Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 43
Eggert sat í stjórn Ungmenna- félagsins Njáls í þrettán ár, sat í stjórn og var gjaldkeri Héraðssam- bandsins Skarphéðins 1961-72, sat lengi í stjórn Fjölnis, FUS í Rang- árvallasýslu, var formaður Sjálf- stæðisfélags Rangæinga 1970-78, sat í kjördæmisráði Sjálfstæðis- flokksins í Suðurlandskjördæmi frá 1959, sat í hreppsnefnd Vestur- Landeyjahrepps og oddviti hennar um langt árabil frá 1970, var sýslu- nefndarmaður 1974-88, var formað- ur Búnaðarfélags Vestur-Landeyja 1970-93, sat í fulltrúaráði Bruna- bótafélags Íslands um skeið og var lengi umboðsmaður þess í Vestur- Landeyjahreppi, sat í stjórn Kaup- félagsins Þórs á Hellu, sat í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins 1980-85 og var stjórnarformaður hennar 1980-83, sat í stjórn Byggðastofnunar 1985-87, í stjórn Þríhyrnings 1988-91 og í stjórn Hafnar-Þríhyrnings hf. um skeið frá 1991. Þá sat hann í stjórn Fóð- urblöndunnar hf. Árangur af pólitísku starfi verður minni en maður ætlar Hvað finnst þér nú standa upp úr í pólitíkinni á þínum ferli, Eggert, þegar þú lítur um öxl? „Ja, ég skal nú ekki segja. Ætli það sé þó ekki sú staðreynd að mað- ur ætlaði alltaf að hafa meiri áhrif til góðs en manni tókst á endanum. Það var alltaf verið að stofna til ill- inda og ófriðar og því fór of mikill tími í flokkadrætti og úlfúð. Það verður þreytandi til lengdar og er engum manni hollt. Við slíkar aðstæður verður erfitt að koma góðum málum í höfn. Þó held ég nú samt að ýmislegt hafi þokast til betri vegar þegar öllu er á botninn hvolft.“ En hvernig líst þér á pólitíkina í dag? „Mér líst ekkert á hana. Ég held að nú vanti fyrst og fremst trausta forystumenn. Það virðist enginn vera til forystu fallinn og það held ég að eigi við um alla flokkana. Við þurfum menn sem vita hvar þeir eru staddir, vita hvert þeir ætla og vita hvernig þeir ætla að komast þangað.“ Fjölskylda Sambýliskona Eggerts er Guðrún Bogadóttir, f. 26.11. 1947, húsfreyja. Hún er dóttir Boga Eggertssonar í Laugardælum, og Hólmfríðar Guð- mundsdóttur húsfreyju. Dóttir Eggerts er Magnúsína Ósk Eggertsdóttir, f. 1970, hús- freyja og bankastarfsmaður í Reykjavík, og á hún einn son, Ey- þór Frey. Bróðir Eggerts er Sigurður Haukdal, f. 14.12. 1930, fyrrv. flug- stjóri, búsettur í Garðabæ, kvæntur Önnu Einarsdóttur húsfreyju. Fóstursystir Eggerts er Ásta Valdimarsdóttir, húsfreyja í Reykjavík. Foreldrar Eggerts voru Sigurður S. Haukdal, f. 7.8. 1903, d. 31.7. 1985, prófastur í Flatey og á Berg- þórshvoli og jafnframt bóndi þar, og k.h., Benedikta Eggertsdóttir Haukdal, f. 5.6. 1905, d. 22.5. 