Morgunblaðið - 26.04.2013, Qupperneq 33
MINNINGAR 33Kosningar 2013
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
Fyrir síðustu kosningar vantaði ekki stóru
orðin hjá þeim flokkum sem síðan mynduðu
ríkisstjórn. Skjaldborg um heimilin. Norræn
velferðarstjórn átti að skapa hér lífskjör sem
best þekkjast. Byggja átti upp öflugt atvinnu-
líf. Sannleikurinn er að meiri vandræðagang-
ur, sundurlyndi og trúnaðarbrestir ríktu inn-
an stjórnarliðsins, nánast frá fyrsta degi, svo
aldrei hefur annað eins þekkst. Svo var mikið
talað um betri verkstjórn. Dæmi hver fyrir
sig hvernig til tókst.
Stórslys í uppsiglingu
Árangurinn varð líka hörmulegur. Atvinnuleysi hefur
allt tímabilið verið mikið og er enn. Eitt besta heilbrigð-
iskerfi í heimi sem hér var, stendur nú á brauðfótum.
Stórslys er í uppsiglingu ef þessari þróun verður ekki
snúið við. Skattafargan hefur verið lagt á þjóðina með
þvílíkum þunga að allt er að sligast, á það jafnt við um at-
vinnuvegina sem launþega. Öryrkjar og eldri borgarar
hafa verið hýrudregnir svo skömm er að. Stöðugleika-
samningur var gerður við Alþýðusambandið og Samtök
atvinnulífsins. Hann var svikinn að flestu leyti og endaði
með því að ASÍ gafst upp og sagði sig frá öllum samn-
ingum við ríkisstjórnina. Dæmalaus atlaga var gerð að
fyrrverandi forsætisráðherra og hann dreginn fyrir
landsdóm. En þá höfðu fleiri flokkar bæst við hópinn.
Varla fríkkaði ákærendahópurinn við það. Þar var reitt
hátt til höggs – en höggið geigaði. Og nú fyrir þessar
kosningar er lofað og það stórt. En nú eru það ekki
stjórnarflokkarnir sem lofa, þeir gera sér grein fyrir því
að á þá hlustar enginn og þeir hafa ekkert að bjóða, eng-
ar lausnir.
Loforð sem ekki verður efnt
Nú er það Framsóknarflokkurinn. Ég tel að í gegnum
tíðina hafi Framsóknarflokkurinn verið ábyrgur stjórn-
málaflokkur sem oft hefur lagt gott til málanna. Hann
hefur reynst traustur í stjórnarsamstarfi og komið
mörgu góðu til leiðar. Það hefur þó viljað brenna við að
flokkurinn hafi tekist á loft í loforðaflaumi fyrir kosn-
ingar. Allir sem aldur hafa til muna loforðið:
Eiturlyfjalaust Ísland árið 2000. Varla þarf að
minnast á 90% leiðina sem Framsókn inn-
leiddi. Sú leið leiddi meðal annars af sér þá
óheillaþróun sem við glímum við í dag. Og nú
svífur flokkurinn með himinskautum og lýsir
yfir því að hann hafi kjark til að standa með
heimilunum í landinu. Þvílíkur kjarkur! Hafa
ekki allir flokkar það sem aðalmarkmið? Auð-
vitað er það svo.
Leiðirnar sem framboðin vilja fara eru
hinsvegar mjög misvel útfærðar og oft órar
einir. Að Framsóknarflokkurinn skuli falla í
þá gryfju og reyna hreint og beint að blekkja
kjósendur með því kosningaloforði sem hann setur fram.
Þessi loforð eru beinlínis skaðleg heimilunum sem á að
bjarga og veldur það miklum vonbrigðum að slíkt skuli
koma frá þessum flokki. Hver getur lofað peningum sem
aðrir eiga? Jafnvel þótt líklegt sé að eitthvað fáist út úr
sjóðnum, þá veit enginn hversu mikið eða hvenær það
verður. Þess vegna er óforskammað að bjóða kjósendum
upp á slíka lausn og sýnir í senn kjarkleysi og óvönduð
vinnubrögð.
Framsóknarflokkurinn hefur mörgu ágætu fólki á að
skipa, þeim mun meiri vonbrigði eru það að flokkurinn
skuli falla svona á prófinu. Munið svo framsóknarmenn
að vinur er sá er til vamms segir. Að mínu mati hefur
Sjálfstæðisflokkurinn, einn flokka, boðið upp á raunhæfa
lausn til handa heimilum í vanda. Það er að efla atvinnu
og lækka skatta á fyrirtæki og fólkið í landinu.
