Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. A P R Í L 2 0 1 3  Stofnað 1913  96. tölublað  101. árgangur  SIGUR RÓS LAUK TÓNLEIKAFERÐ Í SANTA BARBARA HEIMSLEIKAR GRINDAVÍK TRYGGÐI SÉR ODDALEIK Á MÓTI STJÖRNUNNI ÆTLA SÉR GULL 14 ÍÞRÓTTIRGALDUR 46 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umboðsmanni skuldara barst 4.661 umsókn um greiðsluaðlögun einstaklinga frá stofnun embættisins 1. ágúst 2010 til 1. apríl sl. Um 13.800 manns leituðu aðstoðar ráðgjafarþjón- ustunnar á sama tímabili. Ásta S. Helgadóttir, umboðsmaður skuld- ara, sagði að ákveðinn stöðugleiki væri nú kominn í umsóknir til embættisins um greiðsluaðlögun og ráðgjöf. Hópurinn sem leit- ar sér aðstoðar hefur einnig breyst frá því embættið var stofnað. Búið með sparnað og séreignarsparnað „Stærsti hópurinn okkar nú er barnafjöl- skyldur og fólk sem hefur þreyð þorrann en er búið með sparnað og séreignarsparnað en sér lánin bara hækka og nær ekki lengur endum saman,“ sagði Ásta. Fólk leitar einnig ráðgjaf- ar eða greiðsluaðlögunar í kjölfar stærri og smærri áfalla eins og veikinda, atvinnumissis eða tekjulækkunar. En sér fyrir endann á verkefnum embættisins? „Ég tel að embættið og greiðsluaðlögunin séu komin til að vera,“ sagði Ásta en nú eru 64 stöðu- gildi hjá embættinu. Ásta sagði mikilvægt að skuldarar gætu notið að- stoðar, en það væri ljóst að verkefnin mundu breytast frá því sem verið hefði eftir efnahagshrunið. „Við erum að hjálpa þeim sem eru hvað verst staddir fjár- hagslega. Ákveðinn hluti þjóðarinnar verður alltaf í greiðsluerfiðleikum. Það er mikilvægt að sú þekking sem hefur aflast hjá embættinu varðveitist og að við vinnum áfram að því að leysa úr þessum erfiðleikum fólks. Þessi að- stoð á að vera hafin yfir pólitík. Þetta er í raun og veru velferðarmál.“ Meira um fjölskyldu- fólk í vanda en áður  13.800 leitað ráðgjafar  4.661 sótt um aðlögun Ásta S. Helgadóttir MFlestir hafa fengið lausn » 4 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Samþykkt var á stjórnarfundi VR í fyrradag tillaga um fulltrúa félagsins í nýrri stjórn Líf- eyrissjóðs verslunarmanna (LV). Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var í tillögunni, sem borin var upp af Ólafíu B. Rafnsdóttur formanni, lagt til að Bryndís Hlöðversdóttir, formaður stjórnar Landsvirkjunar og fyrrver- andi þingmaður Samfylkingarinnar, yrði for- maður stjórnar lífeyrissjóðsins. VR útnefnir fjóra stjórnarmenn af átta á móti fjórum fulltrúum frá atvinnurekendum. „Ef það er satt að fyrrverandi alþing- ismaður Samfylkingarinnar sé að taka við, án þess að vera neitt tengdur VR, þá er það mjög slæm niðurstaða, með fullri virðingu fyrir Bryndísi Hlöðversdóttur, vegna þess að stjórnir lífeyrissjóðanna hafa í seinni tíð verið ópólitískar,“ segir Helgi Magnússon, fráfar- andi formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Hann segir að það sé sama úr hvaða flokki menn komi en að hætt sé við að flokks- pólitískur stimpill verði settur á gjörðir lífeyr- issjóðsins ef fyrrverandi þingmaður sitji þar í forsvari. Helgi, sem verður nú varaformaður sjóðsins, segir að hann muni að sjálfsögðu vinna með Bryndísi en að hann telji þetta ekki vera réttan stíl. Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, vildi ekki tjá sig um málið þar sem það ætti eftir að ganga formlega frá skipun stjórnarinnar og verkaskiptingu hennar en gerði ráð fyrir að það yrði gert í dag. Deilir á skipan í stjórn lífeyrissjóðsins  Bryndís Hlöðversdóttir formaður í LV Fulltrúar VR » Ásta Rut Jónasdóttir » Birgir Már Guðmundsson » Bryndís Hlöðversdóttir » Elmar Hallgríms Hallgrímsson  Framsóknarflokkurinn nýtur mests fylgis allra stjórnmálaflokka í þremur landsbyggðarkjör- dæmum, skv. könnun Félagsvís- indastofnunar. Í þéttbýlustu kjör- dæmunum nýtur Sjálfstæðisflokkur mests fylgis. Í einu kjördæmi er Framsókn þriðji stærsti flokkurinn; Reykjavíkurkjördæmi suður. »20 Ólíkt fylgi flokka í dreifbýli og þéttbýli Þingmannafjöldi Skv. könnun Félagsvísindast. HÍ 17.-23. apríl Sjálfstæðisflokkur 18 0 Framsóknarflokkur 20 0 Samfylkingin 9 1 Vinstri grænir 7 3 Björt framtíð 5 2 Píratar 4 3 Þingmannafjöldi Þar af jöfnunarþingsæti  Krían er komin til landsins. Brynjúlfur Brynjólfsson, um- sjónarmaður fuglavefjarins www.fuglar.is, sá kríuna sem var ein á ferð, um klukkan 20 á miðvikudags- kvöld við Ósland á Höfn í Hornafirði. Yann Kolbeinsson líffræðingur hefur skráð komur farfugla. Sam- kvæmt meðaltali 1998-2012 hefur krí- an komið 22. apríl, stundum fyrr eða síðar. Krían er komin og sást í Hornafirði Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Seint í gærkvöldi varð ljóst að vél- arbilunin í Gná, þyrlu Landhelgis- gæslunnar, væri alvarleg. Öxull hafði brotnað við rafal og er talið hugsanlegt að svarf hafi komst í olíu við gírkassa en slíkt getur eyðilagt hann. Viðvörunarljós kom upp í mæla- borði þyrlunnar þegar hún var í út- kalli um hálfþrjúleytið í gær og þurfti áhöfnin að snúa henni við. Lenti hún á túni við bæinn Kvísker í Öræfum. Björgunarbáturinn Ingi- björg var sendur eftir skipverjanum í stað þyrlunnar. Samkvæmt upplýs- ingum frá Landhelgisgæslunni hefði hugsanlega verið mikil hætta á ferð- um fyrir áhöfn vélarinnar ef hún hefði verið komin lengra á haf út þegar bilunin kom upp. Ljóst var að þyrlunni yrði ekki flogið til baka til Reykjavíkur fyrr en í fyrsta lagi að viðgerð lokinni. Ekki er ljóst hversu lengi þyrlan verður frá vegna bilunarinnar en af þremur þyrlum Gæslunnar er nú að- eins TF-SYN til reiðu. MEin af þremur »2 Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Lent í túnfætinum Áhöfnin á TF-GNA varð að hætta við útkall vegna viðvörunarljóss sem kviknaði í mælaborði þyrlunnar og lenda við fyrsta tækifæri. Urðu að lenda í skyndi  Alvarleg bilun kom upp í gírkassa þyrlunnar í gær  Þurfti að hætta við útkall og lenda rétt hjá Kvískerjum  Aðeins ein þyrla Landhelgisgæslunnar í notkun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.