Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Qupperneq 39
12.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Í
kvikmyndinni The Great Gatsby fær 1920-glamúrinn að njóta sín
til fulls með gleði, glassúr og demöntum. Á þessu tímabili drukku
dömurnar kampavín, reyktu sígarettur með munnstykki og döns-
uðu charleston uppi á borðum í art deco-prýddum híbýlum.
Það er því ekki að undra að tímabilið 1920-1930 sé kallað „glaði ára-
tugurinn“. Kjólarnir voru yfirleitt ermalausir, perluskreyttir með
kögri og dágóðri hreyfivídd, svo hægt væri að dansa
alla nóttina án þess að kjóllinn þrengdi að og eyði-
legði gott partí. Þú getur gleymt því í kjól með pens-
il-sniði …
Hárið var líka sérstaklega klippt þannig að hár-
greiðslan færi ekki úr skorðum þótt gleðin stæði yfir í
átta tíma eða meira. Hárið nam gjarnan við eyru og
því var haldið frá andlitinu með hárspennu í annarri
hliðinni eða með „geislabaug“. Sem sérstök áhuga-
manneskja um „geislabauga“, eða partíbönd eins og
þau eru gjarnan kölluð í mín-
um innsta hring, get ég sann-
að að það gerist alltaf eitthvað
skemmtilegt þegar partíband-
ið er á sínum stað …
Carey Mulligan fer með að-
alhlutverkið á móti Leonardo
DiCaprio í The Great Gatsby
sem frumsýnd verður hérlendis
17. maí. Á „glaða áratugnum“ voru
fötin ekki bara fín heldur var mikið
lagt upp úr fínum og stórum skart-
gripum. Skartið sem Mulligan bar í
myndinni er frá Tiffany & Co og getur
„almenningur“ keypt gripina úr línunni í
fyrrnefndum verslunum. Skartgripirnir
voru reyndar svo rándýrir að ráða
þurfti sérstakan „skartgripavörð“ á
tökustað svo góssinu yrði hreinlega
ekki stolið. Það er kannski ekkert
skrýtið því bara hárspöngin sem
hún var með í myndinni kostar yfir
40.000 krónur íslenskar í Tiffany &
Co. Þið getið rétt ímyndað ykkur
hvað perluarmböndin sem hún bar á
báðum úlnliðum kosta.
Hvað sem því líður á
myndin án eftir að hafa
jákvæð áhrif á sumartísk-
una. Það var varla búið að
frumsýna myndina í
Bandaríkjunum þegar
TopShop, Jigsaw, Har-
rods, Benefit, Zara og
fleiri tískufyrirtæki voru
komin með The Great
Gatsby-varning til sölu.
Þar sem við Smart-
löndur elskum glys og
demanta hvet ég ykkur til
að ganga alla leið og vera
óhræddar við að setja
glimmer-„geislabauga“ í
hárið, dansa uppi á borð-
um heilan vinnudag og láta eins
og „glaði áratugurinn“ sé akk-
úrat núna. Svo er ágætt að hafa
það bak við eyrað að hver og
ein stýrir sinni lífshamingju og hver vill
„glaðan áratug“ ef það er hægt að feta hina
„glöðu lífsleið“ … Af hverju að einskorða skemmtilegheitin
við tíu ár? martamaria@mbl.is
Leonardo DiCaprio og
Carey Mulligan í mynd-
inni The Great Gatsby.
Það besta frá
„glaða áratugnum“
Með hárspöngina og armböndin
úr Tiffany & Co.
Kjóllinn er frá Jigsaw, skórnir
frá Asos og hárspöngin og
veskið frá John Lewis.
Armböndin
fást hjá Tiff-
any & Co.
Charle-
ston-kjóll
frá Malene
Birger.
Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | avon@avon.is
Nýtt frá
Bylting frá Remington:
Fyrstir hártækjaframleiðenda
með Lithium rafhlöður í hártækjum
– hleðsla allt að 4 x lengri.
AQ7 – Remington Rotary
VATNSHELD herrarakvél
– 100% vatnsheld, má nota með
froðu og geli
BHT6250 – Wet-Tech
Body Hair Trimmer
– 100% vatnsheld
S6280
Stylist Perfect Waves
– Keramik húðaðar bylgju plötur. -Hitnar á 30 sek
PG6060 – Lithium-Powered
Grooming Kit
– Lithium rafhlaða,
ending allt að 110 mín
MB4040 – Lithium
– Powered skeggsnirtir
– Lithium rafhlaða, notkun allt að 160 mín.
HC5780 Lithium-
Powered hárklippur
- – Lithium rafhlaða,
notkun allt að 150 mín.
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár