Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.2. 2013
Græjur og tækni
andi tölvu, sem hefur kosti – gefur kost á gagnlegum og þörfum við-
bótum og minnkar líkur á böggum – en líka ókosti – notandi þarf að
bíða, jafnvel mánuðum saman, eftir nýrri uppfærslu, ef hann fær þá upp-
færslu.
Olivetti fer þá leið að leyfa Android að vera í friði, er ekki með eigin
notendaskil, og ekki keppir það í verði, því OliPad 3 er á áþekku verði og
helstu keppinautar, kostar um 100.000 kr. Viðbót fyrirtækisins og sú leið
sem það fer til að greina sig frá samkeppnisaðilum, er þjónusta sem fyr-
irtækið kallar hugbúnaðarvöruhús, Application Warehouse, þar sem gert
er ráð fyrir að viðskiptavinir, eigendur OliPad
og ámóta Olivetti-tóla, fyrirtæki og opinberir
aðilar, hafi aðgang að rekstrarhugbúnaði og
þjónustu, eins og til að mynda samvinnu-
hugbúnað, sölumannakerfi og svo má telja.
Eins og nefnt er þá er OliPad prýðilega
spræk með fjögurra kjarna Nvidia 3 örgjörva,
1,4 Ghz. Stýrikerfið er Android 4.0, Ice Cream
Sandwich. Uppfærsla í Jelly Bean (4.1/4.2) er
ekki tiltæk, enda heldur Olivetti utan um kerf-
isuppfærslur – traustvekjandi fyrir fyrirtæki,
en hugsanlega pirrandi fyrir nýjungagjarna.
Ottó B. Arnar er umboðsaðili fyrir Olivetti á
Íslandi.
Þegar nafn ítalska fyrirtækisins Olivetti er nefnt muna ríflega miðaldraeftir ritvélum og nokkru yngri eftir tölvum, en þeir yngstu eru alvegblankir. Það er nefnilega löngu liðin tíð að Olivetti sé helsti framleið-
andi ritvéla í Evrópu og líka langt síðan fyrirtækið var einn helsti einka-
tölvuframleiðandi heims. Síðasta áratug hefur Olivetti, sem er ríflega
hundrað ára gamalt, verið hluti af ítalska símaris-
anum Telecom og aðallega framleitt reiknivélar,
ljósritunarvélar og símbréfavélar, en tók til við
tölvunar aftur fyrir nokkrum árum og hefur geng-
ið vel í heimalandinu og
nálægum Evrópulönd-
um. Fyrir rétt tæpum
tveimur árum sendi Oli-
vetti svo frá sér spjald-
tölvu, OliPad, sem
þriðja útgáfa hennar,
OliPad 3, er hér tekin
til kosta.
Þegar velflestar spjaldtölvur keyra sama
stýrikerfið, Android, þá er um lítið annað að
keppa en verð og hraða. Vissulega hafa sumir
framleiðendur smíðað sérstök notendaskil sem
þeir leggja ofan á Android-útgáfuna á viðkom-
MANSTU EFTIR OLIVETTI?
OLIVETTI VAR EINU SINNI RISINN Í RITVÉLUM OG TOPPURINN Í TÖLVUM.
NÚ SÆKIR FYRIRTÆKIÐ INN Á SPJALDTÖLVUMARKAÐ.
Græja
vikunnar
* Myndavél á fram-hlið er 2 MP, sem er
prýðilegt, og á bakhlið
er vélin 8 MP með leift-
urljósi og sjálfvirkri
skerpu. Vinnsluminni er
1 GB em gagnaminni 16
GB. Hægt er að auka
það með því að stinga í
hana minniskorti.
* Rauf er fyrir 3Gkort í tækinu til viðbótar
við þráðlasut net og
Bluetooth. GPS er inn-
byggt, nema hvað, hrey-
fiskynjari, birtuskynjari,
NFC og þar fram eftir
götunum. Það er á henni
Micro USB-tengi.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Skjárinn er 10,1",en nokkuð breið brún
frá honum að kanti.
kanturinn eða ramminn
er úr áli en bakið úr
plasti með stömum
röndum efst og neðst á
því og því mjög gott að
halda á henni.
kostir RSS hafa farið fram hjá
mörgum, og því er ekki úr vegi að
skoða aðeins hvernig þú getur
nýtt þér RSS betur.
RSS hjálpar þér að
safna öllu á einn stað
Það fyrsta sem þarf er RSS les-
ari. Algengasta þjónustan í dag er
frá Google og nefnist Google Rea-
der. Til þess að nýta sér hana
nægir að vera með netfang frá
Gmail. Þeir sem hafa skráð sig
fyrir slíku geta opnað Google.com/
Reader og byrjað að bæta þar við
áskriftum með einföldum hætti.
