Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Síða 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2013 Þ ýska sópransöngkonan Diana Damrau er ein skærasta stjarna óperuheimsins. Margir gagnrýn- endur og tónlistarunnendur segja hina rúmlega fertugu söngkonu eina þá allra bestu og mest hrífandi sem áheyrendur geti heyrt um þessar mundir, enda hafa sigrar hennar verið glæsir á und- anförnum árum. Stefán Ragnar Höskuldsson, flautuleikari hljómsveitar Metropolitan- óperunnar, leikur undir hjá öllum helstu stjörnum óperusviðsins og er ekki í vafa: „Hún er sú besta,“ segir hann. Damrau er ástríðufullur listamaður og fer ekki auðveldustu leiðirnar í listinni. Hún var hyllt af tónlistarrýni The New York Times á dögunum, þegar hún kaus að syngja hlutverk Viólettu í La Traviata í fyrsta skipti þar op- inberlega, í stað þess að prófa rulluna fyrst í minna húsi. „Dirfskusigur,“ skrifaði hann yfir sig hrifinn. Þótt Damrau sé kunnust fyrir óperusöng- inn hefur hún einnig lagt mikla áherslu á ljóðasöng. 2. júní næstkomandi gefst tónlist- arunnendum færi á að heyra hana í Eldborg- arsal Hörpu, ásamt einum kunnasta hörpu- leikara samtímans, Frakkanum Xavier de Maistre. Þau flytja áhugaverða ljóðadagskrá þýskra og franskra sönglaga. „Á fyrri hluta tónleikanna ætlum við að flytja víðfræga söngva eftir Schubert, eins og „Ave Maria“, „Ständchen“ og „Gretchen am Spinnrade“, og til dæmis „Ständchen“ eftir Strauss. Gestir munu heyra að þessi lög hljóma frábærlega vel með hörpunni,“ segir Damrau glaðlega þegar rætt er við hana í síma þar sem hún er stödd í Zürich í Sviss. Þar er hún nú í fyrsta skipti að syngja í La Traviata í Evrópu, við ekki síðri undirtektir en vestanhafs. En við byrjum á að ræða um tónleikana hér og hún segir þau Xavier de Maistre hafa þekkst í rúman áratug. „Við hittumst yfir kvöldverði með vinum og talið barst að sameiginlegri ást okkar á ljóðasöng og ekki síst frönskum laglínum. Xavier er franskur en bjó í Vínarborg á þess- um tíma með fjölskyldu sinni og þar heyrðist þessi franska tónlist furðu lítið. Hann hélt áfram að spyrja mig: þekkirðu þetta lag – eða þetta? Hann sagðist getað leikið öll þessi lög á hörpuna og það var upphafið að okkar samstarfi. Við fórum inn í æfingaherbergið þar sem harpan stóð, æfðum saman og höfð- um að því loknu lagt drög að þremur efnis- skrám,“ segir Damrau og hlær að minning- unni – þetta var gjöful æfing. „Það heillaði mig hvað túlkunarmöguleikar hörpunnar voru ríkulegir,“ segir hún. „Þetta er í senn glæsilegt einleikshljóðfæri og hljóð- færi til að leika á með söng. Í samanburði við píanó eru dýnamískir möguleikar hörpu enn víðfeðmari. Sérstaklega á veika sviðinu, þó harpan geti einnig verið afar kraftmikil. Við höfum reynt mörg lög og ég held að um 85 prósent þeirra ljóða sem venjulega eru flutt með píanói, sé hægt að flytja með hörpu.