Morgunblaðið - 26.04.2013, Qupperneq 40
40 MINNINGAR
Afmæli
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
Gisting
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri
orlofshús við Akureyri og öll með
heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir hópa. Líka
fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið. Sími: 486 1500.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Hljóðfæri
Þjóðlagagítarpakki:
kr. 23.900. Gítar, poki, ól, auka-
strengir, stilliflauta og kennslu-
forrit.
Gítarinn ehf., Stórhöfða 27,
s. 552 2125.
www.gitarinn.is,
gitarinn@gitarinn.is
Sumarhús
Vönduð sumarhús 55 fm, 65 fm og
78 fm. Viðbyggingar og pallasmíði.
Húsogparket@gmail.com
Upplýsingar í síma 893 0422.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar
verslun í Hagkaup Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði.
Blekhylki.is, sími 517-0150.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Silki og ull
Pasminu treflar
úr silki og ull. Margir litir
Verð kr. 2.990,-
Skarthúsið,
Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Byssur
30% af öllum skotveiðivörum og
skotfærum
T.d. .22 LR Standard 50skota pakkn-
ing á aðeins kr. 483 pk. Caldwell
tvífótur á kr. 8.330. ATH. Takmarkað
magn á flestu. Tactical.is
verslunarmiðstöðinni Glæsibæ.
SJÓFUGLASKOT
ISLANDIA 36 gr. sjófuglaskot.
Toppgæði, botnverð. Dreifing:
Sportvörugerðin, s. 660 8383.
www.sportveidi.is
Bílar
Galloper TCI, árgerð 1998. Ekinn
233 þús. km. Upphækkaður í 33”,
rafmagn í rúðum, skráður 7 manna,
samlæsingar, geislaspilari, ABS,
álfelgur og dráttarbeisli. Toppur með
boxi (tengdamömmu). Ath. skipti.
Verð 290 þús.
Upplýsingar í síma 893 7065 og
567 0333.
Vörubílar
MAN til sölu
MAN 35 - 430 árg. des. 2004. Ekinn
148 þús. km. Kojuhús. Sjálfskiptur.
Stell með loftpúðum. Dráttarkrókur.
Rafdrifið segl. Smurstöð. Burðargeta
19.750 kg. 25 tonn frá verksmiðju.
Ásett verð 7,2 millj. + vsk. Ekkert
áhvílandi. Athuga skipti á nýlegum
fólksbíl. Einn eigandi. Mjög góður
bíll. Sími 893 7065.
Bílaþjónusta
Mössun og söluþrif
Tökum að okkur mössun og
söluþrif á bílum.
Bónstöðin, sími: 894-7736.
Hjólbarðar
Blacklion sumardekk
Treadwear 420 Traction A Tempera-
ture A
175/65 R 14 kr. 10.800
195/65 R 15 kr. 14.900
205/55 R 16 kr. 16.800
Kaldasel ehf. Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 5444333.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
laga ryð á þöku,
hreinsa veggjakrot
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Hreinsa þakrennur
laga ryð á þöku,
hreinsa veggjakrot
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Bátar
Þessi glæsilegi harðbotna
gúmmíbátur er til sölu
Lengd 5,10, árg. 2010. Nýr mótor 90
ha., ganghr. 35 míl. Verð 2,9 m. Nán-
ari uppl. í s. 893 4165 og 771 4165.
Smáauglýsingar
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
30% AFSLÁTTUR
Vandaðir dömuskór úr leðri, skinn-
fóðraðir, nokkrar gerðir, stakar stærðir.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Saumavélar- saumavélaviðgerðir
Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali.
Viðgerðir á flestum gerðum sauma-
véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is
eða hringdu í s. 892 3567 eftir
hádegi alla daga.
Bændahöfðing-
inn Eggert Hauk-
dal, fyrrum alþing-
ismaður og oddviti
Vestur-Landeyja-
hrepps, fæddist 26.
apríl 1933 í Flatey
á Breiðafirði, þar
sem foreldrar
hans, sr. Sigurður
Haukdal og Bene-
dikta Eggertsdótt-
ir, voru prestshjón.
