Morgunblaðið - 26.04.2013, Page 44

Morgunblaðið - 26.04.2013, Page 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gefðu þér tíma til að bæta vinnu- venjur þínar og gefðu þér tíma til að rækta líkama og sál því allt veltur á jafnvægi þar í milli. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt auðvelt með takast á við verk- efni sem krefjast einbeitingar í dag. Vertu bjartsýnn leiðtogi og hafðu gagnrýnanda með í för. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú leitar lausnar á vandamáli en finnur hana ekki því þú ert of ákafur. Reyndu að sýna sjálfri/sjálfum þér mildi. Það má koma miklu í verk þegar samstarfið gengur snurðulaust. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Um sinn skaltu varast að beina at- hyglinni að þér, nema þú sért með það á tæru hvernig þú ætlar að taka á hlutunum. Reyndu að forðast sjálfsvorkunn og óraun- hæfar kröfur til annarra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Leyfðu sköpunargáfu þinni að fá útrás og vertu hvergi hræddur við að sýna þínum nánustu afraksturinn. Brettu upp ermarnar og breyttu hlutunum þér í hag. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Eitthvað vill ekki ganga upp hjá þér og þú kinokar þér við því að leita ástæðu þess. Sár gróa hægt og rólega. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum og þarft því að gera þér grein fyrir hvaða væntingar þú gerir til annarra. Hafðu ekki of miklar áhyggjur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Taktu þátt í samræðum um trúarbrögð, kynþætti og heimsatburði. Vissulega geta hugmyndir þeirra átt við að hluta til. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þetta er góður dagur til hvers konar viðskipta, einnig hentar hann til íþróttaiðkunar, listsköpunar og starfa sem tengjast skemmtana- og ferðaþjónustunni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Steingeitin fær tækifæri til þess að hafa áhrif í dag. Hleyptu engum að þér fyrr en þú veist að þeir eru traustsins verð- ir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Að líta inn á við fær mann til að gera sér grein fyrir ýmsu. En jafnvel fólk eins og þú getur verið í óstuði. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert með aðfinnslur í garð annarra og mátt vita að fólk er ekki alltaf í skapi til að taka við þeim. Taktu þér tak og við- urkenndu staðreyndir með bros á vör. Ætli ég sé framleiddur meðhristivörn? Ég hef engan skjálfta fundið?“ skrifaði listamað- urinn og góðvinur Vísnahornsins Hallmundur Kristinsson á fésbók- arsíðu sína eftir skjálftahrinuna fyrir norðan. Aðalsteinn Svanur Sigfússon sendi honum kveðju – í bundnu máli auðvitað: Hallmundi varð ekki ekið út úr rúminu, þótt landið hefðu skjálftar skekið í skollans húminu. Þá Höskuldur Búi Jónsson: Djúpt nú niðri hlær einn hátt að háttsemi Norðlendinga: Því skelfur fold og Frónið grátt Framsókn lætur springa. En Aðalsteinn var ekki hættur: Ekkert þóttist skáldið skilja skjálfandi um miðja nótt. Ektakvinnan, Anna Lilja, undraðist þó mannsins þrótt. Hallmundur svaraði fyrir sig: Þó að hugur mannsins myrkni og morkni rætur, eigi er skömm að skjálftavirkni í skjóli nætur. Hallmundur orti við annað tæki- færi: Í Furuvelli fara skal, fögur listin blómstrar þar: Margra góðra verka val í Vinnustofu Hallmundar. Viðtökurnar voru eftir því ef marka má vísu Ævars Ragn- arssonar: Upp og ofan flest hér fer, en fólkið lofar myndirnar. Varla í kofa vísað er í Vinnustofu Hallmundar. Ármann Þorgrímsson virti fyrir sér mannlífið á Glerártorgi og varð að orði: Ég vona að komið sé vor í verslunum sjást þess nú spor og ég veit fyrir víst og véfengi síst að hér drepst sko enginn úr hor. Björn Ingólfsson orti um allt ann- að en pólitík: „Þú ert ekkert, Stefán, í straffi,“ sagði Steingerður Elva (með vaffi) „en gott er að spara og því gef ég þér bara moðvolgt og kolmórautt kaffi!