Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 „Við verðum að leggja hart að okk- ur til að viðhalda þessum árangri,“ segir Hafliði. Hann segir að Íslend- ingar séu duglegir en geti einnig lært af erlendum knöpum, til dæmis í því að taka sér lengri tíma til að þjálfa góð hross. Námskeiðin sem liðsstjórinn hefur staðið fyrir í vetur voru opin öllum en færri komust að en vildu. Þátttaka í þeim er ekki skilyrði fyrir vali í liðið enda ræður frammistaða knapa og hesta á úrtökumótinu mestu. Portú- galski reiðkennarinn Julio Borba kenndi ásamt Rúnu Einarsdóttur og Olil Amble. Hafliði sér fyrir sér að slík námskeið verði ómissandi liður í undirbúningi fyrir öll stórmót á er- lendri grundu í framtíðinni. Sér- staklega nefnir hann þá reynslu og þekkingu sem ungmennin geti öðlast með fullorðnum knöpum til undirbún- ings þeirrar hörðu keppni sem fram- undan er. „Ég vildi hefja undirbúning fyrr til þess að sjá vandamálin og eiga kost á að laga þau,“ segir Hafliði. Í landsliðinu fyrir HM í Berlín verður 21 knapi. Sjö íþróttamenn verða valdir hér heima og þrír að auki fá að verja titla sem þeir unnu með sigri í sínum greinum á síðustu heimsleikum. Það eru Bergþór Egg- ertsson, Jóhann Skúlason og Eyjólfur Þorsteinsson. Þá verða fimm ung- menni í liðinu en það er tveimur fleira en á síðustu heimsleikum. Stigahæsti 5-gangari, 4-gangari og töltari á úr- tökumótinu vinna sér sæti í landslið- inu ásamt knapa sínum, bæði hjá ungmennum og fullorðnum. Að auki fljótasti skeiðhesturinn í keppni full- orðinna knapa og annar hestur og knapi sem ná besta árangri í slak- taumatölti eða gæðingaskeiði. Báðir þessir keppendur þurfa að ná til- teknum lágmarksárangri. Liðsstjór- inn velur tvo íþróttamenn til viðbótar, bæði í flokki fullorðinna og ung- menna. Sex kynbótahross verða sýnd fyrir hönd Íslands, þrjár hryssur, 5, 6 og 7 vetra og þrír stóðhestar á sama aldri. Falast verður eftir hæst dæmdu hrossunum sem fædd eru á Íslandi, hvort sem þau eru hér heima eða er- lendis. Þegar hópurinn hefur verið valinn endanlega er ekki langt í að hrossin fari út en tíminn verður notaður í einskonar þjálfunarbúðir með æfing- um og fyrirlestrum. Okkar stærstu heimsleikar „Ég hlakka til. Þetta verða okkar stærstu heimsleikar. Þeir verða í stórborg og von er á 20 til 30 þúsund gestum. Nokkur hundruð Íslend- ingar hafa keypt sér far,“ segir Haf- liði. Hann er einnig farinn að hugsa til Norðurlandamótsins sem verður í Herning í Danmörku á næsta ári og Heimsleika 2015 sem einnig verða haldnir í Herning. Vonast hann til að hægt verði auka áherslu á Norð- urlandamótin. „Norðurlandabúar standa framarlega í hestamennsk- unni og þar eru mikil sóknarfæri,“ segir Hafliði. „Förum bara út til að ná í gull“  Liðsstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum segir að Íslendingar verði að leggja hart að sér til að halda forystu í Íslandshestamennskunni  21 hestamaður verður í landsliði Íslands í Berlín Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fjáröflun Ístöltsmótin eru mikilvægur liður í fjáröflun landsliðsnefndar fyrir Heimsleika íslenska hestsins í Berlín. Liðsstjóri Hafliði Þ. Halldórsson í Ármóti stjórnar landsliðinu. SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við