Morgunblaðið - 26.04.2013, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
Gígja Hjaltadóttir talar enn með norðlenskum hreim þó að húnsé fyrir löngu kominn í bæinn. „Ég fann mig strax hér fyrirsunnan. Fannst líka munur þegar systir mín flutti suður ekki
löngu síðar,“ segir Gígja sem er 36 ára í dag. Hún er fædd á Húsavík
þar sem hún ólst upp til sjö ára aldurs. Flutti þá með sínu fólki til
Akureyrar þar sem hún ól manninn fram yfir tvítugt. Kom svo suð-
ur árið 2006.
Eins og gengur og gerist hefur Gígja sinnt ýmsum störfum um
dagana og var fangavörður frá 1999 til 2010, fyrst á Akureyri og
síðar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. „Þetta voru ellefu lær-
dómsrík ár og starfið fékk mann oft til að velta fyrir sér hve ólík ör-
lög mannfólksins í raun væru. Já, einhverjar fréttir fær maður
stundum af fyrrverandi föngum og það ánægjulega er að margir
virðast komnir á beina braut í lífinu, þó að öðrum vegni því miður
ekki jafn vel,“ segir Gígja, sem í dag starfar hjá Þjóðskrá Íslands við
skráningu fólks sem hingað flytur frá löndum innan EFTA og EES.
„Þetta er nú ekki tímamótaafmæli en þó ætla ég að leyfa mér að
vera í fríi í dag og gera eitthvað skemmtilegt. Fara kannski í bæinn
og einnig þarf ég að undirbúa boð hér heima, í tilefni þess að ég er
komin í nýja íbúð hér í efri byggðum Kópavogs,“ segir Gígja Hjalta-
dóttir að síðustu. sbs@mbl.is
Gígja Hjaltadóttir er 36 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Norðanstúlka Ekki tímamótaafmæli en þó ætla ég að leyfa mér að
vera í fríi og gera eitthvað skemmtilegt, segir Gígja Hjaltadóttir.
Fangavörður en
skráir nú þjóðina
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjanesbæ Steindís Erla fæddist 7.
júní kl. 1.18. Hún vó 3.290 g og var 49
cm löng. Foreldrar hennar eru Bylgja
Dís Erlingsdóttir og Brynjar Steinn
Jónsson.
Nýir borgarar
Reykjanesbær Lovísa Rut fæddist 11.
júní. Hún vó 4.375g og var 53 cm löng.
Foreldrar hennar eru Lóa Rut Reyn-
isdóttir og Ágúst Þór Guðmundsson.
E
ggert fæddist í Flatey
á Breiðafirði og ólst
þar upp til tólf ára
aldurs meðan faðir
hans var þar prestur
og prófastur, en síðan á Bergþórs-
hvoli í Landeyjahreppi er fjöl-
skyldan flutti þangað.
Eggert lauk búfræðiprófi frá
Bæandaskólanum að Hvanneyri
1953. Hann hóf búskap að Berg-
þórshvoli 1955, fyrst í félagsbúi með
föður sínum til 1973, en tók þá al-
farið við búinu og stundaði þar bú-
skap síðan.
Eggert er nú hættur búskap og
fluttur til Reykjavíkur að hluta til
en hefur þó enn lögheimili að Berg-
þórshvoli. Eggert var alþing-
ismaður Suðurlandskjördæmis fyrir
Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1978-
95 en bauð sig fram utan flokka árið
1979.
Eggert Haukdal, fyrrv. alþingismaður - 80 ára
Morgunblaðið/RAX
Stjórnmálakempa Eggert Haukdal með málverk í bakgrunni sem minnir á storma stjórnmálanna fyrr á árum.
Stjórnmálamaðurinn
frá Bergþórshvoli
Í sviðsljósinu Fréttamenn ræða við Eggert um sögufræga stjórnarmyndun
Gunnars Thoroddsen í ársbyrjun 1980.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Orkuskot sem virkar strax!
Lífrænt grænmetisduft fyrir alla
Heilbrigð orka úr lífrænni næringu
og fullt af andoxunarefnum
Eykur vellíðan, skerpir hugsun, heilbrigði og frísklegt útlit.
Börn, unglingar og fullorðnir finna mun á orku og úthaldi -
Fyrir íþróttaæfingar, skólann og vinnuna
Gefur góða líðan og dregur úr sælgætislöngun
Blóðsykursjöfnun úr grænmeti er æskilegust fyrir alla.
Kjörið fyrir sykursjúka.
Meðmæli næringafræðinga - 100% náttúrleg uppspretta
Brokkál Spínat Rauðrófur
Salatkál – Gulrætur – Steinselja
lífræn bætiefni fyrir allaFæst í: Lifandi markaður, Lyfjaveri, Krónunni og Hagkaup
Ekkert erfðabreytt – Ekkert skordýraeitur – Engar geymslugeislanir
Engin aukaefni, litar- eða bragðefni.