“ Friðrik Steingrímsson slær á létta strengi: Ég ruddi braut sem reyndist grýtt og reif í burtu tálmana, orti síðan upp á nýtt alla Passíusálmana. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af straffi, skjálftum og listamanni með hristivörn Í klípu „ÞETTA ER SÆMILEGT STARF, LÁG LAUN EN FRÍR MATUR. ÉG REYNDI AÐ HÆTTA EINU SINNI EN KOMST EKKI ÚT UM DYRNAR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VIÐ FÓRUM BARA ÚT ÚR HERBERGINU Í TVÆR MÍNÚTUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hringja gleðibjöllum saman. TOLLUR TOLL FRÖNSKU- VAGN NUDD- STOFA MJÁ! ÉG ER Í FRÍI Í DAG. ÞAÐ ER ALLT OF HÁTT GJALD FYRIR AÐ GERA VIÐ SKIPIÐ! ÞAÐ ER SAMT BARA ÁÆTLAÐ TILBOÐ. HVAÐ ÞÝÐIR „ÁÆTLAÐ TILBOГ? AÐ REIKNINGURINN VERÐUR SENNILEGA MIKLU HÆRRI. Undanfarin misseri og ár hefurhagræðing verið lykilorðið en öllu má nú ofgera. Í vikubyrjun vantaði 16 síður í Fréttablaðið og daginn eftir mátti meðal annars sjá eftirfarandi í blaðinu til nánari skýr- ingar: „Tveir dómar um listviðburði sem féllu fyrir vikið út úr blaðinu eru endurbirtir í dag …“ Víkverji veltir fyrir sér hvernig hægt er að endurbirta það sem aldrei hefur birst. x x x Samkvæmt þjóðtrúnni á sumariðað vera gott frjósi vetur og sum- ar saman aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Trausti Jónsson veðurfræð- ingur skaut þessa þjóðtrú í kaf, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær, og bendir á að sumar og vetur hafi frosið saman hérlendis 56 sinn- um á síðustu 64 árum og ekki hafi öll þau sumur verið góð. x x x Víkverji hefur mikla trú á Traustaog vill líka halda í forna siði, hefðir, gömlu góðu gildin og þjóðtrú. Vetur og sumar frusu saman í fyrri- nótt og Víkverji er sannfærður um að sumarið verði gott, þó að ekki væri nema vegna þess að lykilmenn í pólitíkinni boða skattalækkanir og hækkun ráðstöfunartekna eftir kosningarnar á morgun. x x x Fyrir helgi sá Víkverji verðandiþingmann dreifa kosningabækl- ingum fyrir utan verslun í Árbæn- um. Viðkomandi virtist forðast við- skiptavini frekar en að ná til þeirra, og honum létti greinilega þegar hann hljóp undan úrkomunni inn í bíl og keyrði í burtu. Það verður fróðlegt að sjá viðbrögðin þegar al- mennilega pusar á viðkomandi. x x x Annað var uppi á teningnum þegarSnúður Baggi og Hrafna Flóki eða Krummi eins og hann er kall- aður hittust í fyrsta sinn. Þeir þef- uðu hvorn annan uppi á göngustígn- um vinsæla við Ægisíðu ífyrradag. Eigendur tóku tal saman og í ljós kom að hundarnir voru ekki aðeins af sama kyni heldur hálfbræður. Lít- ill er hundaheimur rétt eins og mannheimur. víkverji@mbl.is Víkverji Kenn mér að gera vilja þinn því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. (Sálmarnir 143:10) Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnlokasett í úrvali NJÓTTU ÞESS AÐ GERA BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA FINGERS 70x120 cm • Ryðfrítt stál KROM 53x80 cm • Aluminum / Ál COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem gæði ráða ríkjum á góðu verði. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.