Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 11
„Við keyptum miðana á tónleikana í fyrrasumar og Ástrós tók þátt í leik á netinu fyrir þá sem eru í aðdáenda- klúbb á bieberfeever.com, til að freista þess að reyna að vinna þennan passa, sem gengur út á að fá að hitta Justin Biber rétt fyrir tónleika og láta smella af einni mynd með honum. Leikurinn gekk út á að senda myndir af öllu Justin Bieber-dóti sem hún átti og senda inn texta um hann. Hún sendi fullt af myndum og heila ritgerð um hvað henni finnst um Justin Bieber sem tónlistarmann, af hverju hún vildi sigra í þessari keppni og um það hvað hún elskar hann mikið,“ segir Elísa og hlær. Bað um knús og fékk að snerta hann „Við bjuggumst aldrei við að vinna og þegar Ástrós sá póstinn um að hún hefði unnið, þá var það á sama tíma og vinningshafarnir áttu að vera mættir til að hitta Justin. Þetta var því mikið stress að komast út í tónleikahöll og missa ekki af þessu einstaka tækifæri. Það fór allt í panik og við rukum út án þess að vera tilbúnar, ég var ekki einu sinni búin að setja á mig maskara. Við hlupum í einum spretti út til að taka leigubíl og lentum í rosalegri umferð og vorum með tárin í augunum af ótta við að missa af þessu. Við stukkum út úr bílnum áður en við vorum komn- ar alla leið og hlupum lokasprettinn.“ Þær voru aldeilis ekki seinar, því þær þurftu að bíða í einn og hálfan tíma áður en byrjað var að hleypa inn í holl- um. „Við vorum sjö stelpur sem fórum saman inn til hans, fimm danskar og við tvær íslenskar frá Selfossi. Þetta gekk mjög hratt fyrir sig, en ég spurði hann hvort ég mætti knúsa hann og hann sagði já. En þegar hann var rétt að byrja að knúsa mig þá var mér ýtt í burtu og hann sagði „sorrí“, það lá svo mikið á að láta þetta ganga hratt fyrir sig. En ég fékk að snerta hann, það skiptir öllu máli.“ Líka fullt af strákum á tónleikunum Þegar þær komu út frá Justin þurftu þær að bíða í röð með öllum hinum sem höfðu hitt hann, til að komast aftur í höllina. „Allir voru hágrátandi, það var eiginlega fáránlegt. Lítil stelpa sem var fyrir aftan okkur í röðinni, hún var með ekkasog og gat varla andað. En við fórum líka að gráta smá fyrst á eftir,“ segir Elísa og bætir við að tónleik- arnir hafi verið æðislegir. „Allt var svo flott, þetta var mik- ið „show“, flugeldar og myndbönd með atriðum sem við aðdáendur hans þekkjum söguna á bakvið. Það voru mikl- ar og sterkar tilfinningar í salnum.“ Elísa segist hafa verið mjög hissa á því hversu margir tónleikargestir voru strák- ar. „Ég hélt það yrðu bara stelpur. Og það voru líka mjög margir krakkar yngri en við.“ Pabbi Ástrósar fór með þeim á tónleikana og honum fannst mjög gaman. „Ég hef aldrei farið á svona stóra tónleika í útlöndum og þetta var mjög mikil upplifun. Við munum pottþétt gera þetta aftur, þetta var svo rosalega gaman.“ Hann er góður og hjálpar veikum börnum Elísa segir að þær Ástrós hafi fengið Biberveikina í kringum tíu ára aldurinn. „Við urðum alveg sjúkar um leið og við sáum hann í fyrsta sinn. Það er bara allt við hann svo frábært, það er eiginlega ekki hægt að lýsa því. Hann er fáránlega myndarlegur, hann er góður tónlistarmaður og syngur mjög vel. Röddin hans er flott og hann er alltaf að láta gott af sér leiða og hjálpar veikum börnum. Það er allt gott við hann. Vissulega heyrum við helling af leið- inlegum sögum af honum en við kjósum að trúa þeim ekki.