Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Side 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Side 39
12.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Í kvikmyndinni The Great Gatsby fær 1920-glamúrinn að njóta sín til fulls með gleði, glassúr og demöntum. Á þessu tímabili drukku dömurnar kampavín, reyktu sígarettur með munnstykki og döns- uðu charleston uppi á borðum í art deco-prýddum híbýlum. Það er því ekki að undra að tímabilið 1920-1930 sé kallað „glaði ára- tugurinn“. Kjólarnir voru yfirleitt ermalausir, perluskreyttir með kögri og dágóðri hreyfivídd, svo hægt væri að dansa alla nóttina án þess að kjóllinn þrengdi að og eyði- legði gott partí. Þú getur gleymt því í kjól með pens- il-sniði … Hárið var líka sérstaklega klippt þannig að hár- greiðslan færi ekki úr skorðum þótt gleðin stæði yfir í átta tíma eða meira. Hárið nam gjarnan við eyru og því var haldið frá andlitinu með hárspennu í annarri hliðinni eða með „geislabaug“. Sem sérstök áhuga- manneskja um „geislabauga“, eða partíbönd eins og þau eru gjarnan kölluð í mín- um innsta hring, get ég sann- að að það gerist alltaf eitthvað skemmtilegt þegar partíband- ið er á sínum stað … Carey Mulligan fer með að- alhlutverkið á móti Leonardo DiCaprio í The Great Gatsby sem frumsýnd verður hérlendis 17. maí. Á „glaða áratugnum“ voru fötin ekki bara fín heldur var mikið lagt upp úr fínum og stórum skart- gripum. Skartið sem Mulligan bar í myndinni er frá Tiffany & Co og getur „almenningur“ keypt gripina úr línunni í fyrrnefndum verslunum. Skartgripirnir voru reyndar svo rándýrir að ráða þurfti sérstakan „skartgripavörð“ á tökustað svo góssinu yrði hreinlega ekki stolið. Það er kannski ekkert skrýtið því bara hárspöngin sem hún var með í myndinni kostar yfir 40.000 krónur íslenskar í Tiffany & Co. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað perluarmböndin sem hún bar á báðum úlnliðum kosta. Hvað sem því líður á myndin án eftir að hafa jákvæð áhrif á sumartísk- una. Það var varla búið að frumsýna myndina í Bandaríkjunum þegar TopShop, Jigsaw, Har- rods, Benefit, Zara og fleiri tískufyrirtæki voru komin með The Great Gatsby-varning til sölu. Þar sem við Smart- löndur elskum glys og demanta hvet ég ykkur til að ganga alla leið og vera óhræddar við að setja glimmer-„geislabauga“ í hárið, dansa uppi á borð- um heilan vinnudag og láta eins og „glaði áratugurinn“ sé akk- úrat núna. Svo er ágætt að hafa það bak við eyrað að hver og ein stýrir sinni lífshamingju og hver vill „glaðan áratug“ ef það er hægt að feta hina „glöðu lífsleið“ … Af hverju að einskorða skemmtilegheitin við tíu ár? martamaria@mbl.is Leonardo DiCaprio og Carey Mulligan í mynd- inni The Great Gatsby. Það besta frá „glaða áratugnum“ Með hárspöngina og armböndin úr Tiffany & Co. Kjóllinn er frá Jigsaw, skórnir frá Asos og hárspöngin og veskið frá John Lewis. Armböndin fást hjá Tiff- any & Co. Charle- ston-kjóll frá Malene Birger. Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | avon@avon.is Nýtt frá Bylting frá Remington: Fyrstir hártækjaframleiðenda með Lithium rafhlöður í hártækjum – hleðsla allt að 4 x lengri. AQ7 – Remington Rotary VATNSHELD herrarakvél – 100% vatnsheld, má nota með froðu og geli BHT6250 – Wet-Tech Body Hair Trimmer – 100% vatnsheld S6280 Stylist Perfect Waves – Keramik húðaðar bylgju plötur. -Hitnar á 30 sek PG6060 – Lithium-Powered Grooming Kit – Lithium rafhlaða, ending allt að 110 mín MB4040 – Lithium – Powered skeggsnirtir – Lithium rafhlaða, notkun allt að 160 mín. HC5780 Lithium- Powered hárklippur - – Lithium rafhlaða, notkun allt að 150 mín. 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta í 90 ár

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.