Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013
Tíminn líður hratt á gervihnatta-
öld. Og enn hraðar á öld þrívídd-
arprentunar, sem er til umfjöll-
unar í blaðinu í dag. Talið er að sú
tækni að geta „prentað“ út hina
ólíklegustu hluti eigi eftir að geta
bjargað mannslífum því einn dag-
inn verði hægt að prenta út líffæri,
eins ólíklega og það hljómar.
Björk Jakobsdóttir leikkona
hefur verið öflug í að setja upp ný
leikverk. Verkið Blakkát sem sýnt
er í Gaflaraleikhúsinu hefur notið
mikilla vinsælda líkt og verk henn-
ar Sellófan gerði fyrir nokkrum
árum. Í viðtali gagnrýnir hún það
sem hún kallar snobb fyrir hinu
skrítna og bendir á að leikverk
sem fáir skilja (en enginn þorir að
viðurkenna að hann skilji ekki)
njóti gjarnan styrkja framyfir vin-
sæl verk sem höfði til margra.
Hjónin Sigríður Arnardóttir og
Kristján Franklín Magnús ræða
um hjónabandið og ástina. Þau
telja lykilinn að góðu hjónabandi
fólginn í að gefa hvort öðru tíma.
Oft þurfum við tíma til að skilja
heiminn og hvert annað … og til
að skilja tæknina.
En sumir geta ekki sætt sig við
það þegar tíminn er á þrotum og
ganga hreinlega aftur! Ágúst Guð-
mundsson segir okkur frá nýrri
kvikmynd sinni, Ófeigur gengur
aftur, þar sem Laddi leikur drykk-
felldan draug sem telur sig eiga
ýmislegt óuppgert í jarðlífinu.
Stundum er engu líkara en að
við förum afturábak í tíma. Á
tækniopnu fjöllum við um nýja
fjármögnunarsíðu, Kickstarter,
sem margir listamenn hafa nýtt
til að fjármagna t.d. tónleika eða
einhvers konar listviðburði áður
en þeir eiga sér stað, ekki ósvipað
og þegar sjálfur Mozart reiddi
sig á framlög velgjörðarmanna til
að geta unnið að nýju verki. Með
aðstoð tækninnar geta
velgjörðarmenn nú reitt féð fram
hraðar.
RABBIÐ
Tíminn á tækniöld
Eyrún Magnúsdóttir
Ókeypis aðgangur er að tónleikunum í Hörpu en þar verður safnað fjár-
framlögum og hljóðfærum, svo aftur megi óma tónlist í Kulusuk. Verndari
söfnunarinnar er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Hrafn Jökuls-
son, einn af aðstandendum söfnunarinnar, segir þetta eitt stærsta verkefni
sem hann hafi tekið þátt í – með svo undraskömmum fyrirvara
„Upp spratt mögnuð hreyfing sem var fljót að breiða úr sér. Það sýnir
hvað taugar Íslendinga í garð sinna næstu nágranna eru sterkar. Það er
skelfilegt að hjartað í Kulusuk hafi verið kramið í þessu fárviðri. Allir eru
til í að vera með, tónlistarmenn að spila og einstaklingar og fyrirtæki að
gefa aura og hljóðfæri. Auðvitað eru þessir tónleikar fyrst og fremst
söfnun en um leið eru þeir veisla vináttunnar. Við gleymum því stundum
að við eigum bestu nágranna í heimi. Grænlendingar líta á okkur sem
sína bestu vini og eru okkur afar þakklátir fyrir þetta framtak,“ segir
Hrafn.
Meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem koma fram í Eldborg í
dag eru Agent Fresco, Bjartmar Guðlaugsson, Bubbi Morthens, Digranes-
kórinn, DJ Margeir, Erpur Eyvindarson, Fóstbræður, Haffi Haff, Jakob Frí-
mann Magnússon, Jón Ólafsson, KK, Morgan Kane, Pálmi Gunnarsson,
Ojba Rasta, Sam Sam, Sísy Ey, Sykur, Unnsteinn í Retro Stefson, Unnur
Eggertsdóttir og Þórunn Antonía. Heiðursgestir á tónleikunum eru græn-
lensku tónlistarmennirnir Anda Kuitse, Anton Sianiale og Efraim Ignaties-
sen sem koma hingað til lands frá Kulusuk.
