Morgunblaðið - 26.04.2013, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
Gunnar Valgeirsson
Coachella | Ef marka má viðbrögð
áhorfenda á vefsíðu Sigur Rósar,
jafnt sem athugasemdir lesenda
blaðagreina fjölmiðlafólks í hinum
ýmsu borgum, er ljóst að leikur
hljómsveitarinnar hefur hvarvetna
haft mikil áhrif á fólk.
Undirritaður fór til Santa Bar-
bara á föstudag til að hlýða á síð-
ustu tónleika sveitarinnar, eftir að
hafa séð Jónsa og félaga á fyrri
helgi Coachella-hátíðarinnar sex
dögum fyrr. Á þeirri hátíð var tón-
listin í aðalhlutverki, þar sem
myndabakgrunnurinn sem sveitin
notar á venjulegum tónleikum sín-
um var fjarri. Við þetta verða allar
hljómsveitir á Coachella hinsvegar
að eiga, þar sem hraðinn í að skipta
um hljóðfæri listafólks á sviðum
hátíðarinnar er fyrir öllu.
Tónleikarnir fóru fram á Santa
Barbara Bowl, útlileikhúsi uppi í
hlíðum borgarinnar. Uppselt var á
5.000 manna hljómleikastaðnum,
rétt eins og á 6.000 manna Billy
Graham-samkomuhúsinu í San
Fransiskó tveimur kvöldum áður.
Þetta er þrátt fyrir að hljómsveitin
hafi leikið hér í Kaliforníu í fyrra-
sumar og haldið tvenna tónleika á
Coachella. Ljóst er að Sigur Rós
hefur dyggan hóp aðdáenda hér á
vesturströndinni.
Batnar með hverri
tónleikaferð
Það er skemmst frá því að segja
að sviðsuppsetning og myndabak-
grunnurinn falla vel inn í andrúms-
loftið í hljómi sveitarinnar. Rétt
eins og á hljómleikunum um síð-
ustu helgi sýndi hljómsveitin að
leikur hennar batnar með hverri
tónleikaferð. Það er komið ákveðið
sjálfstraust í leik sveitarinnar,
enda hefur Sigur Rós nú leikið alls
76 tónleika á þessari heimsreisu
sinni.
Nýju lög hljómsveitarinnar
benda til þess að Kveikur, nýja
plata sveitarinnar, muni falla betur
í geðið á aðdáendum og skríbentum
en Valtari gerði í fyrra.
Eftir að hafa séð sveitina í ágúst
síðastliðnum var eins og eitthvað
vantaði upp á að láta nýju strengja-
og blásturshlóðfæraleikarana falla
inn í lög sveitarinnar. Á þessari
tónleikaferð er ljóst að þetta á ekki
lengur við. Bakgrunnshljómlist-
arfólkið fellur nú vel inn í bæði
eldri og nýrri lög Sigur Rósar.
Löng lög sveitarinnar skapa öll
sérstakt andrúmsloft og er hreint
ótrúlegt að sjá hversu virkir áhorf-
endur eru í að hlusta. Maður sá
enga farsíma á lofti meðal þeirra á
meðan Sigur Rós lék. Jafnvel kenn-
arar geta ekki sagt það! Þegar mað-
ur lítur yfir múginn virðist sem þús-
undir manna séu í heimspeki-
pælingum. Þetta er mjög óvenjulegt
hjá áhorfendum hér vestra, ef und-
an eru skildir sinfóníutónleikar.
Falsetta í tunglsljósi
Að öðrum ólöstuðum er það að
sjálfsögðu rödd Jóns Birgissonar
sem sem setur mestan svipi á
hljómlistina. Það er heint ótrúlegt
að sitja í miðjum áhorfendahópnum
– með skært tungl og stjörnur
hangandi yfir gilinu – hlustandi á
falsetturödd Jónsa fylla andrúms-
loftið á svæðinu.
Hljómsveitin hefur tekið upp þá
hefð í lok hljómleika að ganga út
af sviðinu eftir barninginn í lokin
á Popplaginu – með gítar og bas-
sasuð enn hangandi í loftinu,
sviðsljósin enn á. Eftir stutta
stund kemur síðan allur ellefu
manna hópurinn aftur fram á
sviðið, hneigir sig og þakkar
áhorfendum fyrir. Þetta er
skemmtileg hefð þar sem hljóm-
sveitin lætur hljómlistina tala fyr-
ir sínu án þess að vera símasandi
milli laga. Það er skemmtilegt
fyrir áhorfendur að geta þakkað
fyrir sig og fyrir hljómsveitina að
svara fyrir sig. Þetta gefur áhorf-
endum tækifæri til að finna rök-
hugsunina aftur eftir að hafa
misst hana meðan á tónleikunum
stóð. Annars myndi enginn rata
út!