förum bara út til að ná í gull,“ segir Hafliði Þ. Halldórsson, liðsstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum, um markmið með vali á landsliðs- mönnum á Heimsleika íslenska hests- ins sem haldnir verða í Berlín, höf- uðborg Þýskalands, í byrjun ágúst. Landsliðsnefndin og liðsstjórinn hafa verið að undirbúa val landsliðs- ins og þátttöku í HM. Sú nýjung hef- ur verið innleidd að halda opin nám- skeið fyrir knapa sem áhuga hafa á að spreyta sig á mótinu. Síðasta al- menna námskeiðið var um síðustu helgi. Þátttaka hefur verið góð og sýnir það að margir hafa áhuga á að keppa fyrir hönd landsins. Knaparnir halda áfram að þjálfa hestana næstu vikurnar og vinna úr þeirri fræðslu sem þeir hafa fengið. Val á hluta landsliðsins ræðst í tvö- faldri úrtöku sem verður um miðjan júní í tengslum við Gullmót á fé- lagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík. Liðsstjórinn mun síðan velja nokkra fulltrúa til viðbótar og reiknar með að tilkynna landsliðið opinberlega 9. júlí. Mikil samkeppni „Markmið okkar sem íslenskrar þjóðar og eiganda íslenska hestsins er alltaf að ná besta árangri og halda forystu í Íslandshestamennskunni í heild, í ræktun, þjálfun, keppni og sölu. Við megum hins vegar ekki gleyma því að við erum í mikilli sam- keppni við góða erlenda knapa og bestu hross í heimi, bæði hross sem ræktuð hafa verið hérlendis og er- lendis. Um leið og við förum að slá af kröfunum missum við forystuna. Þá segi ég: Hvað hafa Norðurlandabúar og aðrir Evrópubúar að sækja til Ís- lands ef við erum ekki betri en þeir,“ segir Hafliði. Hann segir að gríð- arlegir viðskiptahagsmunir séu í húfi, bæði við útflutning hrossa og vinnu íslenskra knapa erlendis. Heimsleik- arnir séu mikilvægur liður í að við- halda viðskiptunum. Þátttaka í Heimsleikum íslenska hestsins er mikið verkefni. Kostar á þriðja tug milljóna króna. Landsliðsnefnd Landssambands hestamannafélaga annast skipu- lagningu, undirbúning og fjáröflun í samvinnu við stjórn sambandsins og starfsfólk. „Undirbúningur hefur staðið í tvö ár. Þegar HM lýkur hefst ávallt undirbúningur fyrir það næsta,“ segir Bjarnleifur Bjarnleifs- son, formaður landsliðsnefndar. Nefndin aflar sjálf og í samvinnu við aðra fjármuna sem duga fyrir hluta af kostnaði við þátttöku lands- liðsins í HM. Tekjurnar koma af ís- töltmótum og sölu happdrættismiða og folatolla. Þá fást tekjur af samn- ingum við ýmis fyrirtæki. Nefna má að hluti af seldum pakkaferðum Úr- vals-Útsýnar á mótið rennur til landsliðsins. Ríkið leggur einnig eitthvað til en hlutur þess hefur far- ið minnkandi undanfarin ár. Bjarnleifur vonast til að landsliðið nái góðum árangri. Nefnir að Íslend- ingar hafi á tveimur síðustu mótum unnið liðabikarinn sem veittur er fyrir bestu heildarframmistöðu, eða í bæði skiptin sem bikarinn hefur verið veittur. „Það er jákvætt að fá liðabikarinn. Landsliðsnefndin legg- ur einnig áherslu á að við séum góð- ir fulltrúar lands og þjóðar, upp- runalands íslenska hestsins. Það er ígildi tveggja gulla að geta sagt eftir mótið: Mikið vorum við með gott lið.“ Morgunblaðið/Kristinn Kostar á þriðja tug milljóna að senda lið ENDING - ÁNÆGJA W.WEBER.IS - W GÆÐI W

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.