Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 Árviss viðburður Víðavangshlaup ÍR fór fram í 98. sinn í gær. Hlaupið var fyrst haldið árið 1916 og hefur síðan verið snar þáttur í hátíðarhöldunum í Reykjavík sumardaginn fyrsta. Kristinn Kjósendur sem vilja standa vörð um fullveldi Íslands hafa val í komandi al- þingiskosningum. Óskastaða innlim- unarsinna er að sem flestir fari nú inn á þing með þá blekkingu í farteskinu að það sé rétt að kíkja í pakkann, klára ferl- ið, ljúka meintum samningum Íslands og ESB. Ef litið er á heimasíðu stækk- unardeildar ESB kemur aftur á móti fram að það fara engar samninga- viðræður fram. ESB gengur svo langt að kalla slíkar fullyrðingar „misleading“ eða misvísandi. Það sem fer fram á milli Ís- lands og ESB er aðlögun eða með öðrum orðum hægfara innganga okkar í sam- bandið. Eftir svokallaðar viðræður í heilt kjörtímabil geta aðild- arsinnar ekki bent á eitt at- riði sem hefur verið „samið“ um enda ekkert slíkt í boði. Aftur á móti hafa verið gerð- ar umtalsverðar, dýrar og afgerandi breytingar á mörgu í stofnanakerfi Ís- lands, t.d. öllu innra skipulagi skattstjóra og tollstjóraembætta. Sömuleiðis í sjálfu Stjórnarráði Íslands. Allt er þetta í fullu samræmi við það sem upplýst er á heima- síðu ESB um málið, sjá t.d. http:// ec.europa.eu/enlargement/pdf/pu- blication/20110725_understanding_en- largement_en.pdf oghttp://ec.europa.eu/enlargement/policy/ steps-towards-joining/index_en.htm. Af umræðuþætti Ríkissjónvarpsins síð- astliðið þriðjudagskvöld er ljóst að Fram- sóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og VG gæla nú allir hver með sínum hætti við drauma „pakkakíkis“. Enginn þessara flokka þorir lengur að standa á þeirri skoðun að loka eigi hinni evrópsku áróð- ursstofu né að taka af skarið um að við- ræðum skuli tafarlaust slitið. Þetta er mjög miður og vekur ugg um það sem framundan er. Vitaskuld eru í öllum þess- um flokkum einlægir andstæðingar ESB- aðildar en aðildarsinnar eru þar einnig margir og voldugir á fleti fyrir. Án þess að gert sé lítið úr öðrum mál- efnum þessarar kosningabaráttu þá varð- ar ekkert eitt mál jafn miklu um framtíð- arhagsmuni Íslands eins og vörn fyrir fullveldinu. Fullveldi er dýrasta eign hverrar þjóðar og með hana á ekki að leika sér eða hafa hana fyrir skipti- mynt. Meðan samninga- viðræðum hefur ekki verið slitið, áróðursskrifstofur ESB starfa hér óáreittar og mútufé ESB flæðir óhindrað inn í landið ríkir umsát- ursástand. Því umsátri verður að ljúka. Við sem stöndum að Regnboganum bjóðum fram krafta okkar til varnar full- veldinu. Við biðjum um þinn stuðning. Setjum X við J á kjördag. Eftir Jón Bjarnason, Atla Gíslason og Bjarna Harðarson » Fullveldi er dýrasta eign hverrar þjóðar... Atli Gíslason Höfundar eru í framboði fyrir J-lista Regn- bogans sem berst fyrir sjálfstæði Íslands og sjálfbærri þróun. Umsátur um fullveldi Jón Bjarnason Bjarni Harðarson Reykjavíkurflugvöllur hefur þjónað innanlands- og millilanda- flugi landsmanna í áratugi og gerir enn. Þar hefur grasrót flugsins átt heimili og þar hafa vaxið upp flug- menn og aðrir sérfræðingar í flugi okkar sem lagt hafa grunninn að at- vinnugrein sem nær langt út fyrir landsteinana og skiptir þjóðarbúið verulegu máli. Umræðan um Reykjavík- urflugvöll mörg síðustu ár