Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Page 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Page 49
24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Tækin sem notuð eru eðaverða notuð við framleiðsl-una eru afar mismunandi að stærð, allt frá því að minna á hefðbundna borðtölvu upp í stór- an fólksbíl. Einföldustu tækin eru núna ekki dýrari en svo að venju- legir launþegar ráða við að kaupa þau, kosta innan við 200 þúsund krónur vestanhafs. Kvartað er undan því á vefsíð- um að erfitt sé að stilla þau. En gangi allt vel getur kaupandinn hannað og framleitt sjálfur hluti hafi hann til þess nægilega þekk- ingu. Einyrkinn verður frjáls og minna háður stórfyrirtækjum um aðdrætti. Hefðbundin fjöldafram- leiðsla verður á mörgum sviðum úrelt. Spáð er að í kjölfar 3D- umskiptanna muni margir vestrænir fram- leiðendur hætta að útvista störf í Asíulönd- um í sama mæli og nú. Mun hentugra og umhverfisvænna verði þá að búa hlutina til í heimalandinu þar sem neytendurnir búa í stað þess að sigla með þá mörg þúsund kílómetra leið yfir heimshöfin. Fáir verða til staðar í verk- smiðjusölum framtíðarinnar. Þar verður fjöldi 3D-prentara af ýms- um stærðum sem malla allan sól- arhringinn, aðeins þarf að fóðra tækin á upplýsingum og hráefni. Nokkrir starfsmenn sitja við lyklaborð í glerbúrum sínum í salnum og breyta eftir þörfum þeim skipunum sem hver 3D- eining fær. Enn er tæknin á frumstigi og ekki gallalaus þótt fræðilega séð megi „prenta“ nær alla hluti sem hægt er að skanna eða skilgreina á annan hátt á stafrænan hátt. Og oft verður hefðbundin verksmiðjutækni not- uð til að framleiða suma hluta vörunnar en annað gert með 3D- tækjum. Einyrkinn fær ný tækifæri og aukið frelsi VERKSMIÐJUSALIR FRAMTÍÐARINNAR VERÐA SUMIR NÆR MANNLAUSIR EN ÞAR VERÐUR FJÖLDI 3D-PRENTARA AF ÝMSUM STÆRÐUM SEM STRITA ALLAN SÓLARHRINGINN OG HLÝÐA ÖLLUM SKIPUNUM MÖGLUNARLAUST. EN SVO GETA MENN LÍKA ÁTT SÍNA LITLU VERKSMIÐJU HEIMA OG HANNAÐ OG SKAPAÐ NÝJA HLUTI FYRIR SIG EÐA MARKAÐINN. Stúlka með krús sem hún hefur endurskapað með ódýru 3D-tæki. Nýja krúsin er mjög svipuð hinni en áferðin hrjúf, eins og sjá má á innfelldu myndinni. Alþjóðleg lyfjafyrirtæki verja samanlagt mörg hundruð millj- örðum króna árlega í rannsóknir og þróun á nýjum lyfjum. Menn hafa oft brennt sig á því að nýtt lyf valdi aukaverkunum, sem koma ekki strax fram. Banda- ríska lyfjastofnunin, FDA, sam- þykkir að jafnaði um 20 lyf ár hvert og nú tekur að jafnaði um 12 ár að koma nýju lyfi í gegnum nálarauga hennar. Með 3D-aðferðum verður ef til vill hægt að hraða mjög þessu ferli, að sögn sérfræðinga á þessu sviði. Einnig verður hægt að gera traustari tilraunir og að öllu samanlögðu má gera ráð fyrir að kostnaðurinn við að hanna og markaðssetja nýtt, ár- angursríkt lyf verði mun minni. Sem stendur er gert ráð fyrir að nýtt lyf kosti lyfjafyrirtækið að jafnaði um 140 milljarða króna. GÆTI FLÝTT FYRIR LYFJAÞRÓUN Sýnt hefur verið fram á að senni- lega sé hægt að framleiða frum- ur með 3D-prentun og raða þeim upp með ákveðnum hætti í vef þannig að til verði líffæri í stað þeirra sem eru skemmd eða ónýt. Bjartsýnismenn segja því að ef til vill muni með þessu verða ónauðsynlegt að gefa líf- færi. Skurðlæknar muni jafnvel geta pantað sér frumuvef eftir þörfum hverju sinni. Þörfin fyrir líffæragjöf er mikil og þegar er kominn upp svartur, alþjóðlegur markaður fyrir líf- færi. Dæmi eru um að fátækling- ar á Indlandi selji úr sér annað nýrað og nú bíða mörg þúsund manns um allan heim, þ.