1996, húsfreyja. Úr frændgarði Eggerts Haukdal Eggert Haukdal Benedikt Eggertsson prófastur í Vatnsfirði Agnes Þorsteinsdóttir húsfr. í Vatnsfirði Eggert Benediktsson alþm. og hreppstj. í Laugardælum Guðrún Sólveig Bjarnadóttir húsfr. í Laugardælum Benedikta Eggertsd. Haukdal húsfr. í Flatey og á Bergþórshvoli Margrét Erlendsdóttir húsfr. á Staðarfelli Bjarni Sveinsson pr. á Staðarfelli Elínborg Jónsdóttir húsfr. í Höll Guðmundur Eggertsson b. í Höll í Dýrafirði Björg Guðmundsdóttir húsfr. í Rvík Sigurður Sigurðsson alþm. og ráðunautur í Rvík Sigurður S. Haukdal prófastur í Flatey og á Bergþórshvoli Sigurður Sigurðsson b. í Langholti, systursonur Guðrúnar Þorsteinsdóttur, ömmu Ingólfs Jónssonar, ráðherra á Hellu Margrét Þorsteinsdóttir af Kópvatnsætt, bróðurdóttir Páls Stefánssonar, b. í Neðradal í Biskupstungum, langafa Björns Bjarnasonar, fyrrv. ráðherra og Markúsar Arnar Antonssonar, fyrrv. sendiherra Ingibjörg Sigurðardóttir húsfr. í Byggðarhorni Stefanía Gissurardóttir húsfr. á Selfossi Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í Skálholti Ólafur Sigurðsson fyrrv. fréttamaður Gissur Sigurðsson fréttamaður Bogi Eggertsson b. í Laugardælum Benedikt Bogason alþm. og verk- fræðingur í Rvík Rósa Eggertsdóttir kennari á Siglufirði Guðrún Bergsdóttir húsfr. í Rvík Þórhildur Þorleifsd. fyrrv. leikhússtj. og alþm. Eggert Þorleifsson leikari Þorsteinn Benediktsson pr. á Krossi í Landeyjum Guðrún Eggertsdóttir húsfr. í Stóru- Vogum Guðrún Magnúsdóttir húsfr. á Sogni í Kjós Eggert Pálsson alþm. og prófastur á Breiðabólstað Ingunn Eggertsdóttir húsfr. í Rvík, móðir Þorsteins Thorarensen rithöfundar og útg., föður Bjargar Thorarensen lagaprófessors ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 Oddur sem hét fullu nafni Odd-ur Vigfús Gíslason Ólafsson,fæddist á Kalmanstjörn í Hafnahreppi 26.4. 1909 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Ólafur Ketilsson, útvegsb. á Óslandi í Höfn- um, og k.h., Steinunn Oddsdóttir. Föðursystir Odds var Vigdís, amma Ólafs Gunnarssonar rithöf- undur og langamma Gunnars Björnssonar, prests og sellóleikara. Ólafur var sonur Ketils, dbrm. í Kotvogi Ketilssonar. Móðir Ketils var Vigdís Jónsdóttir, dbrm. í Stóru- Vogum Daníelssonar, föður Magn- úsar, ættföður Waageættar. Móðir Ólafs Ketilssonar var Vilborg, af Víkingslækjarætt, systir Sigríðar, langömmu Kristjönu, móður Garð- ars Cortes söngvara, föður Garðars Thor Cortes söngvara. Steinunn var dóttir Odds, pr. á Stað í Grindavík Gíslasonar, og ÖnnuVilhjálmsdóttur, dbrm. í Kirkjuvogi í Höfnum Hákonarsonar Oddur lauk embættisprófi í lækn- isfræði frá HÍ 1936 og var í fram- haldsnámi í ---berklalækningum á Vífilsstöðum og í Bandaríkjunum 1936-43. Þá var hann í framhalds- námi í endurhæfingu í Danmörku á vegum Alþjóða heilbrigðismála- stofnunarinnar 1965-66. Hann var læknir á Vífilsstöðum 1936-42, yf- irlæknir á Reykjalundi 1945-72 og framkvæmdastjóri þar 1945-48 og einn eða með öðrum 1948-63. Oddur var læknir á Múlalundi 1959-72. Oddur var alþingismaður Reykja- neskjördæmis fyrir Sjálfstæð- isflokkinn 1971-79. Oddur sat í stjórn SÍBS, berkla- varnasambands Norðurlanda, Rrauða kross Íslands Öryrkja- bandalags Íslands og sinnti ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir þessi félagasamtök. Þá var hann formaður Endurhæfingarráðs. Hann var auk þess mikill áhugamaður um fiski- rækt og skógrækt. Eiginkona Odds var Ragnheiður Jóhannesdóttur hárgreiðslukonu og eignuðust þau sex börn. Oddur lést á Reykjalundi 18.1. 