Á þann hátt aukast ráðstöfunartekjur og þjóðfélagið
lifnar við að nýju. Skattafsláttur sem greiðist inn á höf-
uðstól húsnæðislána og lækkar hann um allt að 20% á
fjórum árum er góð leið. Að geta skilað lykli og forðast
þannig gjaldþrot er leið fyrir þá sem standa frammi fyrir
slíkri stöðu.
Að lokum: Kynnið ykkur vel þessi stefnumál. Í mínum
huga er enginn vafi á hvað gera skal á kjördag. Kjósum
x-D.
Loforðin eru skaðleg
heimilum í landinu
Eftir Guðna Stefánsson
Guðni Stefánsson
Höfundur er stálvirkjameistari og fyrrv. bæjarfulltrúi í
Kópavogi.
Fylgi Framsóknarflokksins samkvæmt
skoðanakönnunum hefur óneitanlega vakið
nokkra athygli og umræðu nú síðustu vik-
urnar. Flokkurinn hefur markað sér skýra
stefnu á miðju stjórnmálanna, hafnar öfgum
frá hægri svo sem frjálshyggjunni sem átti öll
heimsins vandamál að leysa, en setti að lok-
um hið kapítalíska hagkerfi í þrot eða vinstri
með síaukinni miðstýringu og ríkisafskiptum.
Þessar hreyfingar á fylgi milli flokka sýna að
kjósendur eru núna að leita að nýrri nálgun á
stjórnmálin þar sem leitað er bestu lausna hverju sinni
án þess að vera bundin á klafa hægri eða vinstri. Stefna
Framsóknarflokksins snýst fyrst og fremst um réttsýni,
sanngirni og rökhyggju þar sem leitað er bestu lausna
hverju sinni fyrir land og þjóð.
Eins og flest önnur vestræn samfélög hefur Ísland náð
að skapa velmegun á síðustu áratugum sem varla á sér
hliðstæðu í sögunni. Við erum þeirrar gæfu aðnjótandi
að búa í landi ofgnóttar af öllum þeim helstu lífsgæðum
sem allar þjóðir heims vilja hafa. Má þar nefna gríð-
arlega orku bæði í fallvötnum og jarðvarma, mikið land-
rými bæði til búsetu og matvælaframleiðslu, auðug fiski-
mið, hreint vatn til neyslu og hreint og heilnæmt loft,
meðan við mengum það ekki sjálf. Þessi mikla velmegun
hefur hins vegar ekki leitt af sér aukinn félagslegan jöfn-
uð heldur fremur misræmi milli hópa, þar sem hópur fá-
tækra fer sífellt stækkandi og ungt fólk er njörvað í viðj-
um verðtryggðra skulda. Við verðum að forðast það að
samfélag allsnægtanna fari að taka á sig mynd af sam-
félagi skortsins. Við höfum stofnað til skulda erlendis
sem takmarka athafnafrelsi okkar og atvinnuleysi hefur
haldið innreið sína sem áður var óþekkt og tapast hafa
tugir þúsunda starfa.
Þau tvö ríkjandi hugmyndakerfi, sem vinstrimenn og
hægrimenn taka gjarnan mið af eru í kjarna sínum efna-
hagslegar þróunarkenningar, mótuð á átjándu og
nítjándu öld.
Það er nauðsyn á nýrri hugmyndafræði,
uppreisn frá miðju stjórnmálanna, uppgjöri
við stirðnaða afstöðu og gamaldags og úreltar
kenningar. Það þarf að aðlaga hugmynda-
fræðina nútímasamfélögum og stjórn-
arháttum.
