Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Page 53
24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
stóru pakkhúsi og við vorum þar meira og
minna í hálft ár að setja hana upp. Í kjölfar-
ið settum við upp slíkar sýningar í Vín-
arborg 1995, í Marseilles 1995 og í Hauser &
Wirth í Zürich 1998. Við fengum kjarna ís-
lenskra aðstoðarmanna í lið með okkur því
Íslendingum er alveg sama hvað klukkan er,
ef þeir fá bara að drekka, borða og vinna.
Við skemmtum okkur konunglega við að
setja upp þessar stóru sýningar.
Nú hafa synir mínir tekið við sem aðstoð-
armenn. Þessi sýning í New York var opnuð
22. janúar fyrir blaðamenn og 3. febrúar fyr-
ir almenning, en við hófum uppsetninguna
17. desember. Við vorum rúmar fimm vikur
að vinna og vorum ekki alveg búnir þegar
opnað var því það tók viku í viðbót að steypa
öll súkkulaðiverkin. Við áttum einn frídag,
fyrsta janúar. Unnum líka um jólin.“
Dieter átti í samstarfi við marga listamenn
en það við Björn varði lengst. Með þessari
sýningu er að sjá að farið sé að gera meira
úr þætti Björns á þessu lokaskeiði sköpunar
föður hans. Hann samþykkir að svo sé.
„Tveimur árum áður en hann dó var orðið
ljóst í hvað stefndi. Þá kom hann að máli við
mig og sagði að það væri tími til að brjóta
odd af oflæti sínu og finna gott gallerí að
vinna með. Þá var hann mögulega líka að
hugsa um mína framtíð. Hann hóaði í Iwan
og ári síðar sýndum við hjá honum. Dieter
dó tíu dögum eftir opnun sýningarinnar.
Nokkru áður sagði hann við mig: ef við
ímyndum okkur að við séum í lestarferð og
ég hoppa af á næstu stöð, heldur þú þá
áfram með lestinni? Ég svaraði að það lægi í
hlutarins eðli því ég kynni ekkert annað. Og
ég hélt áfram. Ég hef fyrst og fremst unnið í
hans anda enda er ég lærlingur hans og nota
þær aðferðir sem við beittum.“
Fækkaði vinnustofunum
Stór hluti tíma Björns fer í að annast mál-
efni dánarbús Dieters en hann vinnur sam-
hliða í verkum sínum á vinnustofunum.
„Þetta er allt í einum hrærigraut!“ segir
hann og hlær. „Við vorum með vinnustofur á
mörgum stöðum; í Vínarborg, Hamborg,
þrjár í Sviss og þrjá staði á Íslandi. Rekstr-
arkostnaður var að ganga frá mér og ég
skar þetta grimmt niður og held eftir gamla
stúdíóinu okkar í Basel. Þar er ég mikið og
skipti tíma mínum milli Sviss og Íslands. Ég
er með vinnustofu á Álafossi.“
En hann stoppar ekki lengi á hverjum
stað; er núna kominn austur á Seyðisfjörð,
þar sem er ein af vinnustofum feðganna.
„Ég er alltaf að reyna að finna einhverja
leið til að vera ekki sífellt á ferðalögum en
það er svo mikið að gera! Ég get illa stopp-
að,“ segir Björn.
Feðgarnir Einar, Björn og Oddur við uppsetningu sýningarinnar „Dieter Roth. Björn Roth“ í Hauser & Wirth-galleríinu nýja í New York. Þar unnu þeir
í fimm vikur og standa hér við háan turn með súkkulaðiverkum og í baksýn er annað stóra gólfið úr vinnustofunni á Bala.
Ljósmynd/Bjarni Grímsson
Kvikmyndaunnendur ættu
að sjá nýjustu kvikmynd
danska leikstjórans Thomas
Vinterbergs, Jagten, sem
sýnd er í Háskólabíói. Mads Mikkels-
en fékk verðlaun í Cannes fyrir leik
sinn í aðalhlutverkinu.
