Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Qupperneq 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Qupperneq 64
SUNNUDAGUR 24. MARS 2013 Þín ánægja er okkar markmið Nýjar áskriftarleiðir í farsíma hjá Vodafone VODAFONE 20 VODAFONE 100 20 MÍN 20 SMS 20 MB 590 KR. 100 MÍN 100 SMS 100 MB 1.890 KR. VODAFONE 250 VODAFONE 500 250 MÍN 250 SMS 250 MB 2.990 KR. 500 MÍN 500 SMS 500 MB 4.990 KR. VODAFONE 1000 1000 MÍN 1000 SMS 1000 MB 7.990 KR. KLÁRAST HRINGIR ÞÚ FYRIR 0 KR. INNAN FJÖLSKYLDU ÖRYGGISNET FJÖLSKYLDUNNAR INNIFALDAR MÍNÚTUR GILDA LÍKA Í HEIMASÍMA OG TIL ÚTLANDAHVÍTA H Ú S IÐ /S ÍA Garðar og Erlingur Jack við upptökur. Stefnt er á frumsýningu á afmælisdegi Örlygs í maí. GARÐAR ÖRN OG ERLINGUR JACK Gera kvikmynd um Örlyg Sturluson Örlygur Sturluson lést aðeins 18 ára gamall. Hann var eitt mesta efni sem fram hefur komið á Íslandi. Við erum búnir að vera í ár að þessu, erum aðklára að klippa og stefnt er á frumsýningu áafmælisdaginn hans, 21. maí,“ segir Garðar Örn Arnarsson kvikmyndagerðarmaður en hann og Erlingur Jack Guðmundsson hafa verið að vinna að kvikmynd til að heiðra minningu Örlygs Sturlusonar sem lést aðeins 18 ára gamall. Örlygur var eitt mesta efni sem fram hefur komið í íslenskum körfubolta og dauði hans var mikill harm- ur fyrir íþróttasamfélagið og Reykjanesið en hann lék með Njarðvík. „Við förum yfir þennan stutta feril hans en hann náði samt að afreka ansi margt. Við erum búnir að taka viðtöl við fjölmarga og safna myndefni sem fáir hafa séð. Við fórum til North Carolina í Bandaríkj- unum þar sem Örlygur stundaði nám og spilaði körfubolta með Charlotte Christian Knights undir stjórn fyrrverandi NBA-leikmannsins Bobby Jones sem varð meistari með Philadelpia 76’ers árið 1983. Þar kom í ljós að hann á tvö met enn þann dag í dag í skólanum. Yfir stolna bolta og stoðsendingar á einu tímabili. Bobby Jones hafði miklar mætur á Örlygi og sagði að hann væri einn besti leikmaður sem hann hefði þjálfað.“ Garðar hefur stimplað sig inn sem kvikmynda- gerðarmaður íþróttanna en hann gerði einnig heim- ildarmynd um knattspyrnumanninn Guðmund Stein- arsson. „Þarna liggur áhuginn. Ég horfi mikið á 30 for 30 á ESPN og áhrifin eru frá þeim þáttum. Myndin verður í þeim stíl.“ Myndina fjármögnuðu þeir með hjálp einkaaðila og með styrk frá Menning- arráði Suðurnesja. „Það er flott að geta haldið heiðri hans á lofti því hann var einstakur drengur.“ „Ég segi oft: Þetta er löngu hætt að vera áhugamál, þetta er lífstíll,“ segir Guðný Vala Tryggvadóttir en hún á Sankti Bernharðs-hunda sem alls staðar vekja athygli. Guðný hefur haft St. Bernarðs- hunda á heimilinu síðan 1997. Margir muna eftir kvikmyndinni um Beethoven sem sló í gegn árið 1992 þar sem þessi tegund var í að- alhlutverki. „Að mörgu leyti eru hundarnir eins og í Beethoven en að sjálfsögðu ekki að öllu leyti þar sem myndin var að ýkja tegundina mikið en um leið var kannski skemmtilegra að horfa á það,“ seg- ir Guðný og hlær. „Tegundin er stór, loðin og mjög falleg, einkar góð og meðfærileg miðað við stærð. Ég hef alltaf haft áhuga á Sankti Bernharðs-hundunum og hef oft sagt að þessi áhugi sé meðfæddur. Þeir eru mér mjög kærir og fer allur minn tími í að sinna þeim. Best við Sankti Bernharðshundinn er að þeir hafa hjarta úr gulli, eru trúir og tryggir sinni fjölskyldu og einkar góðir við börn. Úti í náttúrunni er yndislegt að vera með þeim, sérstaklega þegar það er snjór og kalt enda elska þeir þannig veður.“ GÆLUDÝRIÐ MITT Meðfærileg miðað við stærð Guðný og Jolene sem er nýorðin tveggja ára. Hefur unnið til fjölda verðlauna á ræktunarsýningum HRFI og Guðný ræktaði hana sjálf. Morgunblaðið/Kristinn ÞRÍFARAR VIKUNNAR Beaker eða Bikar úr Prúðuleik- urunum er grallari af Guðs náð. Hjarta hans er einnig hreint. Nýi Páfinn, Frans, er góðlegur og talinn auðmjúkur þótt skoðanir hans séu umdeildar. Einn af dáðustu leikurum þjóð- arinnar, Róbert Arnfinnsson, hefur hlýja nærveru.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.