(Ef þú vilt síður notast við Google
eru aðrar þjón-
ustuveitur í boði,
en þessi grein
mun miða við
notkun Google
Reader.) Þegar
síðan hefur verið
skráð í RSS les-
arann, þá kannar
lesarinn með
skömmu millibili hvort nýtt efni er
að finna á síðunni.
Í flestum tilfellum er óþarfi að
gerast áskrifandi að síðum sem þú
heimsækir oft, eða jafnvel daglega.
Galdurinn gerist þegar þú hefur
safnað saman áskriftum að fjölda
áhugaverðra síðna sem þú skoðar
mögulega ekki alla jafna, og upp-
færa hugsanlega ekki daglega.
Segjum sem svo að þú viljir fylgj-
ast með umræðu um umhverf-
I
nternetið er stór staður og ekki
heiglum hent að fylgast með
öllu því sem þar fer fram. En
það er svo sem óþarfi, því ekki
er allt það sem á netinu má finna
þess virði að með því sé fylgst.
Og iðulega getur maður treyst því
að ef eitthvað óvanalega sniðugt
ratar á netið, þá finnur það leið
sína til manns í gegnum tölvupóst,
samfélagsmiðla eða einhverja snið-
uga vefsíðu sem maður les öðru
hvoru. Það er sem sagt ekki
ástæða til að örvænta þó að þú
gleymir stundum að lesa netið. En
svo er líka bara hægt að fá smá
hjálp.
RSS stendur
fyrir Real Simple
Syndication eða
Rich Site Summ-
ary, eftir því
hver er til frá-
sagnar. RSS er
staðall sem sam-
einar kosti tölvu-
pósts og bóka-
merkja og gerir þér kleift að
gerast áskrifandi að ákveðnum síð-
um og fá tilkynningu um það þeg-
ar síðan er uppfærð. Þannig er til
dæmis hægt að vera áskrifandi að
síðunni Innlendar fréttir á mbl.is
og fá jafnóðum að sjá þegar nýjar
fréttir bætast við. Fyrsta útgáfan
af þessu þarfatóli leit dagsins ljós
árið 2000, og fyrir suma er þetta
jafn órjúfanlegur hluti netsins og
tölvupóstur. En það er jafnvíst að
ismál. Þegar þú hefur safnað
áskriftum að áhugaverðum vefsíð-
um og bloggum um umhverfismál
á einn og sama stað í RSS les-
aranum þínum, nægir þér að fara
þangað til að sjá allt það nýjasta,
í stað þess að skoða marga vefi til
að sjá hvað er nýtt. Þannig er
hægt að vinna sig í gegnum netið,
hægt og rólega, og gerast áskrif-
andi að því sem manni finnst
áhugavert og safna því á sama
stað.
Breyttu RSS í sérsniðið
vefrit fyrir þig
Einn kosturinn við Google Reader
er að eins auðvelt og það er að
safna þangað áhugaverðu efni, þá
er jafn auðvelt að taka það út aft-
ur og gera eitthvað sniðugt við
það. Viðmót fæstra RSS lesara er
mjög notendavænt, og minnir um
margt á tölvupóst. Margs konar
þjónusta er hins vegar í boði sem
sækir nýjustu greinarnar í RSS
lesaranum þínum og birta þær
með betri hætti. Ein slík er
ókeypis vefþjónustan Feedly, sem
er einskonar framendi á Google
Reader. Feedly sækir áskriftirnar
þínar til Google Reader og birtir
þær á svipaðan hátt og um frétta-
vef eða vefrit væri að ræða sem
gerir þær bæði læsilegri og
skemmtilegri að skoða. Feedly er
einnig hægt að fá sem símaforrit
fyrir bæði iPhone og Android og
með því er tryggt að þér leiðist
aldrei aftur á biðstofu hjá lækn-
inum. Önnur þjónusta er Reeder
sem er einskonar framendi, líkt og
Feedly. Munurinn er að Reeder
er forrit, frekar en vefsíða og býð-
ur upp á fleiri möguleika sem eru
innbyggðir í Google Reader, svo
sem eins og að stjörnumerkja
greinar sem eru sérstaklega
áhugaverðar, eða deila þeim með
vinum. Enn önnur útgáfa er
Flipboard sem er einungs fáanlegt
fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.
Flipboard er sérstaklega hannað
til þess að líkja eftir upplifuninni
að lesa tímarit, og er einstaklega
ánægjulegt að nota, sérstaklega á
spjaldtölvum.
Nýttu símann
í lengri greinar
Eins og flestir vita er tölvuskjár
ekki heppilegt tæki til þess að
lesa lengri greinar. Spjaldtölvur
Ein veita til
að stjórna
þeim öllum
ÞRÁTT FYRIR AÐ RSS ÞJÓNUSTAN SÉ „HUNDGÖMUL“ Í INTERNET-ÁRUM,
ÞÁ HEFUR HÚN SJALDAN VERIÐ GAGNLEGRI EN EINMITT NÚNA.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
* RSS stendurfyrir RealSimple Syndication
eða Rich Site
Summary.