2
Héraðsbúar og aðrir Aust-
firðingar eru hvattir til að
líta á opnun málverkasýn-
ingar Stefáns Her-
mannssonar í Skemmunni í Skóg-
argerði í Fellum á laugardag klukkan
14. Á sýningunni eru olíumálverk
sem Stefán hefur unnið að þar á und-
arförnum vikum, út frá umhverfinu.
4
Leikfélagið Geirfugl sýnir á
sunnudagskvöldið leikrit
Hávars Sigurjónssonar,
Segðu mér satt, í Kúlu
Þjóðleikhússins. Rýnir Morgunblaðs-
ins sagði leikhúsfólkið hætta sér hér
út á jaðarinn.
5
Dagný Heiðdal listfræð-
ingur fjallar um verk kvenna
á sýningum Listasafns Íslands
á sunnudag klukkan 14. Ann-
ars vegar er um að ræða sýninguna
„Erlenda áhrifavalda“ með verkum
listamanna víða að, en þau mynduðu
meðal annars stofngjöf safnsins. Á
hinni sýningunni, „Gamlar gersemar“,
eru mörg verk í safneigninni sem
sjaldan sjást opinberlega.
3
Sýning Eddu Heiðrúnar
Backman, Lóan, stendur yfir
í verslun og veitingastofu
Þjóðmenningarhússins til
mánaðamóta og nú er síðasta sýning-
arhelgin. Verkin málar Edda Heiðrún
með munninum.
MÆLT MEÐ
1
Brot er heiti sýningar sem Sirra SigrúnSigurðardóttir opnar í SverrissalHafnarborgar í dag, laugardag, klukk-
an 15. Hún hefur á undanförnum árum verið
í framvarðarsveit ungra listarmanna hér á
landi og leggur um þessar mundir stund á
framhaldsnám við School of Visual Arts í
New York. Í desemder síðastliðnum var hún
ein 24 alþjóðlegra listamanna sem ritstjórn
tímaritsins Modern Painters hvatti lesendur
til að gefa gætur.
Sirra segir sýninguna í fjórum hlutum
sem tengjast og eru unnir með Sverrissal í
huga.
„Eitt verkið er ljósmyndapar, líkar myndir
en önnur er tekin af morgunbláma himinsins
og hin er blái skjárinn á tölvunni minni.“
Hún bætir við að viss undirtónn sýning-
arinnar sé að skoða heiminn. „Gegnum tíð-
ina hafa menn öðlast þekkingu við að horfa
upp í himininn og kanna þrívíðan efnisheim-
inn, en í dag horfum við mikið í skjáinn.“
Annað verk sýningarinnar er par stöpla;
annars vegar dæmigerður stöpull úr
geymslum Hafnarborgar en hinn er eft-
irgerð Sirru og það er eins og sá gefi eftir.
Þriðja verkið er skífa þar sem unnið er með
liti og hreyfingu; ljós umhverfisins birtist
sem litir fyrir tilstilli einfaldra límbanda.
Loks gengur gegnum salinn veggteikning
sem er eins og rúðustrikað blað. Sirra Sig-
rún segir það vera eins konar vísun í ab-
strakt myndlist, sem hún hafi alltaf heillast
af.
„Þá er viss tenging í sýningunni við eðl-
isfræði og stærðfræði. Jöfnurnar sem segja
mest um eðli heimsins eru oft þær einföld-
ustu og fallegustu,“ segir hún. List og vís-
indi þurfi ekki alltaf að vera andstæður.
„Bara það að raða hlutum inn í rými er
jafnvægisleikur. Ég þekki stærðfræðinga
sem segjast leita fegurðar og tala eins og
listamenn. Ég sé snertifleti þarna á milli.“
SIRRA SIGRÚN SÝNIR NÝ VERK Í HAFNARBORG
Snertifletir lista og vísinda
Í SVERRISSAL HAFNARBORGAR
OPNAR SIRRA SIGRÚN SIGURÐ-
ARDÓTTIR SÝNINGU Á NÝJUM OG
FORVITNILEGUM VERKUM.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
„Bara það að raða hlutum inn í rými er jafnvægisleikur,“ segir Sirra Sigrún.
Morgunblaðið/Styrmir Kári