Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Síða 9
24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
07.15Vakna við suðið í vekjaraklukkunni, feróviljug á fætur til að vekja börn og buru,
sem gengur hálfbrösuglega þar sem kötturinn flækir
sér utan um fætur mína, ég þarf að hafa mig alla við
að detta ekki á andlitið, þetta gerist alla morgna!
07.50 Eftir að hafa borðað kornflex og hrökk-brauð, kyssi ég krakkana og manninn
minn bless og þau halda af stað í skólann, ég loka dyr-
unum á eftir þeim og stekk í sturtu!
08.30 Ég fer niður á Alþingisreit þar sem éger með aðstöðu fyrir rannsóknir mínar
frá liðnu ári! Á bílaplaninu tekur á móti mér Ólafur
Thorarensen, yfirmaður fasteigna á Alþingi, með bros
á vör eins og alltaf, við spjöllum örlítið saman um
heima og geima, ég lyftist öll upp enda Ólafur mikið
eðalmenni. Ég fer svo inn á skrifstofu en þar er eng-
inn og ekkert kaffi heldur, ég sest í sætið mitt og fer
að skrifa. Í dag er ég að skrifa um silfur-armbauginn
góða sem fannst í sumar, hann er aldursgreindur frá
lokum 9. aldar, einstaklega mikilfenglegur gripur. Ég
horfi á hann um stund og gleymi mér. Þannig fóru
þau skrif.
10.00 Nú er það fundur með stelpunum mínumsem eru að vinna með mér. Fundur dags-
ins fjallar um niðurstöður okkar úr uppgreftrinum á
Alþingisreitnum 2012. Við erum að skila skýrslu fljót-
lega og því ekki seinna vænna en að bera saman bæk-
ur okkar! Niðurstaðan er vægast sagt spennandi og
nú er bara að setja þetta allt saman í skiljanlegt sam-
hengi! Góður fundur. Ég tek þó eftir því meðan á
fundinum stendur að síminn minn hringir í sífellu!
Eftir fundinn hringir síminn ... aftur, ég svara og á
línunni er bóndi nokkur sem býr á Suðurlandinu, hann
vill ræða við mig um Ferðalok. Hann er ánægður með
þetta allt saman en vill þó benda mér á nokkra staði
sem ég þurfi að skoða betur og þá með tilliti til Ís-
lendingasagnanna, hann segir mér sögu um sig og fé-
laga sína úr sveitinni og hvernig þeir sviðsettu bar-
daga Gunnars á Hlíðarenda hér í gamla daga, þetta
var gott og fræðandi símtal, en þónokkur slík hef ég
átt undanfarnar vikur við fólk sem hringir og vill deila
með mér sögum og öðru fræðandi um land og þjóð.
Ég kveð hann með bros á vör.
12.00 Ég var svo skynsöm að byrja í ræktinniekki alls fyrir löngu, og fer því samvisku-
samlega í tíma hjá mágum mínum tveimur í Crossfit
XY í Garðabæ. Þar tek ég á því með góðu fólki, æf-
ingin er góð og vonandi verð ég það einhvern dag-
inn!
13.10 Mæti löðursveitt á fund með RakelGarðars og Ágústu Ólafs framleið-
endum að Ferðalokum. Við fáum okkur kaffi, um-
ræðuefni dagsins er Gísli Súrsson, langskipið Vé-
steinn og sú staðreynd hve heppinn við erum að eiga
svona stórkostlega leikara sem léðu okkur starfs-
krafta sína í þáttunum. Ferðalok hafa verið okkur
hugleikin í tæp tvö ár og því einstaklega gaman að
sjá þættina lifna við á skjánum.
14.00 Ég stekk yfir á Alþingisreitinn og tekupp fyrri störf. Armbaugurinn góði bíð-
ur þolinmóður eftir mér. Ég fer að ímynda mér sögu
hans og brenna margar spurningar á mér. En þenn-
an armbaug hefur eflaust mikilmenni borið.
16.30 Ég sendi þeim heiðursmönnum hjáFramkvæmdasýslu ríkisins línu, læt þá
vita að ég er ekki horfin af yfirborði jarðar og að
þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur. Þeir þekkja mig,
ég sendi reikning þegar þarf að borga launin, ekkert
vesen, ég fæ bros frá Jóni Ásbjörns til baka!
17.00 Ég fer á síðdegisfund með Hjalta ÞórVignissyni, bæjarstjóra á Höfn í Horna-
firði. Við ræðum um Hornafjarðarsveitina, menning-
ararfinn og þann mikla kraft sem þar býr, bæði í
mönnum og náttúru. Ég get talað endalaust um
hæðir og hóla. Við klárum kaffibollann og ákveðum
að hittast aftur fljótlega og taka upp þráðinn.
17.30 Ég fer í Bjarkarhúsið í Hafnarfirði ogsæki stelpuna mína hana Álfhildi á fim-
leikaæfingu, ég er svo heppin að eiga stóra stelpu
sem gat keyrt hana þennan daginn á æfingu, en hún
hafði einnig hlaupið undir bagga fyrir mig með því
að koma bróður sínum á fótboltaæfingu í Kaplakrika
nokkru áður, það er gott að eiga góða að.
18.30 Ég opna ísskápinn heima hjá mér, þarer ekkert spennandi nema kannski súr-
mjólk. En næ að græja eitthvað ætilegt með því að
sjóða grjónagraut og skera niður SS lifrarpylsu, það
klikkar sjaldan.
DAGUR Í LÍFI VÖLU GARÐARSDÓTTUR FORNLEIFAFRÆÐINGS
Vala Garðarsdóttir hefur fengið ófá símtöl þar sem fólk vill deila með henni sögum og öðru fræðandi um land og þjóð.
Morgunblaðið/Golli
Get talað endalaust
um hæðir og hóla
RÍKISSJÓNVARPIÐ SÝNIR UM ÞESSAR MUNDIR ÞÆTTINA FERÐALOK, ÞAR SEM FJALLAÐ ER
UM ÍSLENDINGASÖGURNAR ÚT FRÁ SJÓNARHÓLI FORNLEIFAFRÆÐI OG BÓKMENNTA.
VALA GARÐARSDÓTTIR, UMSJÓNARMAÐUR ÞÁTTANNA, LÝSIR HÉR DEGI Í LÍFI SÍNU.
Ferðafélag Íslands stendur fyrir gönguferðum fyrir
bakveika í apríl – júní.
Léttar gönguferðir með styrkjandi stöðuæfingum
3 í viku auk heimaverkefna og þegar líður á verk-
efnið verður farið í léttar fjallgöngur.
Bakmeiðsli er hvimleiður kvilli sem hrjáir stóran
hóp fólks.
Gönguferðir og styrkjandi æfingar geta í mörgum
tilfellum gert gæfumuninn og komið fólki á beinu
brautina á ný.
Umsjónarmenn með gönguferðum í bakskólanum
eru íþróttakennarar og sjúkraþjálfarar.
Sérstakur kynningarfundur fyrir bakskóla FÍ verður
haldinn þriðjudaginn 26. mars kl. 20 í sal FÍ Mörkinni.
Ekki vera í baklás
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533
eða í netpóst fi@fi.is
Bakskóli
Ferðafélags Íslands
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS