Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Qupperneq 27
H
önnunarmarmars er framundan og að
þessu sinni var efnt til samkeppni um út-
færslu á einkennismerki þessarar upp-
skeruhátíðar íslenskrar hönnunar. Graf-
ísku hönnuðirnir Ármann Agnarsson og Jónas
Valtýsson urðu hlutskarpastir. Hugmynd þeirra er
smíðuð grind úr tré þar sem stafir mynda nafn há-
tíðarinnar í eins konar skúlptúr. Trégrindin, sem er
engin smásmíði eða 475 x 350 x 45 cm að stærð, var
smíðuð af hönnuðinum Hlyni Axelssyni. „Við fórum
að hugsa um hvað Hönnunarmars er í raun og veru.
Það er flókið að ætla sér að myndgera öll hin ólíku
hönnunarfög, þannig að við ákváðum að búa til grind
úr stöfunum sem væri eins konar rammi, auður strigi
eða hvítt blað. Þetta væri táknmynd hátíðarinnar og
svo kæmu ólíkir hönnuðir að því að fylla inn í ramm-
ann.“
Ármann segir þá félaga hafa viljað horfa á hönnun
sem ferli og skoða það samtal sem verður til þegar
hönnuðir úr ólíkum áttum koma að sama verki.
„Ferlið sem fór í gang þegar við vorum að vinna að
því að mynda grindina á ólíkum stöðum í borginni
var síðan algjört ævintýri,“ segir hann en grindin var
mynduð á hafnarsvæðinu, á Bræðraborgarstíg og í
Vatnsmýri. Hver tökustaður var valinn með það í
huga að sýna ólíkar hliðar Reykjavíkurborgar.
Bókstafir víða um borg
ÚR BÓKSTÖFUNUM SEM MYNDA ORÐIÐ HÖNNUNARMARS VAR GERÐ TRÉGRIND SEM Á
AÐ TÁKNA AUÐAN STRIGA SEM HÖNNUÐIR FYLLA INN Í MEÐ FJÖLBREYTTUM VERKUM
Texti: Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Ljósmyndir: Marino Thorlacius marinot@me.com
EINKENNISMERKI HÖNNUNARMARS Á FERÐ OG FLUGI
Hlynur Axelsson
hugar að skrúfum
og festingum fyrir
tökuna á Reykja-
víkurflugvelli.
Grindin var smíðuð úr furu og tók smíðin um tvær vikur.
24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Heimili og hönnun
0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða
ALLIR LA-Z-BOY STÓLAR ERU
NÚ Á FEBRÚARTILBOÐI
VERÐ FRÁ 71.992 KR.
HÚSGAGNAHÖLLIN – fyrir lifandi heimili!
AMERÍSKIR
DAGAR
Í FEBRÚAR
CARDNAL La-z-boy stóll.
Svart leður.
B:95 D:85 H:107 cm.
159.990
VERÐ: 199.990
FULL BÚÐAF
NÝJUM STÓLUM
FRÁ LAZBOY
«
«
LIFÐU LÍF INU ÞÆGILEGA!
Valdir voru fjórir stafir úr ein-
kennisstöfum Hönnunarmars
og fjórum hönnuðum eða hönn-
unarteymum úr mismunandi
greinum falið að útfæra þá á
sinn hátt.
Þrír bókstafir hafa þegar ver-
ið sýndir og myndaðir í ólíku
umhverfi en eftir helgina verður
síðasti bókstafurinn, N, sýndur.
Útfærsla hans var í höndum
Munda sem er fatahönnuður og
myndlistarmaður og hannar
undir eigin merki.
Hver stafanna fjögurra verð-
ur svo til sýnis á Hönnunarmars
sem fram fer 14.-17.mars.
Upplýsingar um Hönn-
unarmars er að finna á vef
Hönnunarmiðstöðvar og á fés-
bókinni.
S-ið er hannað
af Marcos Zo-
tes. Hann er
spænskur arki-
tekt búsettur á
Íslandi og er
þekktur fyrir
innsetningar
sem hann vinn-
ur í borg-
arumhverfi svo
sem opnunar-
atriði Vetr-
arhátíðar í
Reykjavík.
M-ið var klætt í
prjónabúning að
hætti hönn-
unarteymisins
Víkur Prjóns-
dóttur. Teymið
hannar og fram-
leiðir ullarvörur
innblásnar af
þjóðsögum og
náttúru Íslands.
H-ið var í höndum HAF by Haf-
steinn Juliusson sem er hönn-
unarstúdíó sem vinnur að fjöl-
breyttum verkefnum, allt frá
vöruhönnun að innanhúshönnun
og upplifunarhönnun.
H - N - M - S