Morgunblaðið - 26.04.2013, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
Svarið við spurningu dagsins
HVAÐ ER Í MATINN?
Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is
Tilbúnir fiskréttir · Ferskur fiskur
Heitur matur í hádeginu · Veisluþjónusta
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
EVE Fanfest hófst í Hörpu á
fimmtudag og er hátíðin nú með
stærra sniði en nokkru sinni. Þar
koma saman unnendur íslenska
tölvuleiksins EVE Online til að gera
sér glaðan dag og njóta dagskrár
sem tileinkuð er
þessum vinsæla
leik.
„Hátt í tvö þús-
und erlendir gest-
ir koma á hátíðina
og rúmlega 80 er-
lendir blaðamenn.
Uppselt var á
EVE Fanfest fyr-
ir tveimur mán-
uðum og liggur
við að megi segja
að Harpa sé orðin of lítil fyrir okk-
ur,“ segir Eldar Ástþórsson, fjöl-
miðlafulltrúi tölvuleikjaframleiðand-
ans CCP.
Er þetta í 9. sinn sem hátíðin er
haldin og óvenjumikið um dýrðir því
spilarar fagna nú 10 ára afmæli EVE
online. Meðal dagskrárliða má nefna
veislur og leikjamót að ógleymdum
erindum fjölda fyrirlesara sem taka
fyrir fjölbreytileg málefni allt frá
tölvuleikjum til vísinda. Fjallað verð-
ur um ýmsar hliðar leiksins, efna-
hagslíf hans, átök og pólitík.
Ferðast um geiminn
Sérstakur dagskrárliður er helgaður
tækniframförum og geimvísindum
mannskyns. Þannig munu þrír leið-
andi vísindamenn á geimsviðinu
fjalla um geimlyftur, geimferðir á
hraða ljóssins og hvernig nýta má
auðlindir sem finna má á loftsteinum
eða öðrum plánetum sólkerfisins.
Einnig mun sýningarstjóri nútíma-
listasafnsins MoMA taka þátt í pall-
borðsumræðum um tölvuleiki sem
listform.
Árangur EVE online er ekki síst
merkilegur fyrir þær sakir að vin-
sældir leiksins hafa aðeins aukist
með tímanum og ekki útlit fyrir að
spilurum taki að fækka í bráð. „Í dag
erum við með rúmlega hálfa milljón
áskrifenda að leiknum og hefur fjölg-
að um liðlega 150.000 á um tveimur
árum,“ segir Eldar og bætir við að
þessi stöðuga fjölgun sé einstakt fyr-
irbæri í tölvuleikjaheiminum. Að 10
ára gamall tölvuleikur skuli enn eiga
stóran og ört stækkandi hóp aðdá-
enda er eitthvað sem töluleikjageir-
inn hefur ekki áður séð.
„Það hafa komið fram á sjón-
arsviðið fjölmargir leikir sem hafa
náð að sanka að sér fleiri spilurum en
EVE en yfirleitt lifa þeir leikir stutt
og eru horfnir af sjónarsviðinu eftir
nokkur ár. EVE hefur mikla sér-
stöðu að halda stöðugt áfram að
vaxa.“
Árangurinn hefur gert CCP að
miklu veldi. Hjá fyrirtækinu starfa
500 manns, þar af um 300 á Íslandi
en fyrirtækið er með skrifstofur í
Reykjavík, Sjanghæ, Atlanta, San
Francisco og Newcastle.
Ný sóknarfæri
En eins og bandaríska heilræðið seg-
ir þá er ekki skynsamlegt að geyma
öll eggin í einni körfu. Eftir því sem
rekstur CCP hefur styrkst hefur fyr-
irtækið tekið til við að þróa nýja leiki
sem ættu að efla starfsemina enn
frekar og skapa áhugaverð ný sókn-
artækifæri. Leikurinn DUST 514 er
væntanlegur á næstunni en und-
anfarið ár hefur leikurinn verið að-
gengilegur í þróunarútgáfu og forrit-
arar CCP hafa unnið hörðum
höndum að því að sníða af vankanta
sem áhugasamir prufuspilarar hafa
komið auga á.
Eldar er bjartsýnn á að leikurinn
fái góðar viðtökur þegar hann verður
fullkláraður enda viðbrögð til þessa
verið góðar. DUST 514 mætti lýsa
sem n.k. sprota út frá EVE og eru
ákveðnar tengingar á milli leikjanna.
DUST er hins vegar fyrstu persónu
skotleikur og fyrir PS3-leikjatölvur á
meðan EVE er geimskipaleikur fyrir
PC-tölvur.
Tekjumódelið verður ekki heldur
það sama. Spilarar EVE borga mán-
aðarlegt áskriftargjald á meðan
DUST verður ókeypis en spilarar
geta borgað aukalega fyrir tæki og
tól í leiknum til að gera upplifunina
skemmtilegri.
Þriðji leikurinn er síðan í þróun en
CCP eignaðist á sínum tíma réttinn
til að gera leik byggðan á sagnaheimi
World of Darkness hlutverka-
leiksins. Er sá leikur enn á þróun-
arstigi og fer vinna við World of
Darkness-leikinn fram í útibúi CCP í
Atlanta.
Fagna 10 ára afmæli EVE
Eldar
Ástþórsson
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Veisla Langt er síðan uppselt var á hátíðina í Hörpu. Spilarar EVE eru samheldinn hópur og uppátækjasamur. Um 2.000 gestir koma á hátíðina.
Húsfyllir í Hörpu og gestir koma frá öllum heimshornum Styttist í að DUST 514 verði fullklár-
aður og má reikna með góðum viðtökum CCP orðið mikið veldi með 500 starfsmenn víða um heim
Hagnaður mótorhjólaframleiðand-
ans Harley-Davidson jókst um
30% á fyrsta fjórðungi ársins.
Þessi góði árangur er einkum rak-
inn til minnkandi kostnaðar við
endurskipulagningu rekstrarins
samhliða auknum tekjum og vexti í
sölu.
Undanfarin ár hefur mikil upp-
stokkun átt sér stað hjá Harley-
Davidson en betrumbætur á
stærstu verksmiðju fyrirtækisins
urðu nýlega til þess að trufla
framleiðslu og hægja á sölu. Um-
bætur á rekstrinum hófust árið
2009 og reiknar fyrirtækið með að
endurskipulagningin skili 305
milljóna dala sparnaði í ár. Árið
2014 ætti hagræðingin að skila ár-
lega um 320 milljóna dala sparnaði
Hagnaður Harley-Davidson á
ársfjórðunginum var 224,1 milljón
dala eða 99 sent á hlut. Tekjur
jukust um 11% milli tímabila og
námu samtals 1,41 milljarði dala.
Á öðrum fjórðungi ársins reiknar
Harley-Davidson með að selja 80-
85.000 mótorhjól sem er svipaður
fjöldi og á sama tímabili í fyrra.
Höfðu hlutir í Harley-Davidson
hækkað um rösklega 3,5% á mið-
vikudag. ai@mbl.is
AFP
Ferlíki Aðdáendur Harley-Davidson efndu nýlega til hópreiðar í Katar.
Horfur eru góðar hjá fyrirtækinu og útlit fyrir góða sölu á næstunni.
Góður fjórðungur
hjá Harley-Davidson
Uppstokkun skilar góðum árangri