Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013 Sjálfstæðisbaráttu Ástu Ragnheiðar má finna víðar stað en innan veggja þingsins. Á fimmtudag lagði hún fram frumvarp um að alþingissvæðið yrði undir sérstökum skipulags- lögum eins og þjóðgarðurinn á Þing- völlum, þar sem þingið var stofnað, og Keflavíkurflugvöllur sem varn- arsvæði. Rökstyður hún það með því að Alþingi sé friðheilagt samkvæmt stjórnarskrá og enginn megi raska friði né frelsi þess. Ekki þarf að ganga gruflandi að tilefninu, en ágreiningur hefur ítrek- að risið milli Alþingis og Reykjavík- urborgar um nánasta umhverfi þingsins. Er það skoðun margra þingmanna að lítið tillit hafi verið tekið til þarfa þingsins. Það eigi ekki síst við um Austurvöll, sem sé illa hirtur og sóðalegur, og er til þess tekið að styttan af Jóni Sigurðssyni hafi ekki einu sinni verið lýst upp. Steininn tók úr þegar listaverki Santiagos Sierra um borgaralega óhlýðni var komið fyrir gegnt Al- þingishúsinu. Óskað var eftir að það væri fjarlægt en það gerðist ekki fyrr en daginn fyrir þingsetningu í haust. Og fyrr en varði var það kom- ið aftur á Austurvöll. Þá þykir skjóta skökku við að þingið hafi ekkert að segja um skipulagsmál þegar gangstéttinni við þinghúsið sleppir. Það sé t.d. á valdi garðyrkjustjóra borgarinnar að samþykkja tónleika á Austurvelli ofan í þingfundi. Þá sé ástæða til að skoða hvort takmarka eigi umferð við Alþingi, en í búsáhaldabylting- unni var vörubílum lagt fyrir utan þinghúsið og legið á flautunni. Ljóst er að frumvarpið ratar ekki á dagskrá þingsins í þessari atrennu, það stóð líklega aldrei til, en í því fel- ast skýr skilaboð til þess sem tekur við keflinu eftir kosningar. Umdeilt listaverk við Alþingi. Alþingi helgi sér svæði H itastigið hefur verið við frostmark á Al- þingi alla vikuna. Og ekkert þokast í samkomulagsátt í óformlegum viðræðum forystu- manna stjórnarflokkanna og stjórn- arandstöðunnar. Það varð til þess að Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir, forseti Al- þingis, tók þá fordæmislausu ákvörðun að neita að setja þinginu dagskrá fyrr en eitthvað hefði mjakast í viðræðunum. Þar með greip forseti Alþingis inn í at- burðarásina með afgerandi hætti og setti Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra stólinn fyrir dyrn- ar. Villköttur? Þess vegna var ekki boðað til þing- fundar á miðvikudag. Mun rök- stuðningur Ástu Ragnheiðar hafa verið sá að komið væri fram yfir síðasta starfsdag þingsins, sem áætlaður hafði verið 15. febrúar, og forsætisráðherra þyrfti að sýna fram á tilganginn með frekari þingfundum – að þeir væru til ein- hvers. Samkvæmt heimildum olli það skjálfta á stjórnarheimilinu og féllu stór orð. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem slær í brýnu milli Ástu og Jó- hönnu og er óhætt að segja að Ásta sé sá villiköttur sem Jóhönnu hefur gengið hvað erfiðlegast að smala. Nokkrum sinnum hefur soð- ið upp úr í samskiptum þeirra. Til að mynda var mikill þrýstingur á forseta Alþingis frá stjórnarflokk- unum að sleppa guðsþjónustu við upphaf þinghalds í haust og gekk mikið á á bak við tjöldin. Þá tók Ásta Ragnheiður afdráttarlausa ákvörðun um að halda sig við hefð- ina. Það yrði messað. Enn harðar var sótt að Ástu Ragnheiði eftir umfjöllun Kastljóss síðastliðið haust um störf ríkisend- urskoðanda. Kröfðust þingmenn úr stjórnarliðinu þess að hún léti hann víkja og fyrir þeim hópi fór Val- gerður Bjarnadóttir. En Ásta Ragnheiður hrinti áhlaupinu og mun afstaða hennar hafa verið að embætti ríkisendurskoðanda væri of mikilvægt til að vegið yrði að sjálfstæði hans í störfum. Lýðræðisleg niðurstaða En óhætt er að segja að deilurnar milli þeirra hafi aldrei rist dýpra en í upphafi árs 2012. Þá sagði Jó- hanna í viðtali í hádegisfréttum RÚV að hún hefði gert tillögu um Ástu Ragnheiði sem forseta Al- þingis og hún hefði „enn“ ekki komið með tillögu um breytingar á því. Skömmu áður hafði Birgitta Jónsdóttir lýst því yfir að hún væri að safna undirskriftum þingmanna til að fara fram á vantraust á for- seta Alþingis. Tilefnið var að Ásta Ragnheiður setti mál Bjarna Benediktssonar á dagskrá þingsins um að fella bæri niður landsdómsmálið gegn Geir H. Haarde. Mörður Árnason lét þau ummæli falla á þeim tímapunkti að kjósa ætti aftur um forseta Alþing- is og ungir jafnaðarmenn ályktuðu og lýstu vantrausti á störf hennar. Við það tækifæri sagði Ásta Ragn- heiður að hún reyndi að halda trúnað við alla flokka og því héldi hún sig til hlés frá pólitískum skoð- anaskiptum. Þetta væri lýðræðisleg niðurstaða og hana bæri að virða. „Þarna var ég nú bara að greiða atkvæði um að málið fengi fram- gang í þinginu og ég hef nú talið það skyldu mína sem þingforseta að mál geti fengið að minnsta kosti þann framgang að fara til nefnd- ar,“ sagði hún í viðtali á RÚV. Skrefið stigið En það er þungt fyrir fæti núna í þinginu. Innan beggja stjórnar- flokka eru efasemdamenn um nýju stjórnarskrárdrögin. Það var þægi- leg taktík fyrir Jóhönnu að halda málinu gangandi í þinginu á meðan það er í slíkri biðstöðu og gagn- rýna stjórnarandstöðuna fyrir mál- þóf. Enda ljóst að stjórnarand- staðan fellst ekki á neinar mála- miðlanir korteri fyrir kosningar sem fela í sér breytingar á stjórn- arskrá. En nú hefur forseti Alþingis sýnt að hann hefur dagskrárvaldið og er viljugur að beita því. Með því tekur hann málin í sínar hendur og þvingar formenn stjórnarflokkanna að samningaborðinu. Þessi óvæntu kaflaskil skýra ef til vill að Ólöf Nordal lagði fram tillögu um að þingi yrði frestað sl. föstudag, síð- ar ef nauðsyn krefði, en hefðin er sú að forsætisráðherra eigi frum- kvæði að því. Stjórnarandstöðunni var nóg boðið. Og síðar um daginn brást forsætisráðherra við með því að leggja fram samskonar tillögu. Þar með er það Ástu Ragnheiðar að setja þingfrestun á dagskrá. Víst hafa aðstæður verið óvenju- legar í þinginu á þessu kjör- tímabili, ófriðurinn meiri en vant er og sviptingarnar þannig að vinstri stjórnin endar ferilinn sem minnihlutastjórn. En Ásta Ragn- heiður hefur gefið tóninn og stigið skref í átt að því að gera Alþingi og forseta Alþingis óháðari for- sætisráðherra en venjan hefur ver- ið hér á landi. Þingheimur hefur látið ófriðlega á kjörtímabilinu í forsetatíð Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, en hún hefur forðast að láta draga sig inn í átökin. Morgunblaðið/Styrmir Kári Skref í átt að meira sjálfstæði Alþingis ÁKVÖRÐUN ÁSTU RAGNHEIÐAR JÓHANNESDÓTTUR, FORSETA ALÞINGIS, AÐ BEITA DAGSKRÁRVALDINU TIL AÐ KNÝJA FRAM VIÐRÆÐUR ÞINGFLOKKANNA ER FORDÆMISLAUS. EN ÞAÐ ER EKKI FYRSTA RIMMAN VIÐ FORSÆTISRÁÐHERRA. * „Það liggja fyrir ýmis mál sem líkur eru á að verði kláruð, til dæmislagabreytingar út af Landspítalanum og Bakka. Jafnvel þó að allt smelli íviðræðum þingflokksformanna, þá tæki tvo til þrjá daga að ljúka þingstörfum.“ Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins Þjóðmál PÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is Ásta Ragnheiður og Jóhanna hafa ítrekað tekist á um störf Alþingis. Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ómar Þegar litið er yfir feril Ástu Ragnheiðar í forsetastóli er ljóst að hún hefur lagt sig fram um að vera sjálfstæð í sínum störfum gagnvart stjórn og stjórnarandstöðu. Það styrkir stöðu hennar að hún fékk yf- ir 95% atkvæða þegar hún var kjörin. Þessi afstaða sést meðal annars á því að hún hefur aldrei gert grein fyrir atkvæði sínu á kjörtímabilinu og aldrei talað fyrir pólitísku máli. Hún hefur þó beitt sér fyrir almennum málum, einkum þeim er varða þingið, svo sem frumvarpi um rannsóknarnefndir þingsins þar sem hlutverk þeirra er skilgreint. SJÁLFSTÆÐUR FORSETI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.