Morgunblaðið - 26.04.2013, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
SVIÐSLJÓS
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Einstakur andi, baráttuþrek og já-
kvæðni umlykja allt starf á end-
urhæfingardeild Landspítala á
Grensási. Það má í raun segja að þol-
inmæðin og þrautseigjan sé allt að
því áþreifanleg þegar gengið er inn í
húsakynni Grensásdeildarinnar.
Í dag eru 40 ár síðan deildin var
opnuð og af því tilefni settist blaða-
maður niður með Stefán Yngvasyni
yfirlækni eftir að hafa gengið um
húsnæði Grensásdeildar, sem stend-
ur við Álmgerði í Reykjavík.
„Þessi staður hefur auðvitað all-
mikla sérstöðu, oft eru sjúklingar hér
lengi, fólk kynnist, návígið er mikið,
umgengni og samstarf við fjölskyldur
sjúklinga er oft á tíðum töluvert,“
segir Stefán um starfið á Grens-
ásdeildinni. „Við látum okkur ekkert
mannlegt óviðkomandi, hvort sem
það er akstur bifreiðar, húsnæði við-
komandi, kynlífsvandamál, sam-
skiptavandamál, við reynum að koma
að þessu öllu til að hjálpa fólki að ná
þeim lífsgæðum sem það sækist eft-
ir.“
Breytingar á mörgum sviðum
Eins og vænta má segir Stefán að
starfsemin hafi tekið töluverðum
breytingum á þeim fjörutíu árum
sem starfsemi hefur verið á Grensási.
„Í tæknimálum sjáum við heil-
mikla breytingu, s.s. tölvuverkefni og
hugbúnað sem hjálpar okkur mikið
við þjálfun sjúklinga. Við erum t.d.
með gönguvélmenni sem hjálpar fólki
að læra að ganga á ný, hugbúnað til
að meta ökuhæfni fólks og búnað til
að hjálpa til við þjálfun vegna löm-
unar í höndum,“ nefnir Stefán sem
dæmi um þróun síðustu ára.
Þá tekur hann fram að mikil þekk-
ing starfsmanna á endurhæfingu hafi
safnast og verklag breyst til sam-
ræmis við styttingu legutíma. með
árunum. Einnig segir Stefán að flæði
sjúklinga og verkefni deildarinnar
hafi tekið töluverðum breytingum
með breyttum samfélagsháttum.
Slysin og sjúkdómarnir sem hrjá
sjúklinga hafi tekið töluverðum
breytingum á árunum fjörutíu.
En hver eru verkefni og hlutverk
Grensásdeildar í dag? „Við erum í
raun endurhæfingarmiðstöð Land-
spítalans. Við tökum við fólki af
bráðadeildum spítalans sem hefur
orðið fyrir færnitapi af einhverju tagi
s.s. skertri hreyfigetu eða einhvers-
konar vitrænum truflunum eftir
heilablóðfall, höfuðáverka, slys eða
sjúkdóm af einhverju tagi.“
Á Grensási koma saman margir
fagaðilar sem í sameiningu vinna með
viðkomandi sjúklingi að því að há-
marka lífsgæði hans. Þjónustan sem
veitt er skiptist í þrjú þrep. Í fyrsta
lagi sólarhringsþjónustu, í öðru lagi
dagdeild og í þriðja lagi göngudeild.
Þjónustan er því veitt á mjög víðum
grundvelli enda þarfir hvers og eins
mjög mismunandi.
Mjög víðtæk þjónusta
„Til þess að sinna þessu verkefni
þarf mjög fjölbreyttan hóp starfs-
fólks sem vinnur saman að verkefn-
inu. Auk lækna og hjúkrunarfólks
eru hér sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar,
félagsráðgjafar, sálfræðingar og tal-
meinafræðingar, hér er því stór hóp-
ur sem getur veitt þjónustu á mjög
víðu sviði.“
Eins og áður segir hefur starfsemi
Grensásdeildar breyst töluvert í ár-
anna rás, nefnir Stefán að þegar
hann hafi komið til starfa árið 1998
hafi verið starfandi tvær legudeildir
með 60 rúmum, í dag séu 24 sólar-
hringsrúm. „Stóra breytingin varð
2009 þegar við fækkuðum sólarhring-
srúmum úr rúmlega 40 í 24. Það var
hluti af þeirri breytingu sem hér varð
eftir hrun. Stofnunin hefur tekið á sig
hagræðingu á bilinu 30-35%. Til þess
að mæta niðurskurði stækkuðum við
dagdeildina og breyttum verkferlum
þannig að við reynum að skrifa fólk
hraðar út af sólarhringsdeildinni,“
segir Stefán og bætir við að þetta hafi
þýtt aukið álag á aðstandendur sem
og þjónustuaðila úti í samfélaginu.
Stefán eins og allir innan heilbrigð-
iskerfisins vonar að botninum sé náð
og nú sé hægt að horfa fram á veginn.
