Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Qupperneq 24
*Heimili og hönnunKaffihúsið Mokka hefur staðið nánast óbreytt í meira en hálfa öld »27
É
g féll fyrir menningu og gleði þeirra hér í Beirút
strax við fyrstu heimsókn,“ segir arkitektinn Gulla
Jónsdóttir í samtali við Huffington Post þar sem
henni eru gerð góð skil fyrir nýjustu byggingar
sínar. Hún hefur teiknað tvö hús hlið við hlið í miðbæ
Beirút. Annað hvítt en hitt svart.
Gulla er heimsþekktur arkitekt en hún var aðeins 19
ára þegar hún flutti frá Íslandi til Los Angeles. Nú á hún
fyrirtæki á Íslandi, Los Angeles, New York og Mið-
Austurlöndum. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir
hönnun sína, meðal annars fékk hún verðlaun frá Esquire-
tímaritinu sem hönnuður ársins. Verðlaunin fékk hún fyrir
hönnun sína á veitingastaðnum Red O sem opnaður var
árið 2010. Þá hefur hún tekið þátt í verkefnum eins og
endurhönnun á einu af þekktustu kvikmyndahúsum Holly-
wood og verið í samstarfi við Philippe Starck. Sá hannaði
músina við PC-tölvur. Geri aðrir betur.
Arkitektúr er karlaheimur og segist Gulla vera heppin
að vinna með aðeins konur sér við hlið. „Ég hugsa ekki
þannig að þetta sé vandamál heldur reyni ég að hugsa í
lausnum og hvernig ég get gefið af mér í gegnum hönn-
un.“
Gulla var að vinna að öðru verkefni í Líbanon þegar
hún var kynnt fyrir samstarfsaðilum sem tóku henni opn-
um örmum. Eftir fundahöld varð úr að hún yfirtók annað
verkefni þar við hliðina á og miðbær Beirút mun því bera
íslenskt yfirbragð. „Beirút var alltaf talin vera París Mið-
Austurlanda og ég hef á tilfinningunni að borgin sé að
koma til baka. Ég held að lífsgleðin sem ég finn hérna
eigi þátt í hvernig ég teiknaði þessar tvær byggingar.“
Gulla segir að í hvíta húsinu, sem kallast Mhanna Beir-
ut og er veitingastaður á tveimur hæðum með tignarlegum
þakgarði, taki hún hluta úr arabískri arfleifð og setji í
steypu. „Þar er ég að taka arabíska skrautskrift sem ég
set í laufblaðsform.
Í svarta húsinu, Supperclub, er einnig veitingastaður og
klúbbur auk þess sem þar verður „dinner and a show“
þar sem hægt er að borða og njóta matar og drykkjar.
Þar tek ég steina sem finnast á ströndinni hér í Beirút
og geri form sem minnir helst á væng.“ Í viðtalinu er
einnig spurt um þá byggingu sem Gulla hefði helst viljað
taka þátt í að gera og stendur ekki á svari: „Fugls-
hreiðrið í Peking. Mig langar að taka þátt í Ólympíu-
leikum einhvern tímann á mínum ferli því mér finnst ótrú-
legt hvað íþróttamenn geta gert. Mannslíkaminn heillar
líka mikið sem form og það er hægt að gera hann að un-
aðsfullum arkitektúr.“
Guðlaug Jónsdóttir arkitekt hefur skapað sér nafn í Bandaríkj-
unum og víðar og hefur fengið mörg verðlaun. Byggir nú í Beirút.
Morgunblaðið/Heiddi
Supperclub sem er veitingastaður og klúbbur.
Centerpoint, nýr veitingastaður í Vestur-Hollywood. Hannaður af Gullu. Arabísk skrautskrift í gluggunum. Glæsilegt.
Mhanna Beirut er veitingastaður á tveimur hæðum með tignarlegum þakgarði.
ARKITEKTINN GULLA JÓNS
Svart og hvítt í Beirút
GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR TEIKNAR TVÖ VEITINGAHÚS Í MIÐBÆ BEIRÚT. HÚSIN HAFA VAKIÐ ATHYGLI UM ALLAN HEIM
ENDA GLÆSILEIKINN Í FYRIRRÚMI. GULLA SEGIR AÐ BEIRÚT SÉ AÐ VERÐA PARÍS MIÐ-AUSTURLANDA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is