Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
Barátta launafólks fyrirbættum kjörum á sérmerkilega sögu, sem hefurekki verið rannsökuð eins
mikið og hún á skilið. Nú hefur ASÍ
gefið út Sögu Alþýðusambands Ís-
lands í tveimur bindum sem heita „Í
samtök“ og „Til velferðar“. Það hefur
tekist vel til með þetta verkefni.
Fram er komið verk sem verður
grundvallarrit í öllum frekari rann-
sóknum á sögu verkalýðshreyfing-
arinnar.
Í bókum Sumarliða Ísleifssonar er
ekki bara verið að segja frá sigrum
ASÍ. Höfundur bendir á ýmis atriði
sem verkalýðshreyfingin var sein að
bregðast við, eins og baráttu fyrir
bættum aðbúnaði á vinnustöðum.
Hann fjallar um að forystumenn ASÍ
stóðu lengi gegn því að versl-
unarmenn fengju aðild að samband-
inu og Sumarliði bendir á að við
stofnun ASÍ hafi sambandið tekið af-
stöðu gegn sambandslagasamn-
ingnum 1918, en hann segir að þessi
afstaða hafi átt þátt í að jafn-
aðarmönnum á Íslandi tókst ekki að
ná eyrum almennings í sama mæli og
í nágrannalöndum okkar.
Fram til ársins 1942 var Alþýðu-
samband Íslands hluti af Alþýðu-
flokknum. Gríðarlega hörð pólitísk
átök áttu sér stað innan ASÍ bæði
fyrir og eftir seinna stríð. Raunar má
segja að áratugum saman hafi ASÍ og
verklýðshreyfingin verið undirlögð af
pólitískum deilum. Þó þessar deilur
hafi vissulega örvað áhuga á verka-
lýðsmálum var óhjákvæmilegt að
þær kæmu niður á starfi hreyfing-
arinnar. Í upphafi voru þessar deilur
fyrst og fremst á milli krata og
kommúnista, en
þegar leið á öldina
fóru sjálfstæð-
ismenn og fram-
sóknarmenn einn-
ig að beita sér og
reyna að tryggja
sér áhrif. Í þess-
um deilum mynd-
uðust bandalög
þar sem segja má að mottóið hafi ver-
ið óvinur óvinar míns er vinur minn.
Þetta leiddi m.a. til þess að sjálfstæð-
ismenn og kommúnistar unnu oft
saman gegn Alþýðuflokknum. Það er
ekki auðvelt að skrifa um þessa bar-
áttu svo öllum líki. Ekki verður hins
vegar annað séð en að Sumarliða tak-
ist vel að rekja þessa sögu. Hann
reynir að útskýra hvaða sjónarmið
lágu að baki.
Fróðlegt er að lesa um sjónarmið
forystumanna Alþýðuflokksins, eins
og Gylfa Þ. Gíslasonar og Hannibals
Valdimarssonar, um hvernig best
væri að takast á við kommúnista.
Hannibal náði miklum árangri á
Vestfjörðum, en þar náðu komm-
únistar litlum árangri og hann hafði
áhuga á að yfirfæra þann árangur á
landið allt þegar hann varð forseti
ASÍ. Sumarliði birtir í bókinni athygl-
isvert bréf Gylfa til Hannibals þar
sem hann varar hann við að ganga til
samstarfs við kommúnista.
Sumarliði Ísleifsson hefur lagt
mikla vinnu í að safna saman mynd-
um, en þær eru mjög mikilvægur
hluti bókarinnar. Að vissu marki má
njóta hennar með því að skoða mynd-
irnar og lesa myndatextana, en vand-
að hefur verið til textanna. Mynd-
irnar segja mikla sögu um aðbúnað
verkafólks á síðustu öld. Má þar
nefna myndir úr togurum á milli-
stríðsárunum, sem sýna vel um hvað
barátta verkalýðshreyfingarinnar
fyrir vökulögunum snerist. Myndir af
konum við fiskþvott og konum við
uppskipun sýna líka þann þrældóm
sem margar konur máttu þola og
fengu þær þó mun lægra kaup en
karlarnir.
Hæla verður umfjöllun Sumarliða
um hlut kvenna í verkalýðsbarátt-
unni. Hann segir frá þeim launamun
sem lengi vel var á kauptöxtum karla
og kvenna, en lengi vel þótti sjálfsagt
mál að taxti kvenna væri lægri en
karla. Hann fjallar um jafnrétt-
isumræðu innan verkalýðshreyfing-
arinnar, en verkalýðshreyfingin var
lengi að taka við sér í jafnrétt-
ismálum og áhugi á þeim málum var
lengi vel takmarkaður innan hreyf-
ingarinnar. Miðað við greiningu Sum-
arliða verður því tæplega haldið fram
að verkalýðshreyfingin hafi verið í
forystuhlutverki í jafnréttismálum á
síðustu öld. Hitann og þungann af
þeirri baráttu háðu konur sjálfar, án
þess að karlarnir í verkalýðshreyf-
ingunni væru mikið að beita sér.
