Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Blaðsíða 45
24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 álpuðust einnig, umbeðnir að vísu, um borð í fúið rek- aldið. Þetta var mikið áfall fyrir venjulega trygga og trúa sjálfstæðismenn, sem voru byrjaðir að taka trú á hin- um unga formanni, vegna margra ótvíræðra kosta hans. Öflugur forystumaður úr borginni, Hanna Birna Kristjánsdóttir, ákvað að gefa kost á sér til for- mennsku í flokknum. Kannanir sýndu að almennir kjósendur, líka Sjálfstæðisflokksins, virtust vilja skipta um formann þegar þarna var komið. Lands- fundur var annarrar skoðunar þegar talið var upp úr kössum hans, þótt munurinn væri ekki mjög mikill. Sennileg réð mestu um þá niðurstöðu að Hanna Birna hafði ekki, svo eftir væri tekið, tekið eindregna af- stöðu í þeim afdrifaríku málum sem vakið höfðu upp vantraust á formanninum. Kaflaskil Dómur EFTA-dómstólsins sannfærði nánast alla endanlega um að þeir sem ráðlagt höfðu formann- inum um afstöðu til Icesave höfðu afvegaleitt hann í málinu og hann skaðað sig á því að hlíta slíkum ráð- um. Allir formenn Sjálfstæðisflokksins, einnig hinir vel- metnu látnu formenn hans, hafa gert mistök í sinni formannstíð, enda hlýtur það að vera hluti lögmál- anna. Þeir formenn sem best duga sýna að þeir læra af slíkum mistökum. Og þá er það sennilega einnig hluti af lögmálunum að geri menn það verði þeir betri formenn á eftir. Hanna Birna Kristjánsdóttir ákvað að bjóða sig ekki fram aftur gegn formanninum, þótt hann lægi vel við höggi á núverandi fundi, svo skömmu eftir úrslit EFTA-dómsins. Það var rökrétt hjá henni. Það hafði ekkert gerst eftir að Lands- fundur hafði ákveðið að gefa Bjarna Benediktssyni annað tækifæri. Varaformannssætið „losnaði“ þegar Ólöf Nordal ákvað að hverfa frá því vegna breyttra persónulegra aðstæðna. Hanna Birna ákvað þá að gefa kost á sér til varformanns, til starfa við hlið Bjarna Benedikts- sonar, og mun vafalítið fá góða kosningu. Þótt margt hafi verið skrafað, svo sem vonlegt er, má gera ráð fyrir því að Bjarni fái einnig afgerandi kosningu í for- mannskjöri. Landsfundur mun vilja að forystan geti gengið brött til átaka við pólitíska andstæðinga, full- viss um að sjálfstæðismenn fylki sér um hana, sjálf- stæðisstefnuna og brýnustu baráttumál okkar tíðar í kosningunum í vor. Og enn er það spuninn Í Speglinum, sérstökum afmörkuðum áróðursþætti, sem fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur inni í sínum að- alfréttatíma, var fjallað um ræðu formanns Sjálfstæð- isflokksins. Þáttargerðarmaður, sem svo sannarlega hefur iðulega sýnt að hann er einfær um að leggja illt til forystumanna þess flokks, fékk óvænta aðstoð við það frá sérvöldum manni úr hópi landsfundarfulltrúa. Álit hans var algjörlega á skjön við viðbrögð yf- irgnæfandi meirihluta annarra landsfundarfulltrúa við ræðu formannsins. Sá hélt því fram að Bjarni Benediktsson hefði verið að apa eftir Framsókn- arflokknum í ræðu sinni og dregið dám af Jóni Gnarr! Og svo var tönnlast á því að ræðan hefði einkennst af því að kosningar væru framundan. Það var mikil speki. Almanakið og allir aðrir vita að kosningar eru framundan. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefði ekki valdið sínu hlutverki ef hann hefði ekki gefið ákveðnar og skýrar bendingar um, hvers menn mættu vænta af flokknum í vor. En það sem var eftir- tektarverðast var einmitt svo ólíkt spunanum í Spegl- inum. Bjarni Benediktsson lét það ekki eftir sér að fara í yfirboð við aðra flokka. Hann sýndi gætni og eðlilega varúð við þær aðstæður sem nú ríkja. Sem betur fer og að sjálfsögðu boðaði hann að hverfa yrði frá skattpíningarstefnu vinstristjórnarinnar. En hann stillti sig um að gefa sver loforð í þeim efnum og það þrátt fyrir að aðeins séu fáeinar vikur til kosn- inga. Og slíka pólitíska hógværð sýndi hann á fleiri sviðum, þótt boðskapurinn væri skýr. Þetta féll þorra sjálfstæðismanna vel í geð. Þess vegna hitti formað- urinn í mark. Þess vegna bendir margt til að þetta verði nýtt upphaf fyrir hann og þar með fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Það er vonandi rétt mat. Því það er svo mikið í húfi fyrir þjóðina núna. Morgunblaðið/Kristinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.