Sr. Sigurður var sonur Sig-
urðar alþingismanns Árnesinga
og ráðunautar í Reykjavík Sig-
urðssonar, og konu hans,
Bjargar Þorvaldínu Guðmunds-
dóttur, bónda í Höll í Haukadal
í Dýrafirði, Eggertssonar.
Foreldrar frú Benediktu
voru Eggert bóndi, hreppstjóri
og alþingismaður Árnesinga, í
Laugardælum Benediktsson,
og kona hans, Guðrún Sólveig
Bjarnadóttir, prests í Stafafelli
í Lóni Sveinssonar.
Þau prestshjónin áttu heima
í „Klausturhólum“ í Flatey,
húsi, sem síra Sigurður Jens-
son, bróðursonur Jóns forseta,
byggði.
Fyrstu 12 æviárin ólst Egg-
ert upp í Flatey.
Vorið 1945 voru föður hans
veitt Landeyjaþing. Fluttist
fjölskyldan suður og sat síra
Sigurður á Bergþórshvoli. Þar
stundaði Eggert á unglingsár-
um almenn sveitastörf.
Þau Benedikta og síra Sig-
urður voru sæmdarhjón; hún
myndarleg húsfreyja, hann ást-
Eggert Haukdal
sæll prestur, er
átti alla tíð fylgi
sóknarbarna og
starfsbræðra að
fagna.
Eggert var í
sveit á Miðhúsum í
Reykhólasveit,
þegar hann var
drengur, hjá Jóni
Daðasyni og Ingi-
björgu Þorgeirs-
dóttur.
Búfræðiprófi frá Hvanneyri
lauk hann 1953. Tveimur árum
síðar hófu þeir feðgar að reka
félagsbú á Bergþórshvoli, en
þegar síra Sigurður lét af emb-
ætti tók Eggert við og rak af
myndarskap, þangað til fyrir
fáum árum. 1973 reisti Eggert
íbúðarhús á Bergþórshvoli; það
er kallað fallegast einbýlishús í
sveit á Íslandi.
Eggert var þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurlands-
kjördæmi frá 1978 til 1995. Ár-
ið 1979 náði hann kosningu til
Alþingis á sérlista. Hann sat í
kjördæmisráði og flokksráði
lengi og var formaður Sjálf-
stæðisfélags Rangæinga; for-
maður Búnaðarfélags Vestur-
Landeyja, í hreppsnefnd og
oddviti frá 1970, sýslunefndar-
maður og í stjórn Kaupfélags-
ins Þórs á Hellu um árabil; for-
maður Framkvæmdastofnunar
ríkisins, og er fátt eitt talið.
Sambýliskona Eggerts er
Guðrún Bogadóttir, Eggerts-
sonar í Laugardælum og konu
hans, Hólmfríðar Guðmunds-
dóttur, bónda á Læk í Flóa,
Snorrasonar.
Margir telja, að ein höfuð-
meinsemd peningakerfisins á
Íslandi sé verðtryggingin, valdi
okurverði á lánum. Eggert var
óþreytandi að benda á þetta.
Átta sinnum flutti hann frum-
varp um afnám verðtryggingar,
en án árangurs.
Þingtímann var Eggert til
húsa í Vonarstræti 12 og naut
aðstoðar ritaranna Ingibjargar
Eyþórsdóttur og Margrétar
Óskar Árnadóttur.
Afmælisbarnið minnist
ánægjulegra áfanga á starfs-
ferlinum, lagningar bundins
slitlags í hreppnum, byggingar
Njálsbúðar og leiðslu vatns-
veitu.
Eggert er glaðhittinn, fróð-
leiksfús, veitull og viðræðugóð-
ur. Ég hef oft notið gestrisni
hans og Guðrúnar, ásamt með
konu minni, og hrifist af áhuga
hans á mönnum og málefnum –
og því hve vel hann hlustar á
tal annarra.
Eggert heldur sér vel og
þótt hann sé orðinn nokkuð
fótfúinn er baráttuþrekið óbug-
að.
Guðrún Bogadóttir hefur
reynst manni sínum vel. Engu
óblindu auga, sem kom á heim-
ili þeirra í Teigaselinu, varð lit-
ið svo á ástæður þar, að ekki
sæi, hve ágætlega fór um hann.
Frá því í mars hefur Eggert
dvalið á DAS í Reykjavík.
