Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Einkennisklæddir karlar gengu fylktu liði frá Skansinum í Vestmannaeyjum í gær undir stjórn Karls Gauta Hjaltasonar sýslumanns. Þar var minnst kapteins Kohls sýslumanns sem kom til Eyja árið 1853 og stofnaði Herfylk- ingu Vestmannaeyja til að halda uppi röð og reglu og verjast sjóræningjum. Hleypt var af fallbyssu og Lúðrasveit Vestmannaeyja lék her- söng kapteins Kohls. Herfylking til heiðurs kapteini Kohl Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Vestmannaeyingar minntust þess í gær að 160 ár eru frá því að kapteinn Kohl var skipaður þar sýslumaður Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Bilun kom upp í þyrlu Landhelgis- gæslunnar, TF-GNA, þegar hún var á leiðinni í útkall um hálfþrjúleytið í gær. Kviknaði viðvörunarljós í mælaborði hennar þegar hún var komin rétt út fyrir land og var bil- unin þess eðlis að snúa þurfti henni við og lenda við fyrsta tækifæri á Kvískerjum. TF-SYN var send á vettvang um áttaleytið með flug- virkja og viðgerðartæki og var þar athugað hversu alvarleg bilunin væri og hvort hægt væri að gera við hana á staðnum. Kom bilunin upp í gír- kassa vélarinnar og kom í ljós við at- hugun að öxull hafði brotnað í henni. Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram- kvæmdastjóri aðgerðarsviðs Land- helgisgæslunnar, sagði að það væri möguleiki á því að senda þyrfti bíl í dag til þess að sækja þyrluna en Gná yrði ekki flogið ef ekki tækist að gera við bilunina á staðnum. Hún yrði þá komin til Reykjavíkur á morgun. Þetta þýðir að aðeins ein af þrem- ur þyrlum Gæslunnar er í lagi því TF-LIF, er nú í reglubundinni skoð- un. Segir Ásgrímur að þeirri skoðun verði líklega flýtt vegna þessa atviks. Öryggisreglur Gæslunnar valda því að einungis má fljúga TF-SYN 20 sjómílur á haf út á meðan engin önn- ur þyrla er til taks. Hún er ekki búin nætursjónauka til flugs en er að öðru leyti sambærileg við hinar þyrlurnar tvær. Danir brugðust snarlega við Ásgrímur segir að snarlega hafi verið haft samband við danska sjó- herinn, sem hafi verið reiðubúinn til aðstoðar. Danskt varðskip eigi að koma til hafnar í dag en svo illa hitt- ist á að þyrlan um borð þar er biluð. Annað danskt varðskip verður því sent frá Færeyjum, með þyrlu í lagi, og mun það koma til landsins um helgina. Frá og með sunnudeginum ætti því að vera önnur þyrla til taks. Ein af þremur þyrlum í lagi  Bilun í gírkassa TF-GNA  Einungis ein þyrla til taks fram á sunnudag  Danskt varðskip með bilaða þyrlu um borð  Von á öðru dönsku skipi Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Gestir TF-SYN og TF-GNA á túninu við Kvísker í gær. TF-GNA er þar enn. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þetta er met. Ég hef verið skipstjóri í rúm fjörutíu ár og man ekki eftir því að hafa fengið jafn mikið í einu kasti sem nú: 38 tonn af fínum þorski. Við fórum út klukkan sjö í morgun og komum í land um þrjú- leytið með 46,5 tonn úr tveimur köst- um,“ segir Brynjar Kristmundsson, skipstjóri á Ólafsvíkurbátnum Stein- unni SH. Sjómenn á bátum af Snæfellsnesi rótfiska og í gær var Brynjar út af Öndverðanesi á góðri aflaslóð. Fæð- ingarorlofinu, en svo kalla sjómenn hrygningarstoppið, lauk um sl. helgi og þá var aftur farið að sækja sjóinn. „Eftir daginn í dag höfum við fiskað í vikunni 129 tonn og mest er þetta vænn þorskur,“ segir Brynjar sem er með sjö karla í áhöfn; bræður sína fimm, son og tengdasoninn. „Ég veit ekki hver hluturinn eftir vikuna er, en það er blóðugt hve auðlinda- skatturinn er hár. Þá er stundum sagt að eiginkon- unni beri eft- irtekja þess sem fiskast sumar- daginn fyrsta. Því er ekki endilega fylgt, en sumargjöf til konunnar hljómar vel,“ segir Brynjar sem er langt kominn með kvótann. Því er stutt í vertíðarlok. Aflamet við Öndverðarnes er sumargjöf til eiginkonunnar Morgunblaðið/Alfons Sjósókn Steinunn SH ber mikinn afla að landi, ekki síst þessa dagana.  36 tonn í einu kasti í gær  Um 130 tonn á land í vikunni Brynjar Kristmundsson Verið er þessa dagana að ganga frá samningum milli stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands um ráð- stöfun fjármuna til að byggja og lag- færa sauðfjárveikivarnagirðingar víða um land. Málið hefur þótt vera aðkallandi en peninga hefur vantað til aðgerða, skv. heimildum Morg- unblaðsins. Nú er hins vegar að rakna úr flækjunni og búið er að finna fjár- muni. Í verðmiðlunarsjóði stuðnings við sauðfjárrækt, sem aflagður var fyrir nokkrum árum, eru um 40 milljónir kr. og þær á nú að leysa út og verja í úrbætur. Á að fara í fram- kvæmdir strax nú í sumar á þeim girðingum sem illa eru farnar. Ýmsir sjúkdómar steðja að ís- lensku sauðfé. Þeim hefur hins veg- ar verið hægt að halda að verulegu leyti í skefjum með varnahólfum. Þau eru alls 24, fjárflutningar milli þeirra eru bannaðir og girðingar halda aftur af flökkufé. sbs@mbl.is Finna fé í girðingar Kindur Féð rekið í almenninginn.  40 millj. kr. ráð- stafað í framkvæmdir Gert er ráð fyrir vestlægri átt á kjördag. Verður rigning víða vest- antil en allvíða slydda til landsins. Aðfaranótt sunnudags á síðan að skipta yfir í norðanátt norðantil með dálítilli snjókomu. Á sunnu- deginum er síðan spáð aftakaveðri fyrir norðan. Samkvæmt upplýs- ingum frá Veðurstofu Íslands ætti veðrið því ekki að hafa áhrif á taln- ingu atkvæða fyrir norðan og vest- an, þar sem skipta á um átt nokkru eftir að kjörstöðum verður lokað klukkan tíu. Ríkarður Másson, formaður yfir- kjörstjónar í Norðvesturkjördæmi segir að menn vonist til þess að óveðrið muni ekki hafa áhrif á taln- ingu atkvæða en flytja þarf atkvæð- in til Borgarness þar sem þau verða talin. Ef allt fari á versta veg hafi menn hins vegar það úrræði að skipa undirkjörstjórn fyrir Vest- firðina sem muni þá telja atkvæðin þaðan. sgs@mbl.is Kjörseðlar ættu að komast til talningar  Vondu veðri spáð á kosninganótt Morgunblaðið/Ómar Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra, Kristín Linda Árnadótt- ir, forstjóri Umhverfisstofnunar, og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, undirrituðu í gær, á degi umhverfisins, friðlýsingu Ála- foss í Varmá og Tungufoss í Köldu- kvísl. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar lagði til friðlýsingu fossanna í til- efni 25 ára kaupstaðarafmælis Mos- fellsbæjar. Álafoss og Tungu- foss friðlýstir Friðlýstur Álafoss í Varmá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.