Kostir Sögu Alþýðusambands Ís-
lands eru ekki hvað síst að sjón-
arhornið er vítt og fjallað er um
marga þætti í baráttu verkalýðs-
hreyfingarinnar. Fjallað er um fé-
lagsleg réttindi, húsnæðismál, aðbún-
að og hollustuhætti,
atvinnuleysistryggingar, lífeyr-
istryggingar, orlofsmál og fleira.
Áhugaverðir kaflar eru um félags-
málapakkana, sem urðu reglulegir
þættir í samningsgerð á viðreisnarár-
unum, en í þeim náði hreyfingin fram
nokkrum af sínum mikilvægustu
sigrum. Þar má nefna stofnun At-
vinnuleysistryggingasjóðs, stofnun
lífeyrissjóðanna, átaki í húsnæðis-
málum með uppbyggingu verka-
mannabústaða í Breiðholti og fleira.
Kaflar bókarinnar um sum innri mál
ASÍ eru ekki eins áhugaverðir, en
þeir eru að sjálfsögðu nauðsynlegur
hluti sögu ASÍ.
Það er ástæða til að fagna útgáfu
þessara bóka. Það er þarft framtak
hjá ASÍ að gefa þær út, en það er
ekki síður mikilvægt að ASÍ og
verkalýðshreyfingin haldi saman
gögnum um sögu sína og geri þau að-
gengileg fyrir sagnfræðinga og aðra
sem vilja rannsaka sögu verkalýðs-
mála á Íslandi, en það er að sjálf-
sögðu rétt sem Sumarliði bendir á í
formála, að þessi rannsókn felur ekki
í sér einhverja endanlega niðurstöðu
um sögu verkalýðshreyfingar á Ís-
landi.
Morgunblaðið/Kristinn
Barátta „Í bókum Sumarliða Ísleifssonar er ekki bara verið að segja frá sigrum ASÍ. Höfundur bendir á ýmis atriði
sem verkalýðshreyfingin var sein að bregðast við, eins og baráttu fyrir bættum aðbúnaði á vinnustöðum,“ segir rýnir.
Barátta sem skilaði árangri
Sagnfræði
Saga ASÍ bbbbn
Sumarliði Ísleifsson: Saga Alþýðu-
sambands Íslands – „Í samtök“ og „Til
velferðar“ Forlagið 2013
EGILL ÓLAFSSON
BÆKUR
Ásgeir Trausti
heldur tónleika á
efri hæð Faktorý
ásamt Pétri Ben í
kvöld kl. 23, en
húsið verður
opnað klst. fyrr.
Þar leikur hann
lög af plötu sinni
Dýrð í dauða-
þögn, auk nokk-
urra nýrra laga. Ásgeir Trausti
heldur senn til Danmerkur þar sem
hann kemur fram á SPOT hátíð-
inni. Í framhaldinu hitar hann upp
fyrir John Grant á tónleika-
ferðalagi hans um Bretland. Í sum-
ar liggur leiðin svo á Hróarskeldu.
Ásgeir Trausti
á Faktorý
Ásgeir Trausti
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 26/4 kl. 19:00 aukas Fim 16/5 kl. 19:00 Fös 7/6 kl. 19:00
Lau 27/4 kl. 19:00 Fös 17/5 kl. 19:00 Lau 8/6 kl. 19:00
Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 19:00 Sun 9/6 kl. 13:00
Þri 30/4 kl. 19:00 aukas Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 2/5 kl. 19:00 aukas Fim 23/5 kl. 19:00 Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 3/5 kl. 19:00 Lau 25/5 kl. 19:00 aukas Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn.
Lau 4/5 kl. 19:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn.
Sun 5/5 kl. 13:00 Mið 29/5 kl. 19:00 aukas Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn.
Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Fim 30/5 kl. 19:00 aukas Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 9/5 kl. 14:00 Fös 31/5 kl. 19:00 Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn.
Fös 10/5 kl. 19:00 Lau 1/6 kl. 13:00 Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 11/5 kl. 19:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn.
Sun 12/5 kl. 13:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn.
Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Fim 6/6 kl. 19:00
Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu!
Gullregn (Stóra sviðið)
Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00
Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas
Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 9/6 kl. 20:00 lokas
Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Lau 27/4 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00 Fös 17/5 kl. 20:00
Þri 30/4 kl. 20:00 Fös 10/5 kl. 20:00 Fim 23/5 kl. 20:00
Fös 3/5 kl. 20:00 Lau 11/5 kl. 20:00
Lau 4/5 kl. 20:00 Fim 16/5 kl. 20:00
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Snýr aftur í takmarkaðan tíma.
Núna! (Litla sviðið)
Sun 28/4 kl. 20:00 5.k Þri 14/5 kl. 20:00 Mið 22/5 kl. 20:00
Þri 7/5 kl. 20:00 Mán 20/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00
Sun 12/5 kl. 20:00 Þri 21/5 kl. 20:00 Þri 4/6 kl. 20:00 lokas
Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu
Tengdó (Litla sviðið)
Lau 27/4 kl. 20:00 23.k Fös 10/5 kl. 20:00 Lau 25/5 kl. 20:00
Fim 2/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 Sun 26/5 kl. 20:00
Fös 3/5 kl. 20:00 24.k Fim 16/5 kl. 20:00 Fös 31/5 kl. 20:00
Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Fös 17/5 kl. 20:00 Lau 1/6 kl. 20:00
Sun 5/5 kl. 20:00 Lau 18/5 kl. 20:00 Sun 2/6 kl. 20:00 lokas
Fim 9/5 kl. 20:00 aukas Fim 23/5 kl. 20:00
Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur!
Íslenski Dansflokkurinn: Walking Mad (Stóra sviðið)
Sun 28/4 kl. 20:00 4.k Fim 9/5 kl. 20:00 Mán 20/5 kl. 20:00
Sun 5/5 kl. 20:00 5.k Sun 12/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00
Tvö verk á einu kvöldi: Walking Mad og Ótta - húmor, galsi og geðveiki
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó –HHHHH – JVJ. DV
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 26/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 30/5 kl. 19:30 13.sýn
Lau 27/4 kl. 19:30 3.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 Aukas. Fös 31/5 kl. 19:30
Sun 28/4 kl. 19:30 Aukas. Fim 16/5 kl. 19:30 8.sýn Lau 1/6 kl. 19:30
Fim 2/5 kl. 19:30 Aukas. Fös 17/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 7/6 kl. 19:30
Fös 3/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 10.sýn Lau 8/6 kl. 19:30
Lau 4/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 11.sýn Fös 14/6 kl. 19:30
Mið 8/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 25/5 kl. 19:30 12.sýn Lau 15/6 kl. 19:30
Ein vinsælasta íslenska skáldsaga síðari ára í nýrri leikgerð
Kvennafræðarinn (Kassinn)
Fös 26/4 kl. 19:30 5.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 25/5 kl. 19:30
Lau 27/4 kl. 19:30 6.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 Fös 31/5 kl. 19:30
Fös 3/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 16/5 kl. 19:30 Lau 1/6 kl. 19:30
Lau 4/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 24/5 kl. 19:30
Hver er ekki upptekin af kvenlíkamanum?
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 28/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 14:00
Eitt ástsælasta barnaleikrit á Íslandi
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 27/4 kl. 13:30 Lau 4/5 kl. 15:00 Lau 25/5 kl. 13:30
Lau 27/4 kl. 15:00 Lau 11/5 kl. 13:30 Lau 25/5 kl. 15:00
Lau 4/5 kl. 13:30 Lau 11/5 kl. 15:00
Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka
Karma fyrir fugla (Kassinn)
Lau 8/6 kl. 19:30 aukas. Sun 9/6 kl. 19:30 aukas.
Síðasta sýning 7.apríl
Hvörf (Kúlan)
Fös 3/5 kl. 19:00 Aðalæf Mið 8/5 kl. 19:00 Sun 12/5 kl. 19:00
Lau 4/5 kl. 19:00 Frums. Fös 10/5 kl. 19:00
Sun 5/5 kl. 19:00 Lau 11/5 kl. 19:00
Lab loki í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Gilitrutt (Brúðuloftið)
Lau 27/4 kl. 13:30 Lau 27/4 kl. 15:30
Skemmtileg brúðusýning fyrir börn
30.04 - Þriðjudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg
03.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Kaldalón
04.05 - Laugardagur kl. 21:30 Laddi lengir lífið – UPPSELT Kaldalón
08.05 - Miðvikudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg
10.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg
11.05 - Laugardagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg
12.05 - Sunnudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg
17.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – Örfá laus sæti Silfurberg
24.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – Örfá laus sæti Silfurberg
25.05 - Laugardagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg
31.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – Ný sýning Silfurberg
01.06 - Laugardagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – Ný sýning Silfurberg