„Við þurfum að tryggja að okkur geti
haldist á starfsfólki, það eru ákveðnir
brestir í því eins og úti um allt í heil-
brigðiskerfinu.“
Nauðsynlegt að bæta aðstöðu
Þá segir Stefán að nauðsynlegt sé
að huga að aðbúnaði og aðstöðunni
sem Grensásdeild sé búin. „Það háir
okkur verulega hvað þjálfunar-
aðstaðan er þröng og hún setur okk-
ur mjög þröngar skorður varðandi
það hvað er hægt að gera í þjálfun.“
Þá segir Stefán að á legudeild sé al-
gengt að sjúklingar búi í tvíbýli, það
sé hinsvegar tákn gamalla tíma og
standist ekki kröfur nútímans. „Það
snýst um smitvarnir, sjálfsvirðingu,
persónuvernd og aðstöðu fyrir fjöl-
skyldur sjúklinga.“
Stefán vill sjá að byggt verði við
núverandi húsnæði, forsenda bættrar
aðstöðu sé að olnbogarými skapist
svo hægt verði að fara í aðgerðir til
að bæta núverandi aðstöðu.
Einstök starfsemi á Grensási
Grensásdeildin er 40 ára í dag Láta sér ekkert óviðkomandi í baráttunni fyrir bættum lífsgæð-
um skjólstæðinga sinna Vona að hægt sé að spyrna við nú eftir niðurskurðinn undanfarin ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrbætur Stefán Yngvason hefur verið yfirlæknir á Grensási síðan 1998. Hann segir að þótt húsakostur starfsem-
innar sé um margt ágætur, standist hann ekki kröfur nútímans, t.d. búi einstaklingar á legudeild í tvíbýli.
Starfsemin á Grensási
» Um 400 einstaklingar fara í
gegnum ýmiskonar endurhæf-
ingu á Grensási á ári hverju.
» 55-60 einstaklingar eru á
sólarhrings- og dagdeild
Grensáss á degi hverjum.
» Að auki nýtir fjöldi manns
göngudeildina og á milli 70 og
80 manns nýta sér sundlaug-
araðstöðuna á degi hverjum.
» Á Grensási vinna um 90
manns í 75 stöðugildum.
» Starfsemin byggist á þver-
faglegri starfsemi, lækna,
hjúkrunarfræðinga, sjúkra-
þjálfara, iðjuþjálfa, fé-
lagsráðgjafa, sálfræðinga og
talmeinafræðinga svo eitthvað
sé nefnt.
„Þessi staður er alveg
meiriháttar. Ég hafði
heyrt talað um að þetta
væri góður staður en
mér hefði aldrei dottið í
hug að hann væri svona
góður,“ segir Guðmundur
Jónsson, 62 ára vörubíl-
stjóri sem fékk heila-
blóðfall fyrir rúmum
þremur mánuðum. Guð-
mundur lamaðist öðrum
megin og missti málið.
Eftir að hafa verið á end-
urhæfingu á Grens-
ásdeildinni í þrjá mánuði,
fyrst á legudeild og nú á
dagdeild er Guðmundur
farinn að ganga við staf, mátturinn í hendinni er byrjaður að aukast
og málið batnar dag frá degi. Guðmundur er ekki spar á yfirlýsing-
arnar þegar hann er spurður um andann á Grensásdeildinni. „Starfs-
fólkið á Grensásdeild er alveg yndislegt, himneskt. Það á við um
hvern einasta starfsmann. Þetta er allt gott fólk, alltaf brosandi, þykir
vænt um mann og hefur gaman af því að grínast. Það vantar ekki létt-
leikann hérna,“ segir Guðmundur.
Eins og áður segir þá var Guðmundur fyrst um sinn á legudeild á
Grensási en nú er hann á dagdeild og kemur því inn kl. 9 á morgnana
og fer heim um 16. Æðruleysi og jákvæðni Guðmundar er aðdáun-
arverð og gaman er að fylgja honum eftir á göngunum á Grensási. Þar
heilsast allir, sjúklingar stappa stálinu hver í annan og fer Guðmundur
þar fremstur í flokki.
„Þetta er bara eins og hver önnur vinna, það segi ég. Áður en ég
veiktist vann ég sem vörubílstjóri en núna er vinnan mín hérna og ég
hugsa ekkert öðruvísi. Vörubíllinn er bara heima, númerslaus og bíð-
ur,“ segir Guðmundur áður en hann heldur áfram í þjálfun dagsins.
„Starfsfólkið á Grensásdeild
er alveg yndislegt, himneskt“
TEKST Á VIÐ AFLEIÐINGAR HEILABLÓÐFALLS
Guðmundur Endurhæfing sem hver önnur vinna.
FOCUS
ÖFLUGI ORKUDRYKKURINN
Með koffín, guarana og ginseng
– fyrir orku, úthald og einbeitingu
Góðar ástæður
a Áhrifarík innihaldsefni - virkar samstundis
a Freyðitöflur - 15 stk. Leystar upp í vatni þegar þér hentar
a Aðeins 2 hitaeiningar í 100 ml
a Inniheldur „electrolytes” - gott fyrir vökvajafnvægi líkamans
a Ótrúlegt verð
Hentar vel
a Fyrir allar aðstæður sem þú gætir þurft á
aukinni orku að halda
a Alltaf við hendina – heima, í vinnunni,
íþróttatöskunni, skólatöskunni, golfpokanum...
Fæst í helstu apótekum
brokkoli.is