Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 að skipulagningu þjónustu nýrra íbúahverfa,“ segir Andrés. Auðvelt að hagræða Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, tekur í sama streng. „Það er enginn vafi á því að offjárfesting í verslunarhúsnæði leiðir til hærra vöruverðs. Við höfum minnst á þetta í óralangan tíman en alltaf er fjárfest meira og meira,“ segir Jóhannes. Hann telur hátt vöruverð að hluta til mega rekja til offjárfestinga en ekki síður vegna langra afgreiðslutíma. „Það ætti að vera auðvelt að hagræða, neyt- endum til hagsbóta. Við kaupum ekki meiri matvöru þótt opið sé á nóttunni, heldur leiða lengri af- greiðslutímar til breytinga á því hve- nær fólk kaupir inn,“ segir Jóhann- es. Stutt í næsta stórmarkað  Offjárfesting í húsnæði og langir afgreiðslutímar leiða til hærra vöruverðs  Þeir sem skipuleggja ný hverfi bera ábyrgð að mati framkvæmdastjóra SVÞ Matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu* Grunnkort/Loftmyndir ehf. 10-11 Bónus Hagkaup Krónan Samkaup Melabúðin Kostur Víðir Iceland Þín verslun Fjarðarkaup Nóatún *Listinn er ekki tæmandi SVIÐSLJÓS Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Rúmlega 70 matvöruverslanir sem ýmist teljast stórar eða eru hluti af verslanakeðjum eru á höfuðborg- arsvæðinu auk fjölda smærri versl- ana sem selja matvöru. Ríflega 200 þúsund manns búa á svæðinu og sé einungis miðað við þær verslanir sem sýndar eru á kortinu eru um 2.800 íbúar um hverja þeirra. Í skýrslu sem ráðgjafarfyr- irtækið McKinsey & Company vann um íslenskt hagkerfi og kynnt var undir lok síðasta árs kemur meðal annars fram að offjárfesting hafi verið í verslunarhúsnæði hér á landi og að of mikill mannafli, vinnutími og fjármunir séu bundnir í fjármála- og smásölugeiranum samanborið við nágrannalöndin. Er þá átt við allt verslunarhúsnæði, ekki eingöngu matvöruverslanir. Þeirri spurningu er meðal ann- ars velt upp hvort hátt vöruverð megi að hluta til rekja til offjárfest- ingar í verslunarhúsnæði. Höf- uðborgarsvæðið er sérstaklega nefnt í þessu samhengi. Þá er bent á að afgreiðslutími verslana er tals- vert lengri en hjá öðrum norrænum ríkjum en þrátt fyrir það er fram- leiðni ekki meiri en óhagkvæmni að sama skapi mikil. „Við höfum lengi bent á að á und- anförnum árum hefur verið offjár- festing í verslunarhúsnæði,“ segir Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Hann segir þessa þró- un mega rekja til skipulagningar nýrra hverfa. „Skipulagsyfirvöld og verktakar ákveða það í sameiningu hvað fer undir verslunar- og skrif- stofuhúsnæði. Ekki hefur verið far- in sú leið að fá úttekt hjá hags- munasamtökum verslunarinnar um það hvort þörf sé á þessu viðbótar verslunarhúsnæði,“ segir Andrés. Hann bendir til að mynda á að Korputorg, Bauhaus og Kauptún í Garðabæ hafi verið opnuð um svip- að leyti án þess að sjáanleg þörf hafi verið fyrir verslunarhúsnæði af þessari stærðargráðu. Samanlagt rými á þessum stöðum er um 80 þúsund fermetrar. „Í skýrslunni er bent á lélega framleiðni í verslun og offjárfestingu í verslunarhúsnæði. En þar er að okkar mati ekki við verslanirnar að sakast. Sökin ligg- ur hjá skipulagsyfirvöldum og að- ilum í byggingariðnaði því það eru þeir aðilar sem hafa komið að þess- um ákvörðunum um hvar byggja á verslunarhúsnæði. Samtök versl- unar og þjónustu hafa aldrei verið höfð með í ráðum um það hvort þörf er á viðbótarhúsnæði þegar kemur Jóhannes Gunnarsson Andrés Magnússon Opið allan sólarhringinn » Nýlega hafa Iceland og Víðir bæst við á matvörumarkaði á höfuðborgarsvæðinu en sam- tals eru fimm verslanir reknar undir þeirra merkjum. » Krónan rekur átta verslanir á svæðinu og Bónus 18. » Margar verslanir eru opnar allan sólarhringinn, m.a. 19 verslanir 10-11 og þrjár versl- anir Hagkaupa. Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Borðplötur í öllum stærðum og gerðum • Swanstone • Avonite • Harðplast • Límtré Smíðað eftir máli og þínum óskum „Bakgrunnur fólks sem innritast í frumgreinanám HR er ólíkur. Marg- ir eiga skemmra framhaldsskólanám að baki en eru jafnvel með mjög langa starfs- reynslu. Stór hópur hefur áður lokið iðnnámi. Þannig kemur fólk til náms hér á afar ólíkum for- sendum en þó jafnan með því hugarfari að menntun skapar möguleika,“ segir Málfríður Þór- arinsdóttir. Hún er forstöðumaður frumgreinanáms Háskólans í Reykjavík. Fagorð og færni í samskiptum Frumgreinanám HR stendur til boða þeim sem hafa iðnmenntun og reynslu úr atvinnulífinu og langar að hefja háskólanám en vantar til þess tilskilinn undirbúning, að sögn Mál- fríðar. Námið er skipulagt sem tveggja ára fullt nám í staðarnámi en jafnframt er hægt að stunda námið í fjarnámi með vinnu. Sérhver umsækjandi fær einstaklingsmat inn í námið og því er mjög mismun- andi hve margar annir umsækj- endur þurfa að taka. „Mikið er lagt upp úr því að námið sé hagnýtt, það myndi heild og komi að góðu gagni síðar meir,“ segir Málfríður. Hún nefnir þar sem dæmi að í íslensku sé ræðumennska og framsögn þjálfuð markvisst en það komi nemendum að góðu gagni síðar meir t.d. við vörn lokaverkefna. Við kennslu erlendra tungumála sé lögð áhersla á fagorðaforða og færni í samskiptum. Margir í tækni- og verkfræði Í HR er áhersla lögð á verk- og tæknigreinar, en eins og fram hefur komið vantar mjög til starfa fólk með slíka menntun. „Margir fara eftir viðkomu í frumgreinanámi í iðnfræði, sem er 90 eininga diploma- nám á háskólastigi. Aðrir stefna að loknu frumgreinanámi í tæknifræði eða verkfræði. “ segir Málfríður. Hún bætir við að annars sé það jafn misjafnt og fólk sé margt, hvaða mið það rói á að frumgreinanáminu loknu. sbs@mbl.is HR Námið skapar nýja möguleika. Námið sé heild  Frumgreinnámið í HR er fjölsótt Málfríður Þórarinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.