Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN 31Kosningar 2013 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 4.900 5.300 6.600 6.500 6.4006.600 8.500 7.950 12.000 950 7.300 Gjafir sem gleðja LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660 Ríkisstjórn Jóhönnu Sig- urðardóttur hefur um margt átt erfitt en erfiðast hefur hún þó átt með orðheldnina. Það vandamál hófst hjá rík- isstjórninni strax og minni- hlutastjórnin var mynd- uð.Vinstri grænir höfðu sérstaklega varað við starf- semi Alþjóða gjaldeyrissjóðs- ins, AGS. Það reyndust inn- antóm orð. Foringi þeirra gekk strax fram af eljusemi og trúnaði í þjónustu sinni við sjóðinn svo að um það var rætt í aðalstöðvum AGS að þennan mann ætti að nota í fleiri löndum þar sem AGS ræki starfsemi. Lofað var að slá skjald- borg um heimilin. Efndirnar urðu 110% leiðin sem var sniðin að þörfum bankanna sem fengu áfram leyfi til að kreista peninga út úr skuldugum heimilum. Af- skriftir sem fylgdu 110% leiðinni voru löngu tapaðar kröfur, tölur á blaði sem bankarnir sjálfir höfðu að stórum hluta búið til með auknu peningamagni í umferð sem engin verðmæti stóðu á bak við en hækkuðu verðbólgu, verðtryggð lán og kröfurnar á heimilin. Rokið var til með lagasetningu, sem braut stjórnarskrána, þegar geng- istryggðu lán bankanna voru dæmd ólögmæt. Eins og áður stóð ríkisstjórnin gegn hagsmunum fólksins í landinu en með bönk- unum og brást þar með frum- skyldu hverrar ríkisstjórnar sem er að gæta hagsmuna þjóðar sinn- ar. Hér er þó ótalið Icsave- samningar og hundraða milljarða austur á gjaldeyri þjóðarinnar til gamla Landsbankans, með tilheyr- andi tjóni þegnanna. Þegar Jó- hönnustjórnin tók við var talað um jöklabréf eða „snjóhengju“ upp á 400 milljarða. Nú er talað um tvö- falda þá upphæð. Svona er við- skilnaður ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn er hukl- andi í ýmsum málum. Gott dæmi um þetta er afstaðan til hjálpar heimilunum. Þar á að nota skattfé til að greiða inná húsnæðislánin. Kröfurnar á viðkomandi ættu því að lækka, en gera þær það? Varla. Meðan bankarnir hafa nánast í hendi sér að auka peninga í um- ferð og fella gengið og það nýta þeir sér. Leið Sjálfstæðisflokksins þjónar fyrst og fremst kröfuhöfum sem hirða greiðslurnar rétt eins og þeir hafa fengið að gera með aðgerðum ríkisstjórnarinnar fram að þessu. Framsóknarflokkurinn er með raunhæf og heilsteypt markmið í efnahagsmálum. Áherslan er lögð á að styrkja og bæta hag heim- ilanna sem í senn eru grunnstoðir þjóðfélagsins og efnahags þjóð- arinnar. Jafnframt því að draga úr skattlagningu á atvinnulífið og skapa rétta hvata til aukinnar fjárfestingar og atvinnu. Taka verður með ákveðinni festu á upp- gjöri gömlu bankanna og snjó- hengjunnar. Eyða ekki of löngum tíma í samninga þar um. Nýta skattlagningar- og lagasetning- arvald Alþingis til þess að tryggja hagsmuni þjóðarinnar. Framsókn- armönnum er tvímælalaust best treystandi til þess að hafa forystu um farsæla og réttláta lausn þess- ara vandasömu mála. Málafylgja þeirra og einörð afstaða gegn er- lendum kröfum og yfirgangi allt þetta kjörtímabil eru þau leið- armerki sem kjósendum er best að fara eftir á kjördaginn. Framsókn til farsældar Eftir Gunnar Oddsson og Sigtrygg Jón Björnsson Gunnar Oddsson Gunnar er fyrrverandi bóndi. Sig- tryggur Jón er fyrrverandi kennari. Sigtryggur Jón Björnsson Það er erfitt að gera sér í hugarlund hversu