Galdur í Santa Barbara
Sjálfstraust „Það er komið ákveðið sjálfstraust í leik sveitarinnar, enda hefur Sigur Rós nú leikið alls 76 tónleika á þessari heimsreisu sinni“ segir m.a. um
tónleika sveitarinnar í Santa Barbara. Meðfylgjandi mynd var tekin á Berlínarhátíðinni í fyrra.
Sigur Rós lauk
fjögurra vikna tón-
leikaferðalagi sínu
um Norður-Ameríku
á sunnudag á seinni
helgi Coachella-
tónlistarhátíðarinnar
AFP
Parísarhjól Stærðarinnar Parísarhjól er á hátíðarsvæði Coachella.
Nýtt myndlistargallerí tóktil starfa á dögunum ogheitir það Hverfisgallerí.Húsakynni gallerísins
eru falleg, það er vel staðsett á
Hverfisgötunni og að öllu leyti hin
prýðilegasta viðbót við galleríflór-
una í bænum. Hverfisgallerí starfar
á faglegan hátt með hópi viður-
kenndra og frambærilegri lista-
manna. Einn þeirra er Sigurður
Árni Sigurðsson og opnunarsýning
gallerísins kemur í hans hlut.
Sigurður Árni sýnir ný verk, olíu-
málverk og vatnslitamyndir – en
stefin í vatnslitamyndunum eru
kunnugleg. Þar er sem gagnsæjar
kúlur svífi í lausu lofti og varpi ann-
arlegum skuggum í myndrýminu.
Uppspretta birtunnar er þó óræð,
það er sem hún komi úr ýmsum átt-
um. Myndirnar fela í sér leik með
sjónrænar blekkingar; kúlur og
skuggar þeirra virðast skipa sér
reglulega um myndflötinn en þegar
betur er að gáð sjást lítilsháttar frá-
vik sem grafa undan röklegum skiln-
ingi og skapa spennu í huga áhorf-
andans. Svipað má segja um
málverk frá þessu ári þar sem áferð
og litur hörstrigans eiga þátt í þrí-
víddarblekkingunni, og „bakgrunn-
urinn“ fær aukið vægi í sjónarspilinu
og keppir um athygli áhorfandans.
Sjónrænar rannsóknir listamanns-
ins eru vel ígrundaðar og vinnu-
brögðin fáguð en verkin eru full-
endurtekningarsöm. Þetta á sér-
staklega við um vatnslitaverkin; þau
byggjast á fínlegri tækni en þar
saknar maður meiri tilbreytingar og
að listamaðurinn stígi út fyrir vissan
þægindaramma.
Í þremur stórum, einlitum mál-
verkum frá 2012 er flöturinn þakinn
þunnu málningarlagi, í björtum lit-
um. Skuggarnir af mannverum sem
þar sjást eru mjúkir og hafa útlínur
barna sem virðast hafa staðnæmst
um stund. Ólíkt skuggunum í kúlu-
myndunum, lifa þessir skuggar,
þessar eftirmyndir, sjálfstæðu lífi þó
að „frummyndirnar“ séu víðs fjarri.
Þessi málverk eru tvívíð en þau hafa
skírskotun til þriðju víddarinnar – út
í rými áhorfandans (og þar með gall-
erírýmisins). Skuggamyndirnar
höfða til ímyndunaraflsins og þær
vekja spurningar: hvar eru mann-
verurnar? Eru þetta ef til vill aðeins
flöktandi minningar? Listamaðurinn
er þarna á áhugaverðum, frum-
spekilegum slóðum í vangaveltum
um eðli veruleikaskynjunar, og um
eiginleika málverksins og mynd-
rænnar sköpunar.
Bjartir skuggar
Morgunblaðið/Einar Falur
Skuggar Sigurður Árni Sigurðsson á sýningu sinni í Hverfisgalleríi sem hóf starfsemi í febrúar síðastliðnum.
Hverfisgallerí, Hverfisgötu 4
Sigurður Árni Sigurðsson – ný verk
bbbmn
Til 4. maí 2013. Opið þri.- fös. kl. 11-8 og
lau. kl. 13-17. Aðgangur ókeypis.
ANNA JÓA
MYNDLIST
1. Yfirborð
2. Ný Batterí
3. Vaka
4. Hrafntinna
5. Sæglópur
6. Svefn-g-englar
7. Varúð
8. Hoppípolla
9. Með Blóðnasir
10.Olsen Olsen
11.Kveikur
12.Festival
13.Brennisteinn
Aukalög
14.Glósóli
15.Popplagið
15 lög
LAGALISTI
SIGUR RÓSAR