KALAK, vinafélag Íslands og Grænlands, stendur að tónleikunum í Eld-
borg í samvinnu við fjölmarga velunnara Grænlands á Íslandi. Helstu bak-
hjarlar eru Flugfélag Íslands, Harpa tónlistarhús, Guide to Iceland, Skák-
akademían, Barnaheill og Tónastöðin. KALAK hefur opnað söfnunar-
reikning vegna brunans mikla í Kulusuk. Reikningsnúmerið er
0322-26-002082, kennitala 4303942239. Tekið er við hljóðfærum í Tóna-
stöðinni, Skipholti 50d, og á tónleikunum í Hörpu í dag. Síðast en ekki
síst er hægt að hringja í söfnunarsímana 901 5001 (1.000 krónur), 901
5002 (2.000 krónur) og 901 5003 (3.000 krónur). Hrafn kveðst sann-
færður um að Íslendingar taki höndum saman um mikilvægt og gefandi
verkefni. „Ég skora á fólk að slá á þráðinn og senda þannig kærar kveðj-
ur til vina okkar og nágranna í Kulusuk.“ orri@mbl.is
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Styrmir Kári
SAFNA FYRIR KULUSUK
STÓRTÓNLEIKAR VERÐA HALDNIR Í ELDBORG Í DAG, LAUGARDAG, KL. 14 Í SAMSTARFI VIÐ TÓNLISTARHÚSIÐ
HÖRPU, ÞAR SEM MARGIR ÞEKKTUSTU TÓNLISTARMENN OG HLJÓMSVEITIR LANDSINS STÍGA Á SVIÐ Í ÞÁGU
ÍBÚA KULUSUK Á GRÆNLANDI, EN TÓNLISTARHÚSIÐ Í ÞORPINU BRANN TIL GRUNNA Í FÁRVIÐRI Á DÖGUNUM.
Grænlensku tónlistar-
mennirnir Anda Kuitse,
Anton Sianiale og
Efraim Ignatiessen.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Úrslitakeppnin í körfubolta:
Keflavík – Stjarnan.
Hvar? Toyota-höllin, Keflavík.
Hvenær? Sunnudag kl. 19:15.
Körfubolti
Hvað? Óperu-
tónleikar.
Hvar? Í Kaldalóni,
Hörpu.
Hvenær? Laugardag
kl. 20.
Nánar: Þóra Einarsdóttir sópran og
Garðar Thór Cortes tenór syngja.
Óperutónleikar
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Einar Mikael töframaður.
Hvar? Í Austurbæ.
Hvenær? Sunnudag kl. 19:30.
Nánar: Meðal atriða verða heims-
frægar sjónhverfingar, þar á meðal er
kona söguð í sundur.
Sjónhverfingar
Hvað? Skonrokk.
Hvar? Menningarhús-
inu Hofi, Akureyri.
Hvenær? Laugardag
kl. 20.
Nánar: Margir af
bestu rokksöngvurum
þjóðarinnar ásamt magnaðri hljómsveit.
Magni, Eyþór Ingi, Páll Rósinkranz, Pét-
ur Guðmunds og Biggi Haralds flytja
rjómann af bestu rokklögum allra tíma.
Rokkveisla
Hvað? Söngleikurinn Mary Poppins.
Hvar? Borgarleikhúsið, stóra svið.
Hvenær? Laugardag og sunnudag
kl. 20.
Mary Poppins
Hvað? Afmælishátíð.
Hvar? Á Kjarvalsstöðum.
Hvenær? Sunnudag kl. 11-17 en þá eru
40 ár liðin frá opnun Kjarvalsstaða.
Afmæli Kjarvalsstaða
* Forsíðumyndina tók Golli.