Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013
Ferðalög og flakk
É
g byrjaði að vinna hérna í
janúar 2012. Er að vinna
við jarðhitaboranir við nýja
jarðhitavirkjun sem er ver-
ið að byggja. Ég vinn 28 daga og
er svo í fríi 28 daga. Þá 28 daga
sem ég er í vinnu er ég í Taupo og
gisti þar. Hina 28 daganna, sem ég
er í fríi, geri ég eiginlega bara ná-
kvæmlega það sem mig langar til
hverju sinni. Hvort sem það eru
ferðalög til útlanda eða eða innan
Nýja-Sjálands,“ segir Valdimar
Ellertsson, starfsmaður Jarðborana
á Nýja-Sjálandi.
Valdimar og félagar hans þar
ytra hafa ferðast víða um nálæg
lönd sem og innanlands þarna og
gert margt skemmtilegt. „Ég er
búinn að fá þrjú vaktafrí hérna.
Einu sinni leigðum við okkur hús-
bíl og keyrðum um suðureyjuna.
Svo hef ég prófað fallhlífarstökk,
teygjustökk, alvöru fjallahjól þar
sem maður fer með kláf upp í fjall
og brautin liggur beint niður fjall-
ið, og margt margt fleira.“
Annar heimur neðansjávar
Valdimar hefur einnig skoðað ná-
læg lönd. Fór til Balí þar sem
hann tók köfunarpróf. „Við fórum á
Gili Trawanga þar sem við tókum
tvö köfunarpróf sem hafa gagnast
okkur mikið því á flestum stöðum
er boðið upp á köfun og þar kemur
maður í allt annan heim. Gili Traw-
anga var sérstakur staður og sá
staður sem mig langar mest að
fara aftur til.“
Valdimar er ekki einn á báti,
hann á kærustu, Jaimie Lovell,
sem vinnur á olíuborpalli og er í
sama vaktakerfi og Valdimar. „Við
fórum til Taílands þar sem við vor-
um í 28 daga að leika okkur og
skoða okkur um.
Á þessum ferðalögum held ég að
ég hafi séð og fengið að leika mér
við allt dýraríkið. Sat á krókódíl,
lék við ungan, hvítan tígur, kyssti
kóbraslöngu, lét fíl plata mig upp
úr skónum, kafaði með 13 bull
sharks eða nautháfum eins og þeir
heita á íslensku, kafaði með skjald-
bökum sem voru sennilega svona
rúmlega 100 ára. Það mátti samt
ekki fara á bak á þeim, en það
hefði verið endalaus snilld,“ segir
hann og hlær.
Sendir ömmu alltaf kort
Þó að Ísland sé langt í burtu hefur
Valdimar farið tvisvar sinnum alla
leið heim, í annað skiptið með Jai-
mie. „Ég reyni að senda ömmu
Jónu kort á tveggja vikna fresti og
fór og heimsótti hana þegar ég
kom síðast. Einnig kom ég með
Jaimie til Íslands í janúar til að
sýna henni alvöru vetur. Hún gekk
á ís í fyrsta skipti og sá snjókomu
líka í fyrsta skipti. Þú getur
ímyndað þér hvað það var gaman
að labba með henni þegar hún var
að gá hvar hún ætti að stíga á ís-
inn til að fljúga ekki á hausinn en
var líka að horfa upp í loftið á
snjókornin og flaug svo á hausinn.“
Í dag er Valdimar á lítilli eyju í
miðju Kyrrahafi sem heitir Raro-
tonga. „Ég held að það séu um
3000 kílómetrar í næsta McDo-
nalds. Við erum hérna fjögur að
slappa af. Ég, Jaimie og tveir
vinnufélagar mínir. Í þetta skiptið
er ég bara í stuttu fríi eða tvær
vikur vegna vaktabreytinga.
Næst er verið að spá í að fara til
Skotlands en það getur breyst
snögglega og við gætum endað á
Fidji eða Bora Bora sem eru á list-
anum sem og Kína og Japan og
það er eiginlega hægt að telja
endalaust upp af löndum og stöð-
um sem mig langar að sjá.“
Valdimar segir að tíminn sé
fljótur að líða þegar það er svona
gaman. Árið 2012 hafi eiginlega
þotið framhjá. „Tímin hefur aldrei
liðið jafnhratt. Vinnan er fín þann-
ig að sá tími er yfirleitt snöggur að
líða. Fríin eru ennþá sneggri að
líða. Ég get ekki sagt að mér leið-
ist þetta neitt. Svo ég get ekki séð
að ég sé á leiðinni heim neitt á
næstunni. Við eigum um hálft ár
eftir af samningi sem við erum
með. En það tekur verkefni við eft-
ir þetta verkefni. Í þessum geira
sem ég er að vinna í er nóg að
gera um allan heim. Ef maður
nennir að vinna svona lengi að
heiman. En ég á eiginlega hvergi
heima þannig að þetta hentar mér
ágætlega.“ „Þetta var ansi gaman.“ Í Gravity Canyon á rúmlega 200 kílómetra hraða.
VALDIMAR ELLERTSSON Á FLAKKI
Léku sér við
allt dýraríkið
VALDIMAR VINNUR ÁSAMT NOKKRUM ÖÐRUM ÍSLENDINGUM VIÐ JARÐHITABORANIR
HJÁ JARÐBORUNUM Á NÝJA-SJÁLANDI. VAKTAFYRIRKOMULAGIÐ ER EINFALT. UNNIÐ Í 28
DAGA OG SVO ER FRÍ Í 28 DAGA. OG ÞÁ ER FARIÐ AÐ LEIKA SÉR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
*Við fórum áGili Trawangaþar sem við tókum
tvö köfunarpróf
Í vinnunni að kyssa frosk. Ekki allir
sem geta sagt það.
60
g áferð að eigin vali
Íslensk hönnun og framleiðsla
nun frá 19
elja um lit o
r. 24.300
E60-
Klassísk hön
Hægt að v
Verð frá k