átakanlegt og niðurrífandi það er að geta ekki eignast börn án hjálpar. Rannsóknir sýna að álagið við baráttuna jafnist á við álagið sem fylgir því að berjast við lífshættulega sjúk- dóma. Það er því ekki skrítið að við sem höf- um ekki upplifað þessa reynslu á eigin skinni eigum erfitt með að setja okkur í þessi erfiðu spor. Þegar par stendur frammi fyrir því að þurfa að takast á við ófrjósemi þá tekur við langt og strangt ferli. Konan þarf að sprauta sig með hormónum og fara reglulega í kvennaskoðun svo ekki sé talað um alla vanlíðanina og áhyggjurnar sem ferlinu fylgja. Það er því enginn sem myndi leggja slíkt á sig nema þurfa nauðsynlega á því að halda. Í dag kostar meðferðin 370-450 þúsund eftir því hvað þarf að gera og fyrsta meðferðin er ekkert niðurgreidd, auk þess bætist við ýmis annar kostnaður eins og lyfja- og ferðakostnaður, sem getur hlaupið á tugum þúsunda. Það eru því margir sem ekki geta nýtt sér þessa lausn sökum efnahagslegra aðstæðna. Heildarkostnaður við tæknifrjóvganir á árinu 2011 var rúmlega 145 milljónir en þar af greiddu sjúklingar um 83 milljónir sjálfir. Á öll- um Norðurlöndunum tekur ríkið að jafnaði þátt í eða nið- urgreiðir alveg þrjár frjósemismeðferðir á hvert par. Það er því merkilegt að stjórnvöld á Íslandi hafi sett það fyrir sig að borga 100 milljónir á ári fyrir svo mikilvæga þjónustu þegar til samanburðar má nefna að Þjóðleikhúsið kostar 700 milljónir árið 2013 og rekstur Ríkisútvarpsins 3,2 milljarða. Það sem gleymist jafnan að nefna í þessu samhengi er að fjárhagsáhyggjur geta valdið streitu sem minnkar líkur á þungun og eykur líkur á fósturláti. Árangurslausar meðferðir og ítrekað fósturlát ásamt aukinni streitu auka líkur á andlegri vanlíðan með tilheyrandi kostnaði fyrir heilbrigðiskerfið. Þar að auki geta fjárhagsáhyggjur ofan í erfiðleika við getnað leitt til hjónaskilnaða og kostnaðar fyrir félagslega kerfið. Ofan á þetta erum við að tala um skattborgara framtíðarinnar svo þetta litla framlag ríkisins mun verða greitt mörgum sinnum til baka. Ég á erfitt með að átta mig á því hvers vegna það hef- ur verið tregða í íslenska kerfinu varðandi niðurgreiðslu á frjósemisaðgerðum og tel raunar ástæðuna vera skort á upplýsingum. Við megum ekki detta í það far að horfa einvörðungu á kostnaðinn við eitthvað en gleyma ábat- anum. Við megum ekki gleyma að hamingjusamt þjóð- félag er líklegra til að stuðla að auknum hagvexti en óhamingjusamt. Það er þess vegna sem við Píratar ætl- um að beita okkur í þessu máli og koma því í gegn á kom- andi þingi að a.m.k. þrjár meðferðir, sem leiða til upp- setningar fósturvísis, verði fríar fyrir par eða einstæða konu óháð fyrri barneignum, óháð kynjasamsetningu parsins og óháð búsetu. Þegar lítill neisti glæðir líf Eftir Hildi Sif Thorarensen Hildur Sif Thorarensen Höfundur er oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi. Það alltaf visst skref að kjósa sér ný vinnu- brögð í stjórnmálum og stórum hluta kjós- enda tókst að nútímavæða stjórnmálin í nokkrum bæjarfélögum á Íslandi og þar með Reykjavík árið 2010. Stór hluti fólks hafði kjark til að kjósa fólk til áhrifa í borginni sem hafði algjörlega nýtt svigrúm í stjórnmálum. Það hafði svigrúm til að nálgast stjórnmál á þann veg að gera gagn hver sem málefnin voru. Þau höfðu svigrúm til að gera stjórnmál skemmtileg og þannig aðgengilegri fyrir al- menning. Þau höfðu enga ástæðu til að taka þátt í