1990. Merkir Íslendingar Oddur Ólafsson 90 ára Steinunn Hilma Ólafsdóttir 85 ára Guðný Margrét Árnadóttir Jóhann Pétursson 80 ára Elín Árnadóttir Valgeir Vilhelmsson Þóra Friðriksdóttir 75 ára Emilía Mýrdal Jónsdóttir Helgi Gestsson Hildur Gísladóttir Hrefna Einarsdóttir Valdís Marinósdóttir 70 ára Bjargey Guðmundsdóttir Erla Gjermundssen Guðlaug Sigfúsdóttir Svala Guðmundsdóttir Þórdís Richardsdóttir 60 ára Anna Soffía Óskarsdóttir Björn Þ. Björgvinsson Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir Gunnar Helgi Guðmundarson Halla Árný Júlíusdóttir Hólmfríður Hafberg Jón Rósant Þórarinsson Margrét Einarsdóttir Valdís Jóna Erlendsdóttir 50 ára Anna Jórunn Guðmundsdóttir Ásthildur Sverrisdóttir Friðleifur Ingi Brynjarsson Hreggviður Ágústsson Ingimundur Þór Jósefsson Kristinn Halldór Árnason Kristín Anna Toft Jónsdóttir Linda Björg Sigurðardóttir Rósa Ólafsdóttir Þóra Ásgeirsdóttir 40 ára Birgir Grímsson Björn Helgi Björgvinsson Emil Orri Michelsen Erin Michael Zemer Helga Bára Bartels Jónsdóttir Ingvar Þór Stefánsson Jóhann Gunnar Arnarsson Jón Ólafur Bergþórsson Katrín Gestsdóttir Kristín Inga Hrafnsdóttir Natalie Samantha Scholtz Vicente Canete Apas 30 ára Birgir Guðjónsson Jónína Margrét Kristjánsdóttir Lukasz Franciszek Brzecki Ómar Norðfjörð Guðmundsson Ómar Örn Hauksson Petra Dröfn Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Ásta ólst upp á Hornafirði, lauk BA-prófi í trúarbragðafræði frá HÍ og stundar nú diploma- nám í kynjafræði v ið HÍ. Dóttir: Emelía Ástudóttir Eyjólfsdóttir, f. 2007. Foreldrar: Elín Helga- dóttir, f. 1961, starfar við Kleppsspítala og Egill Benediktsson, f. 1958, starfsm. hjá sýslum. á Höfn. Stjúpfaðir: Ásþór Guðmundsson, f. 1961, húsamálari. Ásta Margrét Elínardóttir 40 ára Margrét ólst upp á Úlfsstöðum, er búsett á Sauðárkróki og er ritari og gjaldkeri hjá Byggða- stofnun. Maki: Kári Heiðar Árna- son, f. 1971, versl- unarmaður. Börn: Thelma Rut, f. 1994; Þröstur, f. 1995, og Viktor, f. 2003. Foreldrar: Helgi Frið- riksson, f. 1947, bóndi, og Sigríður Viggósdóttir, f. 1940, húsfreyja. Margrét Guðrún Helgadóttir 30 ára Andri Freyr ólst upp í Reykjavík, stundaði nám við FG, útskrifaðist þaðan og lauk tveggja ára diplómanámi við HÍ. Hann starfar við Borg- arbókasafnið, æfir sund með Öspinni og starfar með leikfélaginu Tjarn- arleikhópunum. Foreldrar: Svanhildur Árnadóttir, f. 1956, kenn- ari, og Hilmar Jóhanns- son, f. 1943, fram- kvæmdastjóri. Andri Freyr Hilmarsson Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.