Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Síða 27
K
affihúsið Mokka er algjör perla í miðbæ
Reykjavíkur. Í þessu húsi við Skólavörðu-
stíg 3a er ekki aðeins hægt að gæða sér á
úrvals kaffi og vöfflum heldur líka njóta
matar og drykkjar í góðum félagsskap, í rólegheit-
um án tónlistar, í sérstaklega fallegu umhverfi.
Morgunblaðið sagði Mokka „smekklegt og list-
rænt“ í grein hinn 28. maí við opnun kaffihússins
árið 1958 og eiga þessi orð ennþá vel við. Eins og
sést á meðfylgjandi myndum hefur innréttingum
Halldórs Hjálmarssonar ekki verið breytt, nema
hvað efni hafa verið endurnýjuð eftir þörfum. Þetta
eykur enn á sjarma staðarins enda húsgögnin þægi-
leg og nytsamleg, rýmið er úthugsað, og mikil
blessun að þarna hafi ekki öllu verið skipt út eins
og á svo mörgum öðrum stöðum.
Aftur til Morgunblaðsins 1958 sem vitnar til eig-
anda kaffihússins Guðmundar Baldvinssonar. „Þegar
hann var á Ítalíu við söngnám, kynnti hann sér hin
ítölsku kaffihús er hafa á boðstólum hið víðfræga
„expressokaffi“.“
Það hefur áreiðanlega haft sitt að segja um bless-
unarlegan skort á breytingum að eigendur hafa ver-
ið þeir sömu frá upphafi. Guðmundur er látinn en
eiginkona hans, Guðný Guðjónsdóttir, lifir hann og
reksturinn er enn í höndum fjölskyldunnar.
Morgunblaðið lýsir kaffihúsinu svo við opnun:
„Kaffihús þetta er mjög skemmtilegt. Geta má þess
til dæmis að veggir eru allir klæddir með olíu-
bornum hessianstriga, húsgögnin létt og með fallegu
áklæði, ljóst teppi á gólfi. Á veggjum hanga mál-
verk og myndir eftir Braga Ásgeirsson og Bjarna
Jónsson, veggteppi er eftir Barböru Árnason og
höggmynd eftir Jón Benediktsson svo nokkuð sé
nefnt.“
Síðar í sömu grein er skemmtileg lýsing frá kaffi-
smökkun. „Guðmundur bar síðan fram ýmis afbrigði
af expressokaffinu og einnig tyrkneskt kaffi. Luku
menn upp einum munni um að hér væri vissulega
um ósvikið kaffi að ræða. Sumum fannst tyrkneska
kaffið jafnvel taka hinu ítalska fram. Guðmundur
sýndi gestum sínum expressokaffivélina, en kaffi-
gerðin byggist á því að við gufuþrýsting frá þessari
vél er náð öllum kraftinum úr kaffi,“ segir þarna og
hafði einn blaðamaður orð á því „að það slægi út á
sér svita eftir þessa kaffidrykkju, enda er því haldið
fram af kunnugum að einn expressokaffibolli sé á
borð við 4-6 bolla af venjulegu kaffi.“
Listamenn hafa frá opnun verið fastagestir á
Mokka, bæði til að drekka kaffið og sýna verk sín
á veggjum staðarins. Í annarri grein úr Morg-
unblaðinu 17. júlí 1969 segir að Mokka sé vinsæll
sýningarstaður. „Þar safnast oft og tíðum saman
miklir andans menn og spekingar og drekka ex-
pressokaffi með súkkulaði út í, en það kvað mjög
liðka heilafrumurnar enda er gestgjafinn Guðmundur
Baldvinsson, lærður á Ítalíu upp á söngmennt, ætíð
reiðubúinn að syngja eina eða tvær aríur gestunum
til yndisauka. Þetta síðasta mátti víst ekki segja því
að þá hefir Guðmundur engan frið. Bið ég lesendur
því að gleyma þessum möguleika.“
Guðmundur notar espressovélina góðu við opnun. Enn er hellt upp á gott kaffi fyrir listamenn og aðra gesti.
Húsgögnin eru létt en engu að síður þægileg.
Smekklegt og
listrænt
KAFFIHÚSIÐ MOKKA HEFUR STAÐIÐ NÁNAST ÓBREYTT VIÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG
FRÁ OPNUN ÞESS 1958 OG NÝTUR ENNÞÁ MIKILLA VINSÆLDA.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
SÍGILD HÚSGAGNAHÖNNUN Í KAFFIHÚSINU MOKKA
* Halldór Hjálmarsson húsgagnahönnuður á heiðurinn aðinnréttingunum á Mokka. Hann var fæddur inn í fjölskyldu hús-
gagnasmiða og naut leiðsagnar í iðninni á smíðastofu föður síns í
Reykjavík, að því er fram kemur á vef Hönnunarsafns Íslands
(honnunarsafn.is).
* Hann stundaði nám við húsgagnadeild Kunsthåndværker-skolen í Kaupmannahöfn á árunum 1953-1956 og voru lærifeður
hans Paul Kjærholm, Hans J. Wegner og Axel Bender Madsen.
* Eftir að hann flutti til Reykjavíkur stofnaði hann sitt eigiðhúsgagnafyrirtæki og vann samhliða því hjá Húsameistara
Reykjavíkur.
* Teikningar Halldórs af innréttingunum eru varðveittar áHönnunarsafni Íslands.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Morgunblaðið/Kristinn
24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða
SÖDAHL vörulínan 2013 komin í Höllina!
– fyrir lifandi heimili –