leiðindunum og argaþrasinu við hina því þau höfðu svigrúm til að sleppa því. Þau höfðu þetta svigrúm því þau tilheyrðu ekki stjórnmálaflokkum með úrelta átakasögu á bakinu sem eitrandi áhrif hefur á alla ákvarðanatöku í stjórnmálum í dag. Á laugardag fá Íslendingar aftur tækifæri til breyt- inga. Stjórnarformaður Bjartrar framtíðar sagði muninn á Besta flokknum og Bjartri framtíð vera þann að Besti flokkurinn væri hugarástand meðan Björt framtíð væri stjórnmálaflokkur á landsvísu sem byggði á því hugarástandi. Kosningaáherslur Bjartrar framtíðar byggjast á markmiðum um meiri fjölbreytni, minni sóun, meiri stöðugleika, minna vesen og meiri sátt. Stór mál á borð við skuldavanda heimilanna verða aldrei leyst af gömlum flokkum með ný loforð nema stjórnmála- menningin breytist og fólk fari að sýna hvort öðru og skoðunum hvort annars meiri virð- ingu en gert hefur verið í stjórnmálum til þessa. Þú hefur val um að setja X við A á kjörseðl- inum á laugardaginn og fylgja þar með eftir þeim vinnu- brögðum sem komið hafa Reykvíkingum svo vel á síð- ustu misserum. Með von um bjarta framtíð Tökum næsta skref til Bjartrar framtíðar Eftir Tryggva Haraldsson Tryggvi Haraldsson Höfundur er stjórnmálafræðingur. Í heiðni var talið að skapanornir réðu því hvernig mönnum vegn- aði í lífinu. Orða- tiltækið að skipta sköpum þýðir að örlög- um nornanna má breyta. Fjölmargar vísbendingar liggja nú fyrir og benda okkur á að gera eitthvað sem skiptir sköpum. Ef okkur tekst ekki vel upp þá sigl- um við inn í tímabil stöðnunar og hrakandi lífsgæða. Örlagavald- arnir sem við ættum því nú að biðla til eru menntun, nýsköpun og vísindi. Hámarksnýting Fjárveitingar til rannsókna og nýsköpunar verða að nýtast sem best. Samhæfa þarf umhverfi rík- isstofnana, þar á meðal háskól- anna og ryðja þeim hindrunum úr vegi sem nú koma í veg fyrir sveigjanleika í stjórnun og verk- efnum þeirra sem stunda rann- sóknir og þróun. Mikilvægt er að ekkert í rekstrarumhverfinu hamli samstarfi. Hraðari verðmætasköpun Þrátt fyrir góðan afrakstur vís- indastarfs og að meira fé sé varið til málaflokksins en í mörgum samanburðarlöndum er verðmæta- sköpun ekki eins hröð og ætla mætti hér á landi. Því er nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum mun markvissar á mark- aðslegum forsendum til að stuðla að örari þróun. Þá ber að nefna að Sjálfstæðisflokkurinn vill að þeir sem stunda rann- sóknir, háskólar, fyr- irtæki og einstaklingar, fái að njóta sjálfsaflafjár á sambærilegan hátt og gerist annars staðar. Slíkt myndi gera íslensku rann- sóknarumhverfi kleift að standa jafnfætis erlendri samkeppni og samstarfi. Rétt stefna að góðri uppskeru Fyrir rúmum áratug var mörk- uð stefna í þessum málum einmitt af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. Afraksturinn varð samningur milli ríkis og háskólafólks. Þar var rétta stefnan tekin. Það mikilvæga er nú að vísbendingar eru um að áhugi fjárfesta sé vakinn og fjár- magn vilji inn í landið. Sjálfstæð- isflokkurinn hefur markað sér skýra stefnu hvað örlagavaldana: menntun, nýsköpun og vísindi, snertir og vill vinna áfram að góðri uppskeru. Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn á laugardaginn skiptir því sköpum. Að skipta sköpum Eftir Áslaugu Maríu Friðriksdóttur Áslaug María Friðriksdóttir Höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík suður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.