Morgunblaðið - 26.04.2013, Page 52
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 116. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Grindavík tryggði sér oddaleik
2. Skuggalega líkt íslenskum …
3. Þyrla Gæslunnar nauðlenti
4. Davíð fékk skilorðsbundinn dóm
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Já elskan eftir Steinunni Ketils-
dóttur, verður sýnt í Rýminu hjá Leik-
félagi Akureyrar í dag og á morgun.
Umfjöllunarefni verksins er fjöl-
skyldan, samskipti hennar, meðvirkni,
leyndarmál og mynstur. Flytjendur eru
Aðalheiður Halldórsdóttir, Árni Pétur
Guðjónsson, Berglind Pétursdóttir,
Hannes Þór Egilsson, Magnús Guð-
mundsson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
og Snædís Lilja Ingadóttir.
Dansverkið Já elskan
sýnt á Akureyri
Listahátíðin List án landamæra
stendur nú yfir og verður boðið upp
á ýmsa viðburði um helgina í
Reykjanesbæ, m.a. myndlistarsýn-
ingu í bíósal Duushúsa, strætóskýli
bæjarins fá andlitslyftingu og
um helgina
sýnir leikhóp-
urinn Bestu
vinir í bænum
verkið Tíma-
vélina.
List án landamæra
í Reykjanesbæ
Þeir sem skráðir
eru á póstlista
Ljósmyndasafns
Reykjavíkur fá
vikulega senda
mynd úr safninu
og sú síðasta sýnir
Pétur A. Ólafsson
athafnamann
gægjast í gegnum sturtuhengið á
heimili sínu á Patreksfirði árið 1910.
Með póstinum fylgdi 8. heilræði úr
fyrirlestri Steingríms Matthíassonar
árið 1912 sem snýr að líkamsherð-
ingu. Hvetur þar Steingrímur unga
pilta og stúlkur til þess að herða sig
með köldu baði á hverjum degi.
Ungmenni herðast
með köldu baði
Á laugardag Vestlæg átt, 8-15 m/s og rigning en allvíða slydda til
landsins. Skúrir eða él vestantil síðdegis en gengur í norðan 5-13
norðantil um kvöldið með dálítilli snjókomu, fyrst á Vestfjörðum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst smám saman í suðvestanátt og þykknar
upp vestantil og fer að snjóa á Vestfjörðum en léttir til fyrir norðan
og austan. Slydda og síðar rigning V-til í kvöld.
VEÐUR
„Þetta er risastórt verkefni
sem við erum mjög glöð yfir að
vera trúað fyrir,“ segir Þor-
gerður Laufey Diðriksdóttir,
formaður Fimleikasambands
Íslands, en síðasta vetrardag
var innsiglað að Evrópumeist-
aramótið í hópfimleikum verð-
ur haldið hér á landi síðla árs
2014. Vegna þessa var m.a. rit-
að undir samkomulag við
Reykjavíkurborg um móts-
haldið sem fer fram í Laug-
ardalshöll. »4
Risastórt verkefni
að halda EM 2014
Góður varnarleikur og markvarsla
færðu Stjörnunni óvæntan en góðan
útisigur á Fram í fyrsta úrslitaleik lið-
anna um Íslandsmeistaratitil kvenna
í handknattleik í gær en Garðabæj-
arliðið vann, 21:20, í Safamýrinni.
Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoraði
sigurmark Stjörnunnar þegar 20 sek-
úndur voru til leiksloka. »2
Vörn og markvarsla
gerðu útslagið
Valskonur eru komnar í úrslitaleik
deildabikars kvenna í knattspyrnu í
fimmtánda skipti af þeim átján sem
keppnin hefur verið haldin. Þær hafa
hinsvegar beðið lægri hlut í tíu úr-
slitaleikjum til þessa. Valur vann Ís-
landsmeistara Þórs/KA í víta-
spyrnukeppni í gær og mætir
Stjörnunni sem lagði Breiðablik að
velli. »4
Valskonur í fimmtánda
úrslitaleikinn af átján
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ömmur og tengdamömmur eru
möndlar hverrar fjölskyldu. Sam-
eina fólkið og eru öllum skjól.
