Morgunblaðið - 26.04.2013, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 26.04.2013, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 gert ráð fyrir því að mögulegt verði að reka austur-vestur flugbrautina frá 2016 til loka skipu- lagstímabilsins. Ekki er gert ráð fyrir N-S flug- brautinni í aðalskipulag- inu eftir árið 2016. Norður-suður (N-S) flugbrautin er mun mik- ilvægari fyrir flugið en norðaustur-suðvestur brautin sem ákveðið er að leggja af. Dagur var spurður hvort til Guðni Einarsson gudni@mbl.is Samkomulag ríkisins og Reykjavíkurborgar um byggingu nýrrar flugstöðvar við Reykjavíkurflugvöll, lokun norðaustur- suðvestur flugbrautarinnar og kaup borg- arinnar á hluta flugvallarlandsins hefur ekki áhrif á stöðu norður-suður flugbraut- arinnar í aðalskipulagi Reykjavíkur, að sögn Dags B. Eggertssonar, formanns borg- arráðs. Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 er greina kæmi að gera breytingu á að- alskipulagi Reykjavíkur hvað notkunartíma norður-suður flugbrautarinnar varðaði. „Drög að nýju aðalskipulagi 2010-2030 eru í vinnslu og þau verða kynnt í vor. Þetta hefur mikið verið til umræðu,“ sagði Dagur. Hann vildi ekki greina frá því hvaða hugmyndir væru uppi varðandi norður- suður flugbrautina í drögunum. Dagur kvaðst vona að nýtt aðalskipulag Reykjavík- ur yrði auglýst í vor og samþykkt í haust. Dagur sagði að með samkomulagi borg- arstjóra og innanríkisráðherra á dögunum væri verið að efna fyrirheit sem gefin voru árið 1999 þegar borgin féllst á lagningu nýs slitlags á flugbrautir Reykjavíkurflugvallar. „Þá var gengið út frá því að þriðja braut- in [norðaustur-suðvestur] legðist af og gefn- ar um það yfirlýsingar,“ sagði Dagur. Hann sagði að þáverandi samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, hefði tvívegis gefið út skriflegar yfirlýsingar sama efnis. Dagur sagði að í huga borgaryfirvalda hefði lengi verið ljóst að þessi flugbraut yrði lögð af og svæðið sem þá losnaði notað fyrir íbúða- byggð. Hefur ekki áhrif á norður-suður flugbrautina  Leyfi fyrir brautinni til 2016  Drög að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 kynnt í vor Dagur B. Eggertsson. Nærri tíu þúsund manns hafa flog- ið með flugfélag- inu Ernir til og frá Húsavík, þangað sem fé- lagið hóf reglu- lega áætl- unarflug fyrir réttu ári. Fyrstu mánuðina voru flognar sjö ferðir í viku en vegna mikillar eftirspurnar eru ferðir nú orðnar 10 í viku og er flogið alla daga vikunnar, nema laugardaga. „Gott samstarf er við fyrirtæki og stofnanir innan svæðisins sem styrk- ir mjög flugið, sem og að ferðaþjón- ustan er stór þáttur sérstaklega yfir sumarið,“ segir Ásgeir Örn Þor- steinsson, markaðsstjóri Ernis. Má búast við fjölgun farþega á þessu ári, að sögn Ásgeirs, og líklegt er að við ákveðnar aðstæður þurfi að fjölga ferðum vegna fjölda farþega. Hann segir mörg spennandi verk- efni í farvatninu viðvíkjandi flugið til Húsavíkur, sem er vinsæll áfanga- staður ferðamanna. sbs@mbl.is Tíu þúsund til Húsavíkur Ernisvél á Húsavíkurvelli. Dr. Þóranna Jónsdóttir hefur verið ráðin deild- arforseti við- skiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Hún tekur við starf- inu 1. maí. Frá- farandi forseti er dr. Friðrik Már Baldursson sem nú verður prófess- or við deildina. Sl. tvö ár hefur Þóranna starfað sem framkvæmdastjóri stjórnunar og rekstrar við HR, en hún er með víðtæka menntun í viðskiptafræð- um. Áður starfaði hún hjá Auði Capital og sem framkvæmdastjóri hjá Veritas- Vistor. Þóranna hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og er ferillinn fjölbreyttur. Þóranna ráðin deildarforseti Þóranna Jónsdóttir Samtök íbúa og hagsmunaaðila í Mýrdal harma þá ákvörðun um- hverfisráðherra að staðfesta að- alskipulag Mýrdalshrepps 2012- 2028 án þess að synja eða fresta þeim hluta er lýtur að breyttri legu þjóðvegar 1 um héraðið. Þetta kem- ur fram í tilkynningu. Samtökin segjast undrast að ráð- herra skuli þannig hunsa afgerandi vísindaleg og þjóðhagsleg rök sem færð hafa verið gegn færslu hring- vegarins. Harma ákvörðun umhverfisráðherra Vík Í hestaferð um Mýrdal. Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.