hefur snúist um hvort hann verður rekinn áfram eða lagður niður. Meginsjónarmiðin eru annars vegar þau að breyta flugvallarlandinu í íbúðarhverfi og hins vegar að gera innanlandsfluginu kleift að eiga miðstöð sína þar áfram. Ekki þarf að minna á fundi, skoðanaskipti, kannanir, skýrslur og jafnvel samninga síðustu ára og má kannski með nokk- urri einföldun segja að fylgjendur beggja ofan- greindra sjónarmiða hafi með því öllu getað sýnt fram á fylgi við sinn málstað. Aðgerðir í beggja þágu Föstudaginn 19. apríl var undirritað sam- komulag innanríkisráðuneytis og Reykjavík- urborgar um endurbætur á aðstöðu fyrir farþega og þjónustuaðila á Reykjavíkurflugvelli. Þetta samkomulag snýst um mjög ákveðnar aðgerðir af hálfu beggja aðila sem þjóna bæði sjónarmiðum ríkis og borgar: Annars veg- ar um að nýta flugvöllinn áfram og hins vegar um að reisa nýja byggð á hluta flugvallarlandsins sem borg- in kaupir af ríkinu. Varðandi þjónustu við flugfarþega og flugrekendur er megináfanginn að end- urbæta aðstöðuna, að í stað núverandi flugstöðvar Flug- félags Íslands fái Isavia að reisa nýja stöð sem þjóna muni öllum sem stunda innanlandsflug frá Reykjavíkurflugvelli. Önnur mikilvæg atriði varða flugöryggi og snúast um heimild til að setja niður aðflugsljós fyrir nákvæmnisblindaðflug úr vestri og að lækka gróður á tilteknu svæði í Öskjuhlíð sem truflað geta aðflug úr austri og raunar tak- marka líka afkastagetu flugvéla í flugtaki til austurs. Til að þetta allt nái fram að ganga verður nýtt deili- skipulag auglýst er varða þessi atriði og það er eitt mikilvægasta atriði samkomulagsins. Slíkum áfanga hafa ríki og borg ekki náð fyrr í sam- skiptum sínum um notkun Reykja- víkurflugvallar. Hitt mikilvæga atriðið í sam- komulaginu er að samgönguyfirvöld láta af hendi landið þar sem norð- austur-suðvestur brautin liggur. Með því fær Reykjavíkurborg yf- irráð yfir byggingarsvæði sem hún hefur lengi haft augastað á og hefur reyndar áður verið gefið vilyrði fyrir því. Þá verður hætt allri umferð herflugvéla og flugi í þágu hertengdrar starfsemi nema þegar völlurinn þjónar sem vara- flugvöllur eða vegna öryggis- og björgunarstarfa. Til að taka af allan vafa er áréttað í samkomulag- inu að Reykjavíkurborg fer með skipulagsvald á flugvallarsvæðinu samkvæmt skipulagslögum og að innanríkisráðuneytið vinnur í samræmi við vilja Alþingis hvað varðar flugvöllinn eins og hann birt- ist í samgönguáætlun. Þar segir hvergi að flugvöll- urinn skuli víkja enda er það mín sannfæring að í Vatnsmýri sé hann best kominn. Óvissu eytt Nýr tími fer í hönd hvað varðar flugvallarsvæðið og rekstur innanlandsflugs. Í áraraðir hefur ríkt óvissa um Reykjavíkurflugvöll og þeir sem stunda flugrekstur frá flugvell- inum eða þjónustu þar hafa ekki getað skipulagt starf- semi sína neitt fram í tím- ann. Nú hefur stefnan verið mörkuð til næstu ára. Búið er að eyða öllum fyr- irvörum og óvissu hvað varðar starfsemina á og við Reykjavíkurflugvöll. Hvað verður um flugvöllinn þeg- ar horft er til langrar framtíðar er annað mál. Þar eru enn skiptar skoðanir sem áður segir. En hér hefur mikilvægum áfanga verið náð og því ber að fagna. Eftir Ögmund Jónasson »Nú hefur stefnan verið mörkuð til næstu ára. Búið er að eyða öllum fyr- irvörum og óvissu hvað varðar starfsemina á og við