Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 „FJÖLBREYTT ATVINNULÍF; FISKUR, FERÐAMENN OG ROKK“ GUÐMUNDUR M. KRISTJÁNSSON HAFNARSTJÓRI ÍSAFJARÐARBÆJAR OG STJÓRNARFORMAÐUR ROKKHÁTÍÐARINNAR ALDREI FÓR ÉG SUÐUR „HÆKKUN BARNABÓTA“ „HÆKKUN GRUNNFRAMFÆRSLU NÁMSLÁNA UM TÆP 40%“ KRISTÍN VILHJÁLMSDÓTTIR ÞÝÐANDI ELÍAS HALLDÓR ÁGÚSTSSON KERFISSTJÓRI „STRANDVEIÐAR“ „TVÖFÖLDUN KVIKMYNDASJÓÐS“ RAGNAR BRAGASON KVIKMYNDALEIKSTJÓRI, REYKJAVÍK EYRÚN ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR NÁMSMAÐUR Í HÍ SIGURÐUR KJARTAN HÁLFDÁNARSON SJÓMAÐUR, BOLUNGARVÍK – ÞESS VEGNA KJÓSUM VIÐ VG www.rita.is Ríta tískuverslun Bæjarlind 6, sími 554 7030 Síðar mussur kr. 7.900 Fleiri litir Str. 40-58 BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Atvinnuleysið er heldur á undanhaldi en staðan er eigi að síður alvarleg. Í dag eru um 9% fé- lagsmanna okkar án atvinnu, á sama tíma og lands- meðaltal atvinnuleysis er 4,5%,“ segir Sigurður Bessason, for- maður Eflingar – stéttarfélags. „Á bak við þessar tölur eru alls 1.750 félagsmenn í atvinnuleit og þar af er rúmur helmingur af erlendum uppruna. Þessar stað- reyndir og þróun á vinnumark- aði hefur leitt til þess að starfs- háttum hér hjá Eflingu hefur verið breytt. Við reynum eftir megni að koma til móts við fólk í daglegum aðstæðum þess og teljum það hafa gefið góða raun.“ 13,5% atvinnulaus þegar mest var Mikið hefur reynt á styrk og þjónustu stétt- arfélaga síðustu ár. Þúsundir manna misstu at- vinnu sína í hruninu í október 2008. Bygginga- og jarðvinnuframkvæmdir stöðvuðust nánast strax og í flestum fyrirtækjum landsins var fólki sagt upp störfum og starfshlutfall margra lækkað. „Þetta var mikill skellur og þar sem margt af okkar fólki hefur í mörgum tilvikum skemmri menntun að baki, er staða þess á vinnumarkaðinum brothætt. Ófaglærðir lentu margir í erfiðri stöðu, en vorið 2009 voru alls 2.700 Eflingarfélagar án vinnu eða um 13,5% af rúmlega 20 þúsund fé- lagsmönnum. Tölurnar voru á því róli í þrjú ár, það er kannski fyrst núna sem landið er aðeins að rísa,“ segir Sigurður. Hann bætir við að þó atvinnulausum sé aðeins að fækka núna geti skýringarnar á því verið margar. Réttur fólks til atvinnuleysisgreiðslna var lengdur upp í fjögur ár úr þremur með bráðabirgðalögum, sem féllu úr gildi um sl. áramót. Margir hafi verið á bótum þann tíma og eigi skv. því nú aðeins hugs- anlega rétt á stuðningi frá félagsþjónustu sveitarfé- laga. Átak að koma sér aftur af stað „Ég óttast að fólkið sem nú er að detta út af at- vinnuleysisskránni geti lent í gati í kerfinu,“ segir Sigurður Bessason. Hann telur félagslegan stuðn- ing mikilvægan þegar fólk hefur verið lengi at- vinnulaust. „Eftir að hafa verið án vinnu í eitt ár er talsvert átak að koma sér aftur af stað. Því höfum við hvatt fólk til að sækja allan þann stuðning sem er í boði, svo sem skemmri námskeið. Þá hefur fólk fengið styrki til þess að stunda líkamsrækt og fleira sem gagnast.“ Aðrar aðgerðir í þágu atvinnulausra segir for- maður Eflingar hafa gefið góða raun. Nefnir hann í því sambandi meðal annars verkefnið Liðsstyrk. Í krafti þess hefur fólk fengið tímabundna ráðningu hjá fyrirtækjum sem aftur fá meðgjöf frá Vinnu- málastofnun, sem nemur atvinnuleysisbótum við- komandi. Þessar greiðslur lækka síðan eftir því sem líður á. „Þetta hefur komið vel út. Margir hafa í fram- haldinu verið ráðnir sem fastir starfsmenn. Þá er til nokkurs unnið,“ segir Sigurður. Töldum það félagslega skyldu Hjá Eflingu var mörkuð sú stefna að félagsmenn án atvinnu héldu aðild sinni með greiðslu fé- lagsgjalda og þó þeir greiddu ekki t.d. svo sem sjúkrasjóð, skyldu þeir eigi að síður njóta réttinda. „Við teljum slíkt einfaldlega vera félagslega skyldu, enda höfðum við svigrúmið. Staða félagsins er sterk,“ segir Sigurður. Nefnir í því sambandi að fyrir nokkrum misserum hafi félagsgjöld af launum verið lækkuð úr 1,0% í 0,7%. Eigi að síður hafi fé- lagið getað komið til móts við félaga sína með sama hætti og áður með þjónustu, svo sem í gegnum sjúkra-, mennta- og orlofssjóði. Sanni félagið með því – og verkalýðshreyfingin almennt – hve sterkt bakland það sé launafólki. Í janúar sl. voru gildandi kjarasamningar á al- mennum vinnumarkaði endurskoðaðir. Samningar þessir voru gerðir snemma árs 2011 og giltu þá til þriggja ára. Aðstæður í efnhagsmálum voru hins vegar þess valdandi að gildistíminn var styttur um nokkra mánuði – eða fram í nóvember nk. Kaupmáttur gufar upp „Nú vitum við auðvitað ekki hvernig aðstæður verða eftir hálft ár. Verðbólgan er á skriði, gengi krónunnar er hátt og vextir sömuleiðis. Aukinn kaupmáttur er því fljótur að gufa upp við slíkar að- stæður. Stóra verkefnið er því að að ná jafnvægi í efnahagslífinu,“ segir Sigurður Bessason. Margir að missa bótaréttinn  Ófaglært Eflingarfólk í erfiðri stöðu  Útlendingar helmingur atvinnulausra  Félagslegur stuðningur er mikilvægur  Félagsmenn halda réttindum Sigurður Bessason Morgunblaðið/Golli Atvinna Framkvæmdir eru víða í gangi eða eru að fara af stað - sem kallar á vinnufúsar hendur. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.