“ Harpan er stórkostlegt hljóðfæri Damrau kemur aftur að efnisskránni á tón- leikunum hér og segir að fyrir utan að de Maistre leiki tvö einleiksverk, þá sé seinni hluti efnisskrárinnar byggður á frönskum lögum eftir Duparc, Hahn og Chausson, og eftir Dell’Acqua flytja þau verk um fuglasöng fyrir kóloratúrsópran og hörpu sem hún seg- ir mjög fallegt. Rýnir sem skrifaði um tón- leika þeirra í Kennedy Center í Washington á dögunum tekur undir það, og segir Damrau hafa á meistaralegan hátt málað „í orðum hratt flug svalanna, þar sem hún skaut ein- um háum tóni eftir öðrum, eins og hún væri að hleypa litlu fuglunum sem hún söng um upp í morgunhimininn“. Damrau og de Maitre hafa á undanförnum árum haldið tónleika í virtum sölum víða um lönd, til að mynda á Scala og á óperuhátíð- inni í München, og síðar í mánuðinum koma þau fram í París og Genf. „Leikur Xavier á hörpuna er langt frá klisjunni um að á hörpu leiki bara gull- inhærðar ævintýragyðjur einhverja draum- kennda tóna,“ segir Damrau og hlær. „Nei, harpan er stórkostlegt hljóðfæri,“ bætir hún síðan við af þunga. „Og einstakt þegar Xav- ier leikur á hana, af sínu afli og næmleika. Við látum okkur dreyma um að kynna hljóð- færið betur fyrir fjöldanum. Xavier er sá besti, það er svo einfalt. Ein- stakur einleikari sem býr yfir óviðjafnanlegri tækni. Hann elskar ljóðlist og skilur túlk- unina í söngnum, og kann svo vel að mynda liti í meðleiknum. Þegar við vinnum saman er eins og við viljum flytja línur hvor annars. Á tónleikum njótum við þess að hlusta hvort eftir öðru og skapa dásamleg tónlistarleg augnablik, ekki bara með hugsuninni heldur frekar með hjartanu. Mér finnst að við verðum sem eitt þegar við leikum tónlist saman,“ segir Damrau af ástríðuþunga. „Það er alltaf dásamlegt að endurskapa það sem tónskáldið hefur skrifað og skapa andrúmsloft sem hrífur áheyrendur. Við viljum fara með þá í ferðalag hátt upp og djúpt niður, í ferðalag sem er dramatískt, ástúðlegt, milt …“ Ljóðasöngur persónulegri Diana Damrau talar af mikilli ástríðu um flutning þeirra de Maistre og sönglögin. Það hlýtur að vera býsna ólíkt að vera annars vegar tvö saman á sviði stórra tónleikahalla að túlka ljóð og taka síðan þátt í viðamiklum óperuuppfærslum með stórum hljómsveitum og fjölda söngvara. Hún segir þetta ólík form en hún nálgist hvort tveggja af sama metn- aði. „Sönglög eru mun innilegri og maður er á vissan hátt í beinna sambandi við áheyr- endur; sem listamaður tekur maður þá með sér í ferðalag. Á óperusviðinu fer ég í karakt- er og leik en flutningur á ljóðasöng er vissu- lega persónulegri.“ Er annað meira krefjandi en hitt? Hún hugsar sig um. Segir síðan að á ljóða- tónleikum þurfi hún að minnsta kosti að syngja mun meira en í mörgum óperu- hlutverkum. „Í óperunni fer maður stundum af sviðinu í tíu mínútur og getur hvílt rödd- ina, maður skiptir kannski um búning og breytir förðuninni áður en aftur er hlaupið á svið. En við ljóðaflutning er ég á sviðinu frá fyrsta tóni og þarf að vera með fullkomna einbeitingu alla tónleikana; þarf að túlka ólík- ar tilfinningar og beita ýmsum aðferðum við að segja þessar litlu sögur ljóðanna. Ég kalla þær stundum óperu-míniatúra. Á óperu- sviðinu er maður bara einn karakter en við ljóðaflutning þarf að bregða sér í marga á sömu tónleikunum, auk þess að stökkva á milli stíla, jafnvel milli alda, fyrir utan að maður syngur á nokkrum tungumálum. Þetta er áhugavert, skemmtilegt en krefjandi. Þá er engin leið að fela sig á bak við stóra hljómsveit eða með leik, því þarna erum við bara tvö, við meðleikarinn. Eins og maður að tala við mann.