Reykjavíkurflugvöll. Ögmundur Jónasson Reykjavíkurflugvöllur – samkomulag um aðgerðir Höfundur er innanríkisráðherra. Ísland er ekki fullkomið land. Samfélagið er flókið og það er lýðræðið líka. Lýðræð- ið er samt besta fyr- irkomulag sem við þekkjum til að koma skikki á sam- félagið. Það er bjargföst trú mín að meginþorri Íslend- inga sé nokkurn veginn sam- mála um eftirfarandi: – Við viljum flest veita fólki möguleika á að rækta og nýta hæfileika sína. Til þess þarf að standa vörð um félagslegt réttlæti, jafna aðstöðumun kynjanna og bera virðingu fyrir náung- anum. Meirihluti þjóðarinnar mun vart svara neitandi spurningunni aldagömlu „á ég að gæta bróður míns?“ – Við viljum flest kalla fólk til góðra verka í stjórnmálum sem hefur fjöl- breyttan bakgrunn og reynslu. Fólk sem hefur hagsmuni almennings að leiðarljósi frekar en hagsmuni einsleitra hópa. Þeir sem standa í stjórnmálum þurfa að geta staðist þrýsting stórfyrirtækja sem stund- um vilja óhindraðan aðgang að auðlindum þjóðarinnar sem meirihlutinn vill skil- greina sem þjóðareign. – Við viljum flest skila landinu til kom- andi kynslóða í ástandi sem við þurfum ekki að skammast okkar fyrir. Því þarf um- hverfið að njóta vafans áður en það er orðið of seint. Það er hægt að byggja upp öflugt, fjölbreytt og sjálfstætt atvinnulíf án sóða- skapar í nýtingu jarðvarma og fallvatna. – Við viljum flest mennta þjóðina vel til að nýta hugvit Íslendinga. Ekkert þjónar betur hagsmunum atvinnulífsins en öflugar fjárfestingar í menntun. – Við viljum öll búa við öryggi og flest viljum við að aðrir njóti þess líka. Lög- gæslu þarf að tryggja svo að við gerum ekki á hlut hvert annars og dómskerfið þarf að geta sett niður deilur, bæði stórar og smáar. – Við viljum öll njóta heilbrigðis, en sú er ekki alltaf raunin. Þegar ein- hver á um sárt að binda þarf að vera hægt að treysta á ör- yggisnet sem við viljum flest byggja upp í sameiningu. Þá er stefnt að því að við getum öll fengið vandaða þjónustu í vel uppbyggðu heilbrigð- iskerfi. Í fullkomnum heimi væri Ís- land fullkomið, en takmarkið hlýtur að vera betra og rétt- látara samfélag, þar sem rík- ari krafa er gerð um ábyrgð á öllum sviðum samfélagsins, líka í stjórnmálum. Samfélag þar sem ólík sjónarmið fá að heyrast og þar sem stefnt er að þeim grundvallarmarkmiðum sem við getum langflest sameinast um. Jafnvel í ófullkomnum heimi er möguleiki á því. Lýðræðið er og verður snúið en það er líka viðkvæmt og það er nauðsynlegt að fara vel með það. Við stöndum á tímamótum og valkost- irnir eru skýrir. Við höfum tækifæri til þess að taka skrefið til fulls og halda áfram upp- byggingu velferðarsamfélags þar sem hagsmunir almennings eru í fyrirrúmi. All- ar forsendur til þess hafa verið skapaðar á undanförnum árum. Við getum eflt heil- brigðiskerfið, bætt menntakerfið, bætt kjörin og byggt upp fjölbreytt atvinnulíf án þess að ganga á náttúruna og tækifæri komandi kynslóða. Í þessum efnum eru Vinstri græn skýr valkostur. Við viljum fara þessa leið með ykkur. Skýr valkostur Eftir Katrínu Jakobsdóttur Katrín Jakobsdóttir » Við höfum tækifæri til þess að taka skrefið til fulls og halda áfram upp- byggingu velferðarsam- félags þar sem hagsmunir al- mennings eru í fyrirrúmi. Höfundur er formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.