Þakklæti og blessunaróskum
til þeirra Guðrúnar fylgja vin-
akveðjur frá okkur hér á Sel-
fossi.
Sr. Gunnar Björnsson.
Engin orð fá lýst
hversu sárt er að
kveðja svo yndis-
lega manneskju
eins og Lovísu
Hrund og alltof
snemma.
Hún var einstök, svo vel gerð,
gaf mikið af sér af ást og um-
hyggju, hugulsöm, einlæg og
einstaklega ljúf persónugerð.
Mikið eigum við eftir að sakna
að sjá hana með breiða brosið,
geislandi útlit og finna fyrir
hlýju nærveru hennar.
Stelpurnar okkar sakna mikið
skemmtilegu frænkunnar sem
alltaf var svo góð við þær, alltaf
til í að leika, spjalla, fíflast og
knúsa.
Lovísa Hrund
Svavarsdóttir
✝ Lovísa Hrund Svavarsdóttirfæddist á Akranesi 5. októ-
ber 1995. Hún lést
6. apríl 2013.
Útför Lovísu
Hrundar fór fram
frá Akraneskirkju
16. apríl 2013.
Við fáum aldrei skilið hvers
vegna og læra að lifa með þeim
nýstandi sársauka
sem aldrei grær
verður erfiður og
langur lærdómur.
Á svona stundu
erum við þakklát
fyrir að hafa fengið
að kynnast Lovísu
Hrund, hún hefur
skilið eftir sig svo
mikið á fáum árum.
Við erum sérstak-
lega þakklát fyrir
síðustu stund okkar saman, sem
var á einum af stærsta degi í lífi
okkar, brúðkaupinu. Það er okk-
ur ómetanlegt og dýrmæt minn-
ing.
Við munum lengi vel ræða og
ávallt muna eftir frænkunni sem
kunni að elska skilyrðislaust,
sem var góð við stóra sem smáa,
ávallt boðin og búin að rétta
fram höndina til aðstoðar, faðm-
aði umhverfið og yljaði með
nærveru sinni og kunni vel að
meta og sýna í verki öllum þeim
sem hún átti að. Lovísa var góð
fyrirmynd fyrir alla.
Nú hvílir elsku hjartans
Lovísa hjá ömmu og það eitt er
huggun í sjálfu sér að nú hefur
hún fengið gott ömmuknús.
Við kveðjum hana Lovísu okk-
ar með sárum söknuði en minn-
umst hennar um aldur og ævi.
Megið þið Hrönn, Svavar,
Engilbert, Ásgeir, Heiður, Kar-
en, Ryan, Úlfur, Óli, Almar og
Eva Hrönn öðlast allan þann
styrk sem hægt er til að halda
áfram.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist endur-
gjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Rakel frænka, Sigurbjörn,
Emilía og Eyrún litlu
frænkur.
HINSTA KVEÐJA
Lovísa sem gleði gaf
og glaðlegt brosið bjarta,
er nú farin foldu af,
finn ég sorg í hjarta.
Því sendi ég henni hjartans óð.
Mín hinsta kveðja er,
að hún sem var svo blíð og góð
búi í hjarta mér.
(Ásta Svendsen.)
Hugi Ómarsson.
Það er svo skrítið
að þú sért farinn til guðs og að
ég eigi ekki eftir að sjá þig aftur,
elsku afi. Það var alltaf svo gam-
an að fá þig í afmælið mitt, gam-
an að kíkja í heimsókn til þín og
ömmu, gaman að spjalla við þig
og svo var gaman þegar við
Bjarni Ólafsson
✝ Bjarni Ólafssonfæddist í
Reykjavík 8. febr-
úar 1933. Hann lést
á Landspítalanum,
Landakoti, 4. apríl
2013.
Útför Bjarna fór
fram frá Lang-
holtskirkju 12. apr-
íl 2013.
brölluðum eitthvað
saman. Mamma
segir að þú sért
engill á himnum
núna sem passar
okkur.
Dvel ég í draumahöll
og dagana lofa.
Litlar mýs um löndin
öll
liggja nú og sofa.
Sígur ró á djúp og dal,
dýr til hvílu ganga.
Einnig sofna skolli skal
með skottið undir vanga.
Við söknum þín, þínar
langafastelpur,
Guðný Helga og Ingibjörg
Agnes.