Miðjufylgið hefur verið dreift á flesta hina
hefðbundnu stjórnmálaflokka hér á landi,
einkum sökum þess að það hefur ekki talið sig
hafa skýran valkost. Nú hefur hins vegar orð-
ið breyting á þar sem Framsóknarflokkurinn
hefur markað sér skýra stefnu á miðju ís-
lenskra stjórnmála og tekur afstöðu til mála út frá skyn-
semi, sanngirni og rökhyggju og er óbundinn hug-
myndafræði til hægri eða vinstri. Það hefur mátt greina
á skoðanakönnunum að fylgi hefur verið að streyma frá
bæði stjórnarflokkunum og Sjálfstæðisflokknum til
Framsóknarflokksins eða inn á miðjuna. Þetta er ekki
hægt að túlka á annan veg en ákall kjósenda um miðju-
stjórn, en hún getur aðeins orðið undir stjórn Framsókn-
arflokksins. Hættan er sú að öfl til hægri og vinstri muni
gera allt sem í þeirra valdi stendur til að reyna að koma í
veg fyrir að svo geti orðið. Það má merkja á ýmsum
dylgjum, rógburði og lygum sem þessir aðilar eru að
dreifa út núna síðustu dagana, bæði um málefni flokksins
og helstu forustumenn hans. Framsóknarmenn munu
aldrei láta draga sig niður á það plan, heldur svara mál-
efnalega og með rökum. Til að kjósendur fái að sjá ein-
hverjar breytingar að loknum kosningum er eina vonin
að Framsóknarflokkurinn komi sterkur út og verði for-
ystuafl í íslenskum stjórnmálum, svo glatist ekki þau
tækifæri sem eru í pípunum. Að öðrum kosti er eins víst
að hægri og vinstri myndi stjórn þar sem slegin verður
skjaldborg um verðtrygginguna og umsátrið um heimilin
heldur áfram.
Uppreisn frá miðju
Eftir Einar Baldursson
Höfundur er kennari.
Einar Baldursson
Margir eru hissa,
flokksmenn sem aðrir,
á þeim vinnubrögðum
sem verið hafa í gangi
og það til langs tíma
gegn formanni Sjálf-
stæðisflokksins.
Svo er að sjá og
heyra að svipað áhlaup
sé komið í gang gegn
formanni Framsókn-
arflokksins vegna þess að hann og
hans fólk hefur hlustað á ákall
fólksins í landinu um nauðsynlega
niðurfærslu stökkbreyttra lána og
flokkurinn fengið fylgisaukningu
vegna þessa.
Formenn flokka sem og aðrir
stjórnmálamenn hljóta að eiga rétt
á að njóta sannmælis, bæði hjá
samflokksfólki sem öðrum.
Að sjálfsögðu gildir það sama um
aðra þegna þessa lands. Almennt
vilja frambjóðendur ekki né kjós-
endur ódrengilega kosningabaráttu
og við það eigum við að halda okk-
ur. Slík vinnubrögð missa bara
marks þegar upp er staðið. Síðan
koma til hinir ýmsu spekingar sem
telja sig vera talsmenn vissra
flokka, en skipta um skoðun nánast
við hvert götuhorn á forystufólki
flokkanna þ.e. eftir því hvernig
vindar blása og fréttir berast af
fylgi þeirra hverju sinni.
Við því er í sjálfu sér ekkert
hægt að gera ef slíkum vindhana-
hætti fylgir ekki loddaraháttur og
ódrengileg vinnubrögð sem því mið-
ur vill gerast við slíkar aðstæður.
Eftir því sem ég best veit þá hef-
ur Sjálfstæðisflokkurinn verið með
allt upp í 37-39 prósent fylgi í skoð-
anakönnunum og jafnvel meira
undir forystu núverandi formanns
og þá var hann talinn góður for-
ystumaður til allra verka af við-
komandi aðilum. Jafnframt er
nýbúið að staðfesta enn á ný endur-
kjör formannsins með
glæsilegri kosningu.
Flokksmenn verða að
virða niðurstöðu kosninga
hvort sem þær eru innan
flokksins eða á öðrum
vettvangi, þannig virkar
lýðræðið.
Ljóst er að nefnd aðför
hefur dregið úr fylgi
Sjálfstæðisflokksins á
undanförnum vikum.
Breyting hefur reyndar
orðið þar á eftir að for-
maðurinn úttalaði sig um starfsum-
hverfi sitt og fleira í sjónvarps-
viðtali fyrir skömmu. Á næstu
dögum taka landsmenn ákvörðun
um fylgi flokka til Alþingis.
Ljóst er að kallað er eftir sterkri
ríkisstjórn á næsta kjörtímabili þ.e.
kappsfullum frambjóðendum til
hinna ýmsu verka/mála sem kjós-
endur leggja áherslu á. Jafnframt
er kallað eftir því að stjórn-
málamenn veiti hinum almenna
kjósanda meiri áheyrn en verið hef-
ur, ekki bara þeim sem betur mega
sín.
