að róa fólk eins og Tarik Ayub. Talibanar líta á það sem svikara og hafa í hótunum við samverkamenn Vesturlanda. Þetta fólk óttast það sem tekur við þegar vestræna her- liðið hverfur á braut. Óvissan blasir við í Afganistan HERLIÐ BANDARÍKJAMANNA OG BANDAMANNA ÞEIRRA HVERFUR FRÁ AFGANISTAN 2014 OG ÓVISSA BLASIR VIÐ. TALIBANAR BEINA SPJÓTUM SÍNUM AÐ EMBÆTTISMÖNN- UM OG AFGÖNSKUM STARFSMÖNNUM ERLENDRA RÍKJA OG STOFNANA, SEM ÞEIR KALLA SVIKARA. Hamid Karzai VEGVÍSIR AÐ FRIÐI Kona í búrku gengur um götur Kabúl með byrðar sínar á höfðinu. Dregið hefur úr mannfalli óbreyttra borgara í landinu, en talibanar beina spjótum sínum sérstaklega að konum, sem fara með embætti í stjórnkerfinu. AFP * „Ég held að það þurfi að gjalda frið í landi eftir 33 eða 34 ár háu verði – mjög háu verði.“ Rangin Dadfar Spanta, þjóðaröryggisráðgjafi afganskra stjórnvalda, um nauðsyn þess að ræða við talibana. Alþjóðamál KARL BLÖNDAL kbl@mbl.is 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.2. 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.