Sjálfur á ég slíka ömmu og því var
sérstaklega ánægjulegt að efna til
þessarar sýningar þar sem bæði
afi og amma, börn, barnabörn og
tengdabörn gátu lagt ýmislegt til,“
segir Nikulás Stefán Nikulásson.
Saga ömmu hans, Magneu Rein-
aldsdóttur og leit hennar að
bandarískum föður sínum, er uppi-
staðan í leikritinu Tengdó sem síð-
ustu misseri hefur verið sýnt á
litla sviði Borgarleikhússins.
Einstök saga og áhrifarík
„Þetta er einstök saga og
áhrifarík. Á árunum eftir síðari
heimsstyrjöld voru mörg börn í
líkri stöðu og amma, fengu að vita
að faðir þeirra væri amerískur
hermaður sem aftur leiddi til þess
að þau fóru að leita föður síns.
Sum fundu þá en önnur ekki og
þetta reyndi á alla aðila mála,“
segir Nikulás Stefán um söguna
og leikritið sem hefur fengið góða
umsögn. Höfundur verksins og
annar leikarinn er Valur Freyr
Einarsson, sem segir og túlkar
sögu Magneu tengdamóður sinnar,
ásamt konu sinni, Ilmi Maríu Stef-
ánsdóttur – sem er, eins og aug-
ljóst er – dóttir Magneu og Stef-
áns Geirs Karlssonar eiginmanns
hennar.
Tengdó hefur fengið góðar við-
tökur og á Grímunni í fyrra var
verkið valið sýning ársins. Í gær,
25. apríl, var leikritið sýnt í 50.
sinn, það er á 68. afmælisdegi
Magneu. Því þótti hennar fólki við
hæfi að efna til listsýningar, til-
einkaðrar þessari sögupersónu
leiksviðsins. Er sýningin í Kaffi-
stofunni á Hverfisgötu 44 í
Reykjavík.
Hugmynd í kaffiboði
„Í okkar fjölskyldu er fólk
gjarnan að skapa og búa eitthvað
skemmtilegt til. Hugmynd um sýn-
ingu kom upp í kaffiboði hjá ömmu
og þegar á reyndi var lítið mál að
safna saman í eina sýningu. Lista-
mennirnir eru alls þrettán. Amma
Magnea, tengdó sjálf, kom með
teikningar og málverk og afi, Stef-
án Geir, með skúlptúra og ég
sömuleiðis. Eitt barnabarnið,
Grettir Valsson, var með innsetn-
ingu og svona gæti ég talið lista-
mennina þrettán og verkin sem
voru talsvert fleiri. Við erum mjög
listræn fjölskylda,“ segir Nikulás
Stefán.
Tengdó af leiksviði í myndlist
Afkomendur
Magneu sýna í
Kaffistofunni
Morgunblaðið/Kristinn
Sögupersóna Í hörpu Magneu Reinaldsdóttur eru margir stengir. Örlagasaga hennar hefur vakið áhuga gesta í
Borgarleikhúsinu og listaverk stórfjölskyldunnar – svo sem málverk og skúlptúrar – eru líka eftirtektarverð.
Listin hefur alltaf verið stór hluti
af lífi mínu. Man ekki
öðruvísi eftir mér
en að ég væri að
teikna og alltaf
eitthvað að bralla
og bardúsa,“ segir
Nikulás Stefán
Nikulásson. Hann er
um þessar mundir að
ljúka námi í
myndlist við Listaháskóla Íslands
og er meðal þátttakenda í út-
skriftarsýningu nemenda skólans
sem þessa dagana er haldin í
Hafnarhúsinu í Reykjavík. Verkin
þar eru mjög fjölbreytt en í list-
sköpun sinni hefur Nikulás Stef-
án lagt áherslu á innsetningar,
myndbandaverk og gjörninga –
sem eru í takt við tísku og tíð-
aranda.
Alltaf að bralla og bardúsa
NIKULÁS STEFÁN LÝKUR MYNDLISTARNÁMI
Nikulás Stefán
Nikulásson
VEÐUR » 8 www.mbl.is