Núverandi efnahagsástand sem
er til komið að stórum hluta vegna
aðfarar sem gerð var að þjóðfélag-
inu þarfnast helst samstarfs allra
flokka á komandi kjörtímabili þ.e.
til að leysa úr þeim mikla vanda
sem við er að fást í okkar efnahags-
umhverfi. Þar dugar ekki til þjark
og þras sem engu skilar, heldur góð
samvinna og að hagur vissra hags-
munahópa verði ekki eingöngu
hafður að leiðarljósi, heldur þjóð-
félagsins í heild. Þannig vill þjóðin
að þingmenn starfi og eftir því
munu landsmenn kalla á komandi
kjörtímabili, þ.e. ný vinnubrögð og
traust almennt í stjórnmálin. Með
því mun hagur okkar allra verða
mun betri á komandi árum.
Aðför í kosningabar-
áttu og ákall kjósenda
Eftir Ómar G.
Jónsson
Ómar G. Jónsson
Höfundur er fulltrúi og talsmaður
sjálfstæða framfarahópsins fyrir
betra/bætt stjórnmálaumhverfi.
Það er kunnara en
frá þurfi að segja að
framfarir í fjarskiptum
og flutningum hafa
opnað nýja möguleika
til þess að vinna ýmiss
konar störf, óháð stað-
setningu. Fólk getur
nú tekið með sér störf-
in hvert á land sem er.
Að mínu áliti hljóta
þessar framfarir að
efla byggð úti á landi ef rétt er að
málum staðið og opinber stefnu-
mörkun snýr sér að því að opna
möguleika fremur en loka þeim.
Staðreyndin er sú að með einföld-
um og smáum aðgerðum má styðja
við atvinnusköpun á landsbyggð-
inni í stað þess að einblína á hinar
„stóru“ lausnir í atvinnumálum.
Hér gildir hið fornkveðna að
margt smátt gerir eitt stórt.
Það er hugmyndafræði hinna
mörgu smáu verka sem er hinn
málefnalegi hornsteinn Regnbog-
ans. Aukinheldur að þeir sem búa
á ákveðnum stað geti notið þeirra
auðlinda sem þar er að finna og
nýtt með sjálfbærum hætti. Landið
er ríkt ef við bara fáum að njóta
þess. Það er þessi hugmyndafræði
sem við frambjóðendur Regnbog-
ans leggjum fram í þessum kosn-
ingum. Hér eru engin innantóm
loforð. Stjórnmál krefjast oft
samninga af ýmsu tagi, svo ná
megi málamiðlunum, en þó má
ekki ganga of langt. Oddviti listans
hér í Norðvesturkjördæmi, Jón
Bjarnason, hefur sýnt
það og sannað í ESB-
málinu að hann svíkur
ekki þau grundvall-
arstefnumál sem kjós-
endur hans kjósa hann
fyrir.
Ég gæti einnig bætt
því við að ef hægt væri
að nefna einn merkisbera
fyrir þessa hug-
myndafræði margra
smárra verka væri það
Jón Bjarnason sem fylgt
hefur þessari stefnu í
verki sem bæði þingmaður og ráð-
herra. Með þetta í huga lagði Jón
Bjarnason fram frumvarpið um
strandveiðar á sinum tíma, sem
loksins opnaði leið fyrir einyrkja
að stunda veiðar á handfærum á
smábátum, án kvóta. Hann jók svo
við frumvarpið og gaf mörgum
tækifæri á að skapa sér atvinnu,
hverjum á sínum stað. Hann hefur
einnig lagt sérstaka áherslu á að
styðja við ýmis framfaraverkefni á
landsbyggðinni, sem kunna að sýn-
ast smá og lítilsigld í augum fólks
á höfuðborgarsvæðinu en skipta þó
höfuðmáli fyrir marga staði á
landsbyggðinni. Hér mætti nefna
aðgerðir ásamt fleira góðu fólki til
þess að koma aftur á flugi til
Sauðárkróks, að hefja sjóflutninga
til hagsbóta fyrir sjávarbyggðirnar
og svo mætti lengi áfram telja.
Þetta sjónarhorn þurfum við
áfram á þingi og þess vegna biðj-
um við um stuðning þinn.
Hugmyndafræði
margra smárra verka
Eftir Arnþrúði
Heimisdóttur
Arnþrúður
Heimisdóttir
Höfundur er í 2. sæti á lista Regnbog-
ans í Norðvesturkjördæmi.