“ Vil gera mitt besta Ætla má að Damrau sé æði upptekin við að sinna glæsum óperuferlinum en engu að síð- ur gefur hún sér tíma til að koma reglulega fram á ljóðatónleikum, og hljóðritar ljóðasöng ekki síður en óperur. Er það mikilvægt fyrir hana á þessum tímapunkti á ferlinum að vera sífellt að koma fram, víða um lönd? Hún hlær og segir óperuflutninginn og stússið kringum óperuna auðveldlega geta fyllt dagatalið hjá sér. „Þegar maður stígur inn í uppfærslu sem er verið að taka upp að nýju þá er maður að minnsta kosti í þrjár vikur á þeim stað, upp í mánuð, tíminn fer eftir fjölda sýninga. En þegar ráðist er í nýja uppfærslu getur það tekið tvo mánuði ef æf- ingatíminn er langur. Ég gæti sagt nei við boðum um tónleika en það er mjög mikilvægt fyrir mig að koma fram á tónleikum og flytja ljóðasöngva. Ég finn mér því tíma fyrir það á milli óperuuppfærslna og stundum inn á milli sýninga. Nú er ég á hátindi ferils míns og ég verð að koma fram því fólk vill heyra mig syngja – og ég fagna því,“ segir hún glað- lega. „Ég kem því fram með ánægju.“ Damrau er fjölskyldumanneskja, er gift og á börn, og þetta hlýtur að vera krefjandi líf fyrir fjölskylduna. Hún er sífellt á faraldsfæti og fjölskyldan ferðast saman. „Já, þetta er krefjandi en maðurinn minn er líka söngvari og þekkir vel líf starfandi listamanna. Maður verður bara að gæta þess að hvílast eins vel og mögulegt er og vera ró- legur þó það sé margt og mikið að gerast í kringum mann. Þetta eru mikil ferðalög, allskyns undir- búningur, ferðatöskur sem þarf að pakka nið- ur í og taka upp úr …“ hún dæsir við til- hugsunina. Bætir svo við að þetta sé samt alveg hægt og að þau séu orðin vön þessu. Eins og Damrau segir réttilega, þá er hún á DIANA DAMRAU FLYTUR LJÓÐASÖNGVA VIÐ HÖRPULEIK Í HÖRPU Dramatískt ferðalag söngstjörnunnar „NÚ ER ÉG Á HÁTINDI FERILS MÍNS OG ÉG VERÐ AÐ KOMA FRAM ÞVÍ FÓLK VILL HEYRA MIG SYNGJA – OG ÉG FAGNA ÞVÍ,“ SEGIR SÓPRANSÖNGKONAN DIANA DAMRAU. HÚN ER EIN SKÆRASTA STJARNA ÓPERUHEIMSINS OG HELDUR HÉR LJÓÐATÓNLEIKA Á LISTAHÁTÍÐ ÁSAMT HÖRPULEIKARANUM XAVIER DE MAISTRE. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Damrau er óttalaus,“ sagði í grein í The New York Times árið 2007, þegar unga þýska söngkonan tókst á nokkurra vikna millibili á við tvö stjörnuhlutverk í sömu uppfærslu á Töfraflautu Mozarts á sviði Metropolitan-óperunnar; fyrst Næturdrottninguna og síðan Paminu. En henni var ekki bara hrósað fyrir kjarkinn því fyrst og fremst var það raddfegurðin, túlkunin og útgeislunin sem hreif rýninn. Hún er iðulega sögð fremsti kóloratúrsópran samtímans. Allt frá unga aldri hefur Damrau hrif- ið áheyrendur og gesti á tónleikum og óperusýningum. Hún hefur mikla út- geislun á sviði, og hefur hvað það varð- ar verið líkt við Placido Domingo, sem hún hefur sungið með mörgum sinnum á síðustu árum, á galatónleikum og í óp- erum. Ferill Damrau tókst á flug þegar hún starfaði við óperuhúsin í Mannheim og Frankfurt. Frá árinu 2002 hefur hún verið í lausamennsku og heillað áheyr- endur af stærstu sviðum. Damrau er nú á hátindi söngferilsins. Óttalaus stjarna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.