“ Elísa segir herbergið sitt vissulega bera þess merki hversu mikill aðdáandi Justin Biebers hún er. „Ég málaði á vegginn yfir rúminu mínu texta úr lagi eftir hann þar sem segir að maður eigi aldrei að segja aldrei og láta drauma sína rætast. Ég á líka rúmföt með mynd af honum og sef því hjá honum á hverri nóttu,“ segir hún og hlær. Meyjarskemma Rúmföt Elísu skarta Justin Bieber og texta frá honum málaði hún á vegginn fyrir ofan rúmið. Mikil stemning Gífurlegur mannfjöldi var á tónleikunum. Myndina tók Elísa að nýloknum tónleikunum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 Börnum og ungmennum 10 ára og eldri gefst tækifæri til að hlýða á sviðsettan leiklestur á sunnudaginn kl. 18-20 í Tjarnarbíói. Verkið heitir Útlenski drengurinn og er eftir rithöfundinn Þórarin Leifs- son. Það fjallar á gamansaman hátt um ósköp venjulegan íslenskan dreng sem lendir í því að yfirvöld telja hann vera útlending. Drengurinn missir ríkisfangið og bíður örlaga sinna á skólabókasafninu. Þessi viðburður er hluti af leiklist- arhátíð ASSITEJ sem eru samtök sem hafa það að markmiði að gera leiksýningum fyrir börn og ungt fólk hátt undir höfði. Hvorki aðdáendur Þórarins né ungt leikhúsáhugafólk ætti ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara. Útlenski drengurinn Leiklestur á verki í vinnslu Ég hef aldrei alveg skilið tilhvers tengdamæður vinaminnar eru. Þannig að égfór að hugsa: Eitthvað hljóta þær að eiga að gera? Þær virðast hafa óþægilega mikinn tíma fyrir sjálfar sig eftir að vinir mínir fönguðu dætur þeirra. Þeim hlýtur að leiðast. Svo fattaði ég svolítið. Þær geta eldað fyrir mig kvöldmat. Nú vinn ég hörðum höndum að því að kortleggja allar tengdamæður vina minna og þarf væntanlega aldr- ei að borða einn aftur. Ég held að þær kunni vel að meta það að fá mig í heimsókn. (Ekki nema tengda- mæðurnar bjóði upp á take-away, þá þurfa þær ekki að hitta mig. Það gæti verið gott af og til.) Og ég lofa að fara þegar maturinn er búinn. Ég sé mikil tækifæri í þessu fyrir mig. Ég nefnilega elda ekki. (Afi reyndi að senda mig á námskeið en ég hlýddi ekki.) Þannig að með því að heimsækja þessar góðu konur fæ ég vonandi góðan mat og verð ekki feitur og ógeðs- legur af skyndibitaáti. Ég sé ekkert slæmt við þetta, nema kannski það að ég gæti þurft að brydda upp á einhverjum umræðuefnum við kvöldverðarborðið. Ég veit ekk- ert hvað ég á að segja við þessar tengdamæður vina minna! En ég get hlustað og sagt og af til: „Já, þú seg- ir nokkuð.“ Kosturinn við að einblína á bless- aðar tengdamæðurnar er að hægt er að spyrja tengdason- inn: Er hún ekki örugglega al- mennilegur kokkur og þokkalega skemmtileg? – Það er of ljótt að spyrja hann sömu spurningar um mömmu sína. Þar dreg ég línuna. »Kosturinn við að ein-blína á blessaðar tengdamæðurnar er að hægt er að spyrja tengdason- inn: Er hún ekki örugglega almennilegur kokkur og þokkalega skemmtileg? Heimur Helga Vífils Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Í tilefni Barnamenningarhátíðar býð- ur Gerðuberg næsta sunnudag upp á spennandi smiðju í gerð fuglahúsa. Einnig verður lifandi leiðsögn um sýninguna Fuglar - listin að vera fleygur. Smiðja í fuglahúsagerð verð- ur frá kl. 14-16 á Markúsartorgi (ef veður leyfir). Ungir sem aldnir geta komið og fengið smíðaefni til að gera sitt eigið fuglahús. Búið verður að forsníða þrjár tegundir af húsum og verður aðstaða og verkfæri á staðn- um ásamt aðstoð frá starfsfólki. Dómnefnd velur þrjú hús sem skara fram úr og eru verðlaunin útskornir fuglar eftir Hafþór R. Þórhallsson. Leiðsögn um sýninguna Fuglar verður kl. 15, þar sem fuglar eru sýndir eins og maðurinn sér þá; fiðraðir, tálgaðir, teiknaðir, glerjaðir, málaðir, mynd- aðir, mótaðir og talaðir á flug. Listin að vera fleygur Fuglar Börn hafa gaman af fuglum. Smiðja í gerð fuglahúsa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.