Morgunblaðið - 26.04.2013, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
Missa Dei Patris eftir tékkneska
tónskáldið Jan Dismas Zelenka
verður flutt í Hofi á morgun,
laugardag, kl. 16. Flytjendur eru
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
ásamt Kór Akureyrarkirkju og
Barokksmiðju Hólastiftis, en ein-
söngvarar eru Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópran, Alina Dubik
mezzósópran, Snorri Wium tenór
og Ágúst Ólafsson bassi. Stjórn-
andi á tónleikunum er Eyþór Ingi
Jónsson, organisti og kórstjóri
Akureyrarkirkju.
„Missa Dei Patris er á margan
hátt óvenjulegt, sérstaklega ef
það er borið saman við verk sam-
tímamanna Zelenka, J.S. Bach,
G.F. Händel o.fl. Í verkinu eru
hressileg tékknesk þjóðlagaáhrif,
ítölsk gamansemi og hraði ásamt
áhrifum frá þýska barokkskól-
anum. Verkið er fjörugt og krefj-
andi fyrir kór og hljómsveit vegna
mikils hraða sem er aðaleinkenni
þess. Verkið er engu að síður afar
aðgengilegt á að heyra,“ segir
m.a. í tilkynningu frá skipuleggj-
endum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Eyþóri Inga ríkir mikil tilhlökkun
hjá hópnum sem að flutningnum
stendur. „Þetta verða glæsilegir
tónleikar. Að leiða saman Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands, frá-
bæra einsöngvara og þennan
sterka og magnaða kór sem Kór
Akureyrarkirkju er, býður upp á
einstaka upplifun sem enginn tón-
listarunnandi ætti að láta fram
hjá sér fara. Hópurinn er sam-
heldinn og það er mjög gefandi
fyrir alla þessa aðila að fá tæki-
færi til að vinna saman og skapa
tónlistaratburð af þessu tagi.“
Miðasala er á menningarhus.is
og í síma Hofs: 450-1000.
Gleði Kór Akureyrarkirkju syngur á tónleikum með Barokksmiðju Hóla-
stiftis og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Allt litróf tilfinninganna
Barokktónleikar þar sem hraði, gleði og hressileg tékk-
nesk þjóðlagaáhrif eru í fyrirrúmi í Hofi á morgun kl. 16
Fræðimaðurinn Per Langgård
heldur fyrirlestur um grænlenska
tungu í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safns Íslands í dag kl. 12. Fyrirlest-
urinn, sem er í boði Stofnunar Vig-
dísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum, Máltækniseturs og
Málvísindastofnunar Háskóla Ís-
lands, er öllum heimill enda að-
gangur ókeypis.
Langgård mun flytja mál sitt á
ensku, en erindi hans ber yfirskrift-
ina: „Of course Greenlandic dish-
washers will understand Green-
landic in the future – A short
introduction to
language policy
in Greenland and
an elaborated dis-
cussion of why
massive support
from advanced
language techno-
logy might be the
prime factor in
keeping Green-
landic vital in the years to come“.
Samkvæmt upplýsingum frá skipu-
leggjendum tala aðeins um 50 þús-
und manns grænlensku nú.
Per Langgård
Um grænlenska tungu
The Call
Í myndinni segir af Jordan, síma-
verði hjá neyðarlínunni sem svarar
kalli unglingsstúlku sem hefur ver-
ið rænt. Til að bjarga lífi hennar
verður Jordan að takast á við morð-
ingja sem hún hefur áður haft
kynni af. Leikstjóri myndarinnar er
Brad Anderson og í aðalhlut-
verkum Halle Berry, Abigail Bresl-
in og Morris Chestnut.
Metacritic: 51/100
Passion
Græna ljósið sýnir nýjustu kvik-
mynd hins þekkta leikstjóra Brians
De Palma. Í henni segir af
Christine og Isabelle sem starfa
saman í markaðsfyrirtæki og sinna
markaðssetningu nýrrar gerðar af
síma. Christine eignar sér hug-
mynd sem Isabelle fær og verður
það afdrifaríkt. Á vef Senu segir að
í myndinni megi finna kynferð-
islega spennu, sundraða sjálfsmynd
og þjófnað á persónueinkennum
sem minni á þekktustu spennu-
myndir De Palma, m.a. Body
Double. Með aðalhlutverk fara
Noomi Rapace og Rachel Mc-
Adams.
Metacritic: 55/100
Latibær
Kvikmynd unnin úr nýrri og vænt-
anlegri þáttaröð um Latabæ sem
sýnd verður á Stöð 2 í maí. Tveimur
þáttum hefur verið skeytt saman og
verða þeir sýndir í bíó. Þetta eru
þættirnir Fjólublái pardusinn, sem
er tvöfaldur, og Blái riddarinn. Í
þeim fyrri segir af því þegar haldin
er hátíð í tilefni af opnun Lata-
bæjarsafnsins og kristal Íþrótta-
álfsins er stolið. Í Bláa riddaranum
er farið aftur í miðaldir, krakk-
arnir í Latabæ klæða sig í búninga
riddara og kóngafólks og halda í
Latabæjarkastalann. Fjólublái
riddarinn mætir á svæðið, ætlar sér
að stela öllu íþróttanamminu og
það þarf að koma í veg fyrir það.
Spenna Úr nýjustu kvikmynd Brians De Palma, Passion.
Mannrán, spenna
og Latabæjarbíó
Bíófrumsýningar
14
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
MISSIÐ EKKI AF FYNDNUSTU
OG BESTU MYNDINNI Í SERÍUNNI
KEMUR FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
ROBERT DOWNEY JR.
BEN KINGSLEY
GWYNETH PALTROW
GUY PEARCE
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
-Empire
-Hollywood
Reporter
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
12
12
12
IRON MAN 3 3D Sýnd kl. 5:20 -8 -10:10 -10:40 (P)
IRON MAN 3 2D Sýnd kl. 7:30
LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 4 - 6
OBLIVION Sýnd kl. 8
SCARY MOVIE 5 Sýnd kl. 10:30
Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi
Stærsta
opnun
ársins!
FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ HALLE
BERRY Í AÐALHLUTVERKI
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
- T.K., KVIKMYNDIR.IS - H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI
METSÖLUBÓK. MYND SEM
ENGIN MÁ MISSA AF!
- H.S.S., MBL
FALSKUR FUGL KL. 6 14
OBLIVION KL. 10 12 / THE CALL KL. 8 - 10 16
SCARYMOVIE 5 KL. 8 14
LATIBÆR KL. 6 L
PASSION KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
THE CALL KL. 8 - 10.10 16
LATIBÆR KL. 6 L
FALSKUR FUGL KL. 6 - 8 - 10 14
OBLIVION KL. 9 12 / KAPRINGEN KL. 5.45 12
THE CALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
THE CALL LÚXUS KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
LATIBÆR KL. 4 L
FALSKUR FUGL KL. 6 - 8 14
SCARYMOVIE 5 KL. 6 - 8 - 10 14
OBLIVION KL. 8 - 10.40 12
G.I JOE RETALATION 3D KL. 10 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.30 L
-H.S., MBL
G.H.J., RÚV
-H.V.A., FBL
“FÍNASTI FUGL”