Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 Í umræðuþætti í sjónvarpinu ígærkvöldi kom berlega í ljós að ekki er öllum forystumönnum stjórnmálaflokkanna treystandi þegar kemur að fullveldi lands- ins.    Þeir halda sumir áfram blekk-ingunni um að hægt sé að kíkja í pakkann hjá ESB og ná einhverjum „samn- ingum“ um nið- urstöðu aðlög- unarviðræðnanna sem staðið hafa yf- ir megnið af kjör- tímabilinu án þess að um nokkuð hafi verið samið.    Segja má að málflutningurSamfylkingarflokkanna tveggja og Vinstri grænna í þess- um umræðuþætti hafi staðfest orð sem þá fráfarandi formaður Bændasamtakanna lét falla á Búnaðarþingi á dögunum:    Í mínum huga er umsókn umaðild að Evrópusambandinu pólitískt dauð, henni verður end- anlega aflýst eftir alþingiskosn- ingarnar í vor, en þær kosningar eru fullveldiskosningar. Við höf- um staðið fast á okkar stefnu í málinu og sætt margvíslegum ákúrum en okkar sjónarmið hafa aldrei verið hrakin.“    Haraldur Benediktsson hafðirétt fyrir sér um að kosn- ingarnar á morgun eru öðrum þræði kosningar um fullveldi landsins. Þær snúast meðal ann- ars um hvort blekkingar stjórn- arflokkanna í þágu Evrópusam- bandsaðildar eigi að fá að halda áfram eða hvort aðildarviðræður verði stöðvaðar og Íslandi hlíft við frekari sýndarmennsku og blekkingum. Haraldur Benediktsson Fullveldis- kosningar STAKSTEINAR Veður víða um heim 25.4., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík -2 snjókoma Akureyri 0 snjókoma Kirkjubæjarkl. 3 léttskýjað Vestmannaeyjar 2 skýjað Nuuk 1 upplýsingar bárust ek Þórshöfn 7 alskýjað Ósló 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Stokkhólmur 13 heiðskírt Helsinki 11 heiðskírt Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 23 heiðskírt Dublin 10 léttskýjað Glasgow 8 skúrir London 22 heiðskírt París 25 heiðskírt Amsterdam 21 heiðskírt Hamborg 18 léttskýjað Berlín 18 léttskýjað Vín 25 léttskýjað Moskva 3 skúrir Algarve 22 léttskýjað Madríd 20 skýjað Barcelona 15 skúrir Mallorca 17 skýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 23 heiðskírt Winnipeg 2 skýjað Montreal 7 léttskýjað New York 11 heiðskírt Chicago 6 skýjað Orlando 25 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 26. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:16 21:36 ÍSAFJÖRÐUR 5:07 21:55 SIGLUFJÖRÐUR 4:50 21:38 DJÚPIVOGUR 4:42 21:09 www.brynja.is - brynja@brynja.is LYKILVERSLUN VIÐ LAUGAVEGINN Hefilbekkir fyrir alla HOBBYBEKKIR VERKSTÆÐISBEKKIR SKÓLABEKKIR Meira en 90 ára reynsla í framleiðslu á hefilbekkjum þar sem hugsað er um notandann og notagildið. Småland 27.700 kr. Hobby 32.500 kr. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Störfum á vegum ríkisins á Vest- urlandi hefur fækkað um 3% frá árinu 2005 á sama tíma og íbúum svæðisins hefur fjölgað um 3,5%. Þegar tekið er tillit til íbúafjölda hef- ur opinberum störfum því fækkað á Vesturlandi um 5,5% á síðustu átta árum. Þetta kemur fram í nýjum hagvísi um störf á vegum ríkisins á Vesturlandi sem Vífill Karlsson hag- fræðingur hefur unnið fyrir Sam- band sveitarfélaga á Vesturlandi. Í skýrslunni kemur fram að stöðu- gildi á vegum ríkisins hafi verið 795,8 í febrúar síðastliðnum. Þar af séu 384,9 á vegum velferðarráðu- neytisins og 169,9 á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Í sambærilegri athugun sem gerð var árið 2005 voru 824 stöðugildi á veg- um ríkisins á Vesturlandi og hefur því fækkað um 28,2 á milli áranna 2005 og 2013. Segir í skýrslunni að þetta sé athyglisverð þróun í ljósi þess að nýjar stofnanir og fyrirtæki á vegum ríkisins hafi hafið starfsemi á þessum tíma. Samtals fylgi þess- um nýju stofnunum 53,25 ný stöðu- gildi. Þá kemur einnig fram að op- inber stöðugildi eru færri á Vesturlandi en á Norðurlandi vestra en þar hefur stöðugildum fækkað jafnt og þétt á sama tímabili. Morgunblaðið/Árni Sæberg Akranes Opinberum störfum á Vesturlandi hefur fækkað frá 2005. Samdrátt- ur á Vest- urlandi  Opinberum störf- um fækkar um 3%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.