á m. fjöldi barna, eftir því að fá grædda í sig lifur. Margir deyja áður en til þess kemur. Takist að framleiða með 3D-aðferðum líf- færi úr efnasamböndum mun það bjarga fjölda mannslífa. Útlimir sem framleiddir eru með þrívíddarprentara verða í fyrstu ekki jafngóðir og þeir sem Skaparinn útvegar á hefðbund- inn hátt. En því er spáð að um 2020 verði þeir og önnur líffæri farin að verða nothæf. Nú þegar er svo komið að hægt er að framleiða með 3D- tækni lítið magn af frumuvef til að nota við lyfjatilraunir og greina áhrif eitrunar. En stutt er í að hægt verði að framleiða með sömu aðferðum einfaldan frumuvef til að nota við ígræðslu líffæra. Nú vona menn að síðar meir verði hægt að búa til a.m.k. hluta af afar flóknum og mikil- vægum líffærum eins og lifur. En hvernig er þetta gert? Dr. Gabor Forgacs, sem stofnaði fyrirtækið ONVO, og félagar hans tóku eftir því árið 1996 að frumur á fósturstigi loða saman og hreyfast eins og einn sam- hangandi klumpur er virðist hafa ýmsa eiginleika vökva. Árið 2000 var í fyrsta sinn gerð aðgerð á þvagblöðru með því að nota eins konar „stillansa“ úr gervi- efni sem þakið var slíkum frum- um úr sjúklingnum sjálfum. Þess- ar frumur voru náttúrulegar, ekki framleiddar með 3D. Árið 2003 tókst á rann- sóknastofu hjá Clemson- fyrirtækinu að breyta prentara þannig að hann gat komið frumum fyrir á stillansa. Ári síð- ar þróaði dr. Forgacs aðferð til að framleiða frumuvef með 3D- tækni án þess að nota stillansa. VERÐUR HÆGT AÐ FRAMLEIÐA VARAHLUTI Í MENN MEÐ ÞRÍVÍDDARPRENTUN? Jim Kor er uppfinningamaður og býr í Winnipeg í Kanada. Fyrirtæki hans kynnti árið 2011 Urbee renni- lega frumgerð umhverfisvæns tvinnbíls sem markaði tímamót: Yf- irbyggingin var framleidd með 3D. Margs konar hagkvæmni kom í ljós og framleiðslan tók mun skemmri tíma en í venjulegri verk- smiðju. Engin mót þurfti. Kor segir að oft sé notað óþarflega þykkt og öflugt efni í suma hluta sem lítið mæði á, ástæðan sé að of snúið sé að steypa hlutina með tilliti til þessa. Þannig sé nóg að stuðari sé öflugur sums staðar, annars staðar geti hann verið mun efnisminni. URBEE VAR FYRSTI 3D-BÍLLINN Urbee er tveggja sæta tvinnbíll og um 600 kg að þyngd. Tekist hefur að smíða með 3D- aðferðum nothæfa hríðskotabyssu úr plastefnum, að vísu eru sumir hlutar hennar búnir til á hefðbund- inn hátt og skotfærin eru aðkeypt. Umrædd byssa olli nokkru fjaðrafoki í Bandaríkjunum í árs- byrjun vegna deilnanna um byssu- löggjöf og hömlur til að reyna að draga úr morðtíðni. Bent var á að lítið gagn yrði að því að banna full- komna árásarriffla ef menn gætu einfaldlega búið þá til í bílskúrnum. 3D-BYSSUR VEKJA UGG Þegar hefur tekist að „prenta“ nýrnavef sem virðist virka. P IP A R \T B W A - S ÍA Sæktu um lykil núna á ob.isí tíunda hvert skipti sem þú dælir 25